Fréttablaðið - 19.11.2006, Page 34
Ölgerðarmeistari (brugg-
meistari) ber ábyrgð á því
að framleiðsla á öl og bjór
sé í samræmi við gæða-
kröfur. Ölgerðarmeist-
ari hefur yfirsýn yfir
allt framleiðsluferlið; frá
gæðum hráefna, bruggun-
artækni, örverufræði og
vélfræði ölgerðar til þess
er ölið rennur úr kranan-
um. Ölgerðarmeistarar
vinna hjá drykkjarvöru-
framleiðendum.
Ölgerðarmeistarar hér á
landi hafa lært í Þýska-
landi. Æskilegt er að nem-
endur hafi áður lokið
sveinsprófi í bruggun og
hafi hlotið hagnýta reynslu
í bjórframleiðslu. Meist-
araprófi í ölgerð geta nem-
endur þreytt þegar þeir
hafa lokið lokaprófi frá
skóla. Þýskir nemendur
skulu hafa lokið prófi frá
þýskri iðnmenntastofnun
(„Handwerkskammer“)
sem felur í sér leyfi til að
taka nema á samning og
að reka fyrirtæki í bjór-
framleiðslu í Þýskalandi.
Erlendum nemendum er
ekki gert skylt að hafa
lokið þessu prófi til að
mega hefja meistaranám
í ölgerð. Hver sem lýkur
prófi hlýtur skírteini sem
tilgreinir einstakar grein-
ar og námsárangur.
Meðal námsáfanga eru
bruggunartækni, hráefn-
isfræði, umbúðagerð, vatn
og frárennsli, óáfengir
drykkir, gæðastjórnun og
umhverfisstjórnun, upp-
lýsingatækni, vörustjórn-
un, tæknileg stjórnun,
efnafræðileg, tæknileg
og örverufræðileg fram-
leiðslustjórnun.
Í Þýskalandi er m.a. unnt
að ljúka doktorsnámi í
ölgerð.
2-5 ár.
Margt forvitnilegt kemur fram um íslenska yfirmenn í
vinnumarkaðskönnunum VR.
Álagið er mikið á íslenskum yfirmönnum en þeir vinna um
50 stundir á viku. Þriðjungur þeirra segist iðulega mæta til
vinnu um helgar og þeir segjast ekki losna frá vinnunni í
fríum. Flestir lenda í því að illa gangi að skilja áhyggjurnar
eftir í vinnunni þegar farið er í frí.
Flestir yfirmanna eru karlkyns, vel menntaðir og nokk-
uð sáttir við eigið líf. Þeir kvarta helst undan álaginu en
hylla krefjandi og spennandi hluta starfa sinna og yfir-
gnæfandi meirihluti þeirra telur starf sitt eftirsóknarvert.
1.300 yfirmenn tóku þátt í könnuninni.
Íslenskir yfirmenn
» Ráðningarþjónusta
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Ert þú í
atvinnuleit?
Skrifstofustörf
Lagerstörf
Verslunarstörf
Bókhaldsstörf
Ræstingarstörf
Sérfræðistörf
Útkeyrslustörf
Sölustörf
Stjórnunarstörf
Störf við kerfisstjórn
Störf við forritun
Framleiðslustörf
Iðnstörf
Þjónustustörf
Fjöldi starfa í boði.
» Kannaðu málið á
www.hhr.is
www.minnsirkus.is/sirkustv
102.000 EINTÖK MEÐ FRÉTTABLAÐINU
Upplýsingar veita:
Ruth Bergsdótir • Sími 550 5876 • GSM 694 4103 • ruth@frettabladid.is eða
Helga Kristjánsdóttir • Sími 550 5821 • GSM 695 0044 • helga@frett.is
Nú styttist í jólin og Fréttablaðið gefur
út veglegt jólablað 30. nóvember.
Jólablað Fréttablaðsins verður stútfullt af skemmtilegu jólaefni.
Í blaðinu má sjá fólk á öllum aldri undirbúa jólin, uppskriftir
að jólamat - bæði hefðbundnar og óhefðbundnar - og allrahanda
jólakökur og kræsingar. Þetta er blað sem nauðsynlegt verður að
hafa við höndina og sækja hugmyndir í alla liðlanga jólaföstuna.
Föndur - kort - siðir - tré - konfekt - skraut - kökur - glögg - sokkar - dúkar -
súkkulaði - piparkökuhús - englar - kransar - kúlur... svo fátt eitt sé nefnt!