Fréttablaðið - 19.11.2006, Side 76
!óíbí.rk054
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500
CASINO ROYALE kl. 2.30, 5.30, 8.30 og 11.20 B.I. 14 ÁRA
BORAT kl. 3, 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 3 og 6
MÝRIN kl. 3, 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
FEARLESS kl. 10.20 B.I. 16 ÁRA
DEVIL WEARS PRADA kl. 8
CASINO ROYALE kl. 2, 5, 8 og 11 B.I. 14 ÁRA
SÝND Í LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 11
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 12, 2 og 4
OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10
BORAT kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA
DRAUGAHÚSIÐ ÍSL. TAL kl. 12 og 1.40
CASINO ROYALE kl. 2, 5, 8 og 11 B.I. 14 ÁRA
SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 2 og 4
BORAT kl. 10 og 12 B.I. 12 ÁRA
MÝRIN kl. 6 og 8 B.I. 12 ÁRA
!óíbí.rk054
Gildir á allar sýningar í
Borgarbíó merktar með rauðu
EMPIRE
20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í
GULLVILD OG PLATÍNUM GLITNIS, EF
GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI
65 þúsund gestir
ERU ÞIÐ TILBÚIN FYRIR EINA
FYNDNUSTU MYND ALLRA TÍMA?
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
I
"BESTA BOND
MYNDIN Í ÁRARAÐIR"
- V.J.V. TOPP5.IS
"...LOKSINS FUNDINN
LEIKARI SEM FYLLIR SKARÐ
CONNERYS. HANN HEFUR
MÝKT OG HÖRKU,
DROTTNANDI ÚTGEISLUN
OG ER ÁMÓTA
KARLMANNLEGUR Á VELLI
OG SKOTINN."
S.V. MBL
"BESTA BOND MYNDIN FRÁ
UPPHAFI...BOND ER KOMINN
AFTUR MEÐ LÁTUM, HEFUR
ALDREI VERIÐ BETRI...
ALVÖRU BONDARNIR ERU
NÚ ORÐNIR TVEIR"
Þ.Þ. FBL
MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á
Það ríkti mikil eftirvænting í Laug-
ardalshöllinni á föstudagskvöldið.
Höllin var vel full og útlendingar
áberandi í salnum. Sennilega hafa
aldrei fleiri komið til landsins
gagngert til þess að fara á tón-
leika.
Múm var fyrst á svið. Þessi sjö
manna útgáfa af sveitinni tók lög
af óútkominni plötu. Tvíburasyst-
urnar eru báðar hættar, en þrjár
stelpur í framlínunni settu mikinn
svip á sveitina, sérstaklega söng-
konurnar Hildur Guðnadóttir og
Mr. Silla. Nýju lögin hljómuðu
ágætlega. Tónlistin hefur þróast
mikið. Það er kominn meiri kraftur
í hana og hún er orðin þjóðlaga-
skotin.
Rass er skemmtilegt tónleika-
band. Þeir byrjuðu bara þrír óraf-
magnað, en svo bættust trommu-
leikarinn og bassaleikarinn í
hópinn og sveitin keyrði í gegn um
plötuna sína með stuði og látum og
endaði á snilldarlaginu Andstaða.
Það var dramatísk stund þegar
Sykurmolarnir tíndust inn á sviðið.
Þeirra dagskrá hófst með Traitor,
upphafslagi fyrstu Sykurmolaplöt-
unnar Life’s Too Good. Næst kom
Leash Called Love af þriðju plöt-
unni Stick Around For Joy og svo
Deus. Sykurmolarnir spiluðu yfir-
leitt lögin sín með íslenskum text-
um þegar þeir spiluðu á Íslandi, en
núna voru sum lögin á ensku og
önnur á íslensku. Deus, Water og
Pump voru t.d. á íslensku, en
Mama, Cold Sweat og Motorcrash
á ensku.
Það rann upp fyrir manni á tón-
leikunum í Höllinni að þó að Syk-
urmolarnir hafi verið miklu popp-
aðri en þær sveitir sem meðlimirnir
komu úr, eins og Kukl og Fan Hout-
ens Kókó og þó að sveitin hafi búið
til fullkomna poppsmelli eins og
Deus, Regínu og Hit, þá var þetta
alltaf skrýtin popphljómsveit.
Hópur af ólíkum einstaklingum
sem hver og einn setti svip á heild-
armyndina: Einar Örn ofvirkur út
um allt svið að reyna að vera pirr-
andi og úttala sig um allt sem
honum datt í hug. Á föstudags-
kvöldið var Árni Johnsen honum
greinilega ofarlega í huga. Björk
hoppandi og dansandi og syngjandi
eins og upptendraður engill, Magga
hugmyndaríkur hljómborðsleikari,
Þór sérstaklega frjór og lunkinn
gítarleikari, Bragi traustur á bass-
anum og Sigtryggur hélt öllu saman
með eðal trommuleik.
Tónleikar Sykurmolanna á
föstudagskvöldið fóru svolítið
rólega af stað. Sveitin byrjaði á
minna þekktu lögunum, en um mið-
bikið tók hún afmælislagið Amm-
æli og eftir það voru þetta eintómir
hittarar; Cold Sweat, Blue Eyed
Pop, Motorcrash, Delicious Demon.
Þegar því lauk og sveitin hvarf af
sviðinu var stemningin orðin mögn-
uð.
Útgáfan af Ammæli var reynd-
ar alveg stórkostleg og greinilegt
að hlómsveitin hafði æft það lag
sérstaklega. Einar Örn lét lítið fara
fyrir sér og Björk gaf sig öll í söng-
inn. Gæsahúð.
Sveitin var klöppuð upp tvisvar,
Fyrst tók hún Hit og magnaða
útgáfu af Tekið í takti og trega en
svo komu Sykurmolasynirnir
Hrafnkell Flóki og Örnólfur Eldon
á sviðið ásamt sjálfum Johnny Tri-
umph og stuðslagarinn Luftgítar
fékk að hljóma við mikinn fögnuð.
Á heildina litið voru þetta frá-
bærir tónleikar. Svona endurkomur
eru misvel heppnaðar, en það sem
gaf þessari svo mikið var hvað
hljómsveitin hafði sjálf gaman af
þessu. Hún gaf sig 100 prósent í
þetta verkefni og gleði hljómsveit-
armeðlimanna smitaði salinn. Mol-
arnir spiluðu 21 lag og náðu upp
sömu stemningunni í Höllinni núna
og þeir náðu á Duus-húsi og Hótel
Íslandi fyrir tæpum 20 árum síðan
og það verður að teljast mikið
afrek!
Magnaðir Molar
SÝND KL. 12 með ísl. tali
HÁDEGISBÍÓ
aðeins 500 kr.
Á TOPPNUM Í 5 ÁR!
SÝND KL. 12 með ísl. og ensku tali
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI