Fréttablaðið - 19.11.2006, Side 31
Orkuveita Reykjavíkur er framsækið þjónustu-
fyrirtæki sem aflar og dreifir vistvænni orku á sem
hagkvæmastan hátt og í sátt við umhverfið.
Á þjónustusvæði fyrirtækisins býr meira en
helmingur íslensku þjóðarinnar.
Stefna Orkuveitunnar er að veita viðskiptavinum
sínum bestu mögulegu þjónustu og sjá þeim fyrir
ódýrri orku sem framleidd er úr endurnýjanlegum
íslenskum orkulindum. Þannig stuðlar fyrirtækið að
aukinni notkun hreinnar innlendrar orku og leggur
um leið sitt af mörkum til nýsköpunar og framfara í
landinu.
Orkuveitan er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður
fólks með mikla þekkingu. Fyrirtækið leitast við að
vera í fremstu röð hvað snertir öryggi og vinnu-
umhverfi og möguleika starfsfólks við að samræma
vinnu og fjölskylduábyrgð eins og kostur er.
Það er stefna Orkuveitu Reykjavíkur að auka hlut
kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum innan
fyrirtækisins.
Fyrirtækið er:
Sveigjanlegt, það lagar sig að breyttum aðstæðum
Sýnir frumkvæði og er opið fyrir nýjungum
Sækir fram af eldmóði
Traust og starfar í sátt við umhverfið
Rafmagnsverkfræðingur (64394)
Um er að ræða starf sérfræðings við hönnunardeild Nýrra virkjana.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Verkefnisstjórn vegna hönnunar rafbúnaðar
• Almenn umsjón og eftirlit með hönnun einstakra virkjana
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólamenntun á sviði rafmagnsverkfræði
• Framhaldsmenntun æskileg
• Reynsla af sterkstraums- og háspennuvirkjun
• Góð kunnátta í ensku
Nánari upplýsingar gefur Ingólfur Hrólfsson
(ingolfur.hrolfsson@or.is).
Sóst er eftir dugmiklum og jákvæðum einstaklingum
sem geta axlað ábyrgð og tekist á við krefjandi verkefni.
Mikil áhersla er lögð á samskiptahæfni,
árangursdrifni, sveigjanleika og frumkvæði.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
V
3
50
17
1
1/
06
Staðarverkfræðingur (64394)
Um er að ræða starf deildarstjóra framkvæmdadeildar Nýrra virkjana en deildarsjóri er jafnframt
staðarverkfræðingur við virkjanaframkvæmdir á Hengilssvæðinu.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Yfirumsjón með virkjanaframkvæmdum á Hengilssvæðinu
• Rekstur á verkstað
• Samskipti við verktaka og uppgjör verksamninga
• Yfirumsjón byggingastjórnar og eftirlit
• Ábyrgð á rekstri deildarinnar
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólamenntun á sviði byggingar-, véla- eða rafmagnsverkfræði
• Sérmenntun á sviði framkvæmdafræði æskileg
• Reynsla af stjórnun verklegra framkvæmda skilyrði
• Góð kunnátta í ensku
Nánari upplýsingar gefur Ásgeir Margeirsson (asgeir.margeirsson@or.is).
Svið Nýrra virkjana Orkuveitu Reykjavíkur
óskar eftir umsóknum í eftirtalin störf:
Sérfræðistörf við virkjanauppbyggingu
Umsjón með störfunum hafa Helga Jónsdóttir
(helga.jonsdottir@capacent.is) og Hildur Sif Arnardóttir
(hildur.arnardottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum.
Umsóknarfrestur er til og með 3. desember nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um
störfin á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is
Svið Nýrra virkjana Orkuveitu Reykjavíkur skiptist í rannsóknardeild, hönnunardeild og
framkvæmdadeild. Stærstu verkefni sviðsins eru Hellisheiðarvirkjun, stækkun hennar
og nýjar virkjanir við Hverahlíð og Bitru.