Fréttablaðið - 19.11.2006, Side 73
STÓRA SVIÐIÐ kl. 20:00
Þjóðleikhúsið fyrir alla!
Afgreiðsla er opin kl. 12:30 – 18:00 mán. – þri. Aðra daga kl. 12:30 – 20:00.
STÓRFENGLEG! eftir Peter Quilter
Í kvöld sun. 19/11 nokkur sæti laus, lau. 25/11 nokkur sæti laus, sun. 26/11 nokkur sæti
laus, fös. 1/12 nokkur sæti laus, lau. 2/12. Síðustu sýningar fyrir jól.
SITJI GUÐS ENGLAR eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikgerð Illugi Jökulsson.
Í dag sun. 19/11 kl. 14:00 örfá sæti laus, fös. 29/12 kl. 20:00 örfá sæti laus, lau. 30/12 kl.
14:00 örfá sæti laus og kl. 17:00 örfá sæti laus, lau. 6/1 kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 14:00 örfá
sæti laus og kl. 20:00, lau. 13/1 kl. 14:00, sun. 14/1 kl. 14:00 örfá sæti laus.
PÉTUR GAUTUR eftir Henrik Ibsen. Leikgerð Baltasar Kormákur.
Fim. 23/11 örfá sæti laus, fös. 24/11 örfá sæti laus. Aukasýningar fös. 8/12 nokkur sæti
laus og lau. 9/12 örfá sæti laus. Allra síðustu sýningar!
LEITIN AÐ JÓLUNUM eftir Þorvald Þorsteinsson
Lau. 25/11 kl. 13:00 uppselt og kl. 15:00 uppselt, sun. 26/11 kl. 13:00 uppselt og
kl. 15:00 uppselt, lau. 2/12 kl. 13:00 uppselt, kl. 14:30 nokkur sæti laus og kl. 16:00,
sun. 3/12 kl. 13:00 uppselt, kl. 14:30 uppselt og kl. 16:00, lau. 9/12 kl. 13:00, kl. 14:30 og
kl. 16:00, sun. 10/12 kl. 13:00 örfá sæti laus og kl. 14:30 örfá sæti laus, lau. 16/12 kl.
13:00 og kl. 14:30, sun. 17/12 kl. 13:00 og kl. 14:30.
LEIKHÚSLOFTIÐ aðalbyggingu
UMBREYTING – brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik.
Í dag sun. 19/11 kl. 17:00 örfá sæti laus, fös. 24/11 kl. 20:00 uppselt.
Allra síðustu sýningar!
SKOPPA OG SKRÍTLA eftir Hrefnu Hallgrímsdóttur
Lau. 6/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 7/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00, lau. 13/1
kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00, sun. 14/1 kl. 11:00, kl. 12:15 og kl. 14:00 uppselt.
KÚLAN Lindargötu 7, kl. 17:00 og 20:00
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ aðalbyggingu Lindargötumegin, kl. 20:00
PATREKUR 1,5 eftir Michael Druker.
Í kvöld sun. 19/11, örfá sæti laus, aukasýning fös. 24/11 nokkur sæti laus, sun. 26/11
uppselt. Síðustu sýningar fyrir jól! Lau. 6/1, lau. 13/1.
Ath! Miðaverð aðeins 1.500 kr. fyrir nema gegn framvísun skólaskírteinis.
Miðasala í síma 551 1200 og á netinu www.leikhusid.is
HVERS VEGNA LÁTA KONURNAR SVONA?
Námskeið fyrir almenning um Bakkynjur hefst 21/11.
Skráning á midasala@leikhusid.is eða í síma 551 1200.
Nánari upplýsingar á www.leikhusid.is.
Mannúðarsamtökin Caritas á
Íslandi hafa í nokkur ár staðið fyrir
tónleikahaldi í Kristskirkju í
Landakoti þar sem samtökin hafa
safnað fjárstyrk til góðra málefna.
Hafa samtökin átt stuðningsaðila
meðal tónlistarmanna og tónlistar-
unnenda, enda jafnan verið glæsi-
legur blær og hátíðlegur yfir tón-
leikahaldinu sem að venju fer fram
skömmu fyrir aðventu. Í dag verða
tónleikarnir helgaðir söfnun fyrir
fötluð börn, en á síðasta ári rann
söfnunarféð allt til Greiningar- og
ráðgjafarstöðvar ríkisins. Hefjast
þeir kl. 16 og verða miðar seldir
við innganginn. Þetta eru þrett-
ándu tónleikarnir sem Caritas
stendur fyrir. Á efniskrá eru m.a
verk eftir Atla Heimi Sveinsson,
Bach, Casals, Franck, Haydn,
Kodály, Kreisler, Mozart, Rossini,
Puxcell, Sigvalda Kaldalóns og
Telemann. Flytjendur eru: Sesselja
Kristjánsdóttir, alt, Eyjólfur Eyj-
ólfsson, tenór, Guðný Guðmunds-
dóttir, fiðla, Björk Óskarsdóttir,
fiðla, Hulda Jónsdóttir, fiðla, Bjarni
Frímann Bjarnason, fiðla, Gunnar
Kvaran, selló, Sigurður I. Snorra-
son, klarinett, Eiríkur Örn Pálsson,
trompet og Úlrik Ólason, orgel. Þá
kemur fram á tónleikunum kórinn
Vox Feminae og er stjórnandi Mar-
grét Pálmadóttir.
Tónleikar í Kristskirkju
Blásaraoktettinn Hnúkaþeyr held-
ur tónleika í dag í Dómkirkjunni í
Reykjavík og flytur verk eftir
Mozart og verk sem tengjast
honum á einhvern hátt. Leikin
verða verk fyrir átta manna blás-
arasveit, tvö óbó, tvö klarinett, tvö
horn og tvö fagott. Sveitin var
stofnsett 2003 og leikur nú í Dóm-
kirkjunni í fjórða sinn. Þau hafa
víða farið og fengið góða dóma.
Sveitina skipa Peter Thomkins,
Eydís Franzdóttir, Ármann Helga-
son, Helga Björg Arnardóttir,
Emil Friðfinnsson, Anna Sigur-
björnsdóttir, Dagbjört Ingólfs-
dóttir og Kristín Mjöll Jakobsdótt-
ir. Meðal verka á dagskránni er
Figures in the Garden eftir Jonat-
han Dove frá 1991 sem byggist á
Brúðkaupi Fígarós. Þá leika þau
serenöðu nr. 11 í es-dúr sem er eitt
vinsælasta blásaraverk Mozarts.
Blæs í
hnúkaþey