Fréttablaðið - 19.11.2006, Blaðsíða 53
Heimili & skip - Sími 578 8800
Allar RE/MAX fasteignasölur eru sjálfstætt reknar og í einkaeignHeimili & skip — Sími 578 8800
Fjársterkur aðili leitar að einbýli, rað- eða parhúsi með 5 svefnherbergjum á
svæðum 101,107,103 og Hlíðunum. Stór sérhæð á þessum svæðum kemur
einnig til greina.
Fjölskylda með 2 börn leitar að sérbýli í Laugarneshverfi. Verðhugmyndir 45-55
milljónir, má þurfa að tak í gegn að einhverju leiti.
Snjófríði vantar 2-3 herb. svæði 101 max 20 mill.
Egil vantar 3 herb. svæði 220 max 17 mill.
Írisi vantar 3 herb. svæði 220, 210 max 18,5 mill.
Jens vantar 3herb. svæði 101 max 23 mill.
Fjólu vantar 3-4 herb. svæði 110 max 21 mill.
Önnu vantar 2-3 herb. svæði 220 max18 mill.
Andra vantar 3-4 herb. á höfuðborgarsvæði allt skoðað
Lilju vantar íbúð í vesturbæ svæði 107 max 22 mill.
Hafðu samband í 578-8800 eða 821-7337
ERUM MEÐ KAUPENDUR AF EFTIRTÖLDUM EIGNUM!
Fr
um
Stefán Páll Jónsson
Löggildur fasteigna- fyrirtækja- og skipasali
Klemenz Jónsson dúka-
lagningameistari segir
miklu skipta að vanda
valið á gólfefni til að
tryggja hámarks endingu.
Klemenz býr á Akureyri þar
sem hann rekur sjálfstætt
verktakafyrirtæki og hann
segir að nóg sé að gera í
dúkalögnum. „Ég vinn
héðan frá Akureyri og fer
allt frá Sauðárkróki að
Kárahnjúkum í verk-
efni,“segir hann.
Verkefnin eru margvís-
leg að sögn Klemenzar.„Við
erum mikið að vinna fyrir
verktaka í dúkalögnum og
svo í endurlögnum í opin-
berum byggingum og skrif-
stofuhúsnæðum. Þá höfum
við verið töluvert í viðhaldi
á gömlum húsum sem verið
er að gera upp.“
Klemenz er lærður húsa-
smiður og vann við húsa-
smíði í átta ár þangað til
hann skipti yfir í dúkalagnir
árið 1997. „Dúkalagninga-
maður sem ég kynntist í
gegnum smíðarnar bauð
mér að vinna hjá sér og ég
sló til því mér hafa alltaf
þótt dúkalagnir spennandi.
Árið 2001 fór ég svo út í
eigin rekstur sem hefur
gengið vel.“
Dúkalagnir eru lögvernd-
uð iðngrein og hægt er að
klára allt námið hér á landi.
„Maður tekur fjögurra ára
iðnskólanám í dúkalögnum,
en svo tók ég meistaranám
þar að auki. Til viðbótar við
námið hér heima förum við
svo töluvert á námskeið og
sýningar erlendis.“
Klemenz segir að í dúka-
lögnum skipti miklu máli að
vanda valið á gólfefni. „Við
vinnum oft með arkitektum
og verktökum við val á gólf-
efni. Í þessum geira er mikil
þróun og mjög endingargóð-
ir dúkar komnir á markað.
Dúkarnir verða stöðugt
sterkari og þola betur ágang
án þess að í þá komi slit.“
Úr húsasmíði í
dúkalagningar
Horfur innan ferðaþjón-
ustunnar eru nokkuð
góðar samkvæmt könnun
sem Vinnumálastofnun
gerði.
Könnunin fór fram í októb-
er og voru það forsvars-
menn fyrirtækja í ferða-
þjónustu sem sátu fyrir
svörum. Samkvæmt könn-
uninni telur um helmingur
aðspurðra að næsta sumar
muni fyrirtæki þeirra ráða
fleira starfsfólk til vinnu en
síðasta sumar, en aðrir telja
að fjöldi starfsmanna verði
svipaður. Út frá þessum
svörum má búast við um 5
til 10 prósenta aukningu á
mannafla í greininni.
Þetta á við um næsta
sumar en á næstu mánuðum
má búast við því að stöðu-
gildum fækki, enda minna
að gera yfir vetrarmánuð-
ina.
Í könnuninni kemur einn-
ig fram að 60 prósent fyrir-
tækja í ferðaþjónustu eru
með erlenda ríkisborgara í
vinnu og eru fyrirtæki með
fleiri en 10 starfsmenn í
vinnu með 5 erlenda ríkis-
borgara á launaskrá að jafn-
aði.
Góðar horfur í
ferðaþjónustu
ATVINNUTÆKIFÆRI
Til sölu fyrirtæki í innflutningi, heildsölu og smásölu.
Góð álagning. Falleg, hrífandi og auðseljanleg vara.
Verð ca. 12 m.
Svar merkt: „Uppgrip“ sendist á netfangið: galle@isl.is
Mýrdalshreppur www.vik.is
Vík í Mýrdal lausar stöður
Kennara vantar að Tónskóla Mýrdælinga og organista að Víkurkirkju.
Æskilegar kennslugreinar eru píanó, blásturshljóðfæri og tónfræði.
Nánari upplýsingar veita:
Kristinn Níelsson skólastjóri s:487-1485, ton_vik@ismennt.is
Sveinn Pálsson sveitarstjóri s: 4871210, sveitarstjori@vik.is
Helga Halldórsdóttir, form. sóknarnefndar s: 4871210,
helga.halldorsdottir@vik.is
Umsóknarfrestur er til 5.desember
Tónskóli og grunnskóli eru undir sama þaki og vinna náið saman.
Nemendur við tónskólann eru um 30 og stöðugildi 1,5.
Við Víkurkirkju er starfandi 15 manna kirkjukór og eru guðsþjónustur að
jafnaði einu sinni í mánuði.
Tónlistarlíf og kórastarf er blómlegt í Mýrdalnum.
Mýrdalshreppur er um 500 manna sveitarfélag. Í Vík er öll almenn þjónusta svo sem grunn-
leik- og tónskóli, heilsugæsla, dvalar- og hjúkrunarheimili, íþróttahús og sundlaug. Mikil
áhersla er lögð á æskulýðs- og íþróttamál og öll aðstaða er góð.
Náttúrufegurð er rómuð í Vík og nágrenni og margir möguleikar til útivistar. Vík er í um 2 klst
fjarlægð frá Reykjavík og samgöngur eru greiðar árið um kring.
Ferðaþjónusta er öflug og vaxandi í sveitarfélaginu og fjölbreyttir möguleikar eru fyrir fólk
með ferskar hugmyndir. Sveitarfélagið og stofnanir þess eru þátttakendur í verkefni
Lýðheilsustöðvar Allt hefur áhrif einkum við sjálf.