Fréttablaðið - 19.11.2006, Page 76

Fréttablaðið - 19.11.2006, Page 76
!óíbí.rk054 Gildir á allar sýningar í Regnboganum merktar með rauðu SÍMI 564 0000 SÍMI 551 9000 SÍMI 462 3500 CASINO ROYALE kl. 2.30, 5.30, 8.30 og 11.20 B.I. 14 ÁRA BORAT kl. 3, 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 3 og 6 MÝRIN kl. 3, 6, 8.30 og 10.30 B.I. 12 ÁRA FEARLESS kl. 10.20 B.I. 16 ÁRA DEVIL WEARS PRADA kl. 8 CASINO ROYALE kl. 2, 5, 8 og 11 B.I. 14 ÁRA SÝND Í LÚXUS kl. 2, 5, 8 og 11 SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 12, 2 og 4 OPEN SEASON ENSKT TAL kl. 12, 2, 4, 6, 8 og 10 BORAT kl. 6, 8 og 10 B.I. 12 ÁRA MÝRIN kl. 3.30, 5.40, 8 og 10.20 B.I. 12 ÁRA DRAUGAHÚSIÐ ÍSL. TAL kl. 12 og 1.40 CASINO ROYALE kl. 2, 5, 8 og 11 B.I. 14 ÁRA SKÓGARSTRÍÐ ÍSL. TAL kl. 2 og 4 BORAT kl. 10 og 12 B.I. 12 ÁRA MÝRIN kl. 6 og 8 B.I. 12 ÁRA !óíbí.rk054 Gildir á allar sýningar í Borgarbíó merktar með rauðu EMPIRE 20% AFSLÁTTUR FYRIR VIÐSKIPTAVINI Í GULLVILD OG PLATÍNUM GLITNIS, EF GREITT ER MEÐ GREIÐSLUKORTI FRÁ GLITNI 65 þúsund gestir ERU ÞIÐ TILBÚIN FYRIR EINA FYNDNUSTU MYND ALLRA TÍMA? MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI I "BESTA BOND MYNDIN Í ÁRARAÐIR" - V.J.V. TOPP5.IS "...LOKSINS FUNDINN LEIKARI SEM FYLLIR SKARÐ CONNERYS. HANN HEFUR MÝKT OG HÖRKU, DROTTNANDI ÚTGEISLUN OG ER ÁMÓTA KARLMANNLEGUR Á VELLI OG SKOTINN." S.V. MBL "BESTA BOND MYNDIN FRÁ UPPHAFI...BOND ER KOMINN AFTUR MEÐ LÁTUM, HEFUR ALDREI VERIÐ BETRI... ALVÖRU BONDARNIR ERU NÚ ORÐNIR TVEIR" Þ.Þ. FBL MIÐASALA Í SMÁRABÍÓ OG REGNBOGANN Á Það ríkti mikil eftirvænting í Laug- ardalshöllinni á föstudagskvöldið. Höllin var vel full og útlendingar áberandi í salnum. Sennilega hafa aldrei fleiri komið til landsins gagngert til þess að fara á tón- leika. Múm var fyrst á svið. Þessi sjö manna útgáfa af sveitinni tók lög af óútkominni plötu. Tvíburasyst- urnar eru báðar hættar, en þrjár stelpur í framlínunni settu mikinn svip á sveitina, sérstaklega söng- konurnar Hildur Guðnadóttir og Mr. Silla. Nýju lögin hljómuðu ágætlega. Tónlistin hefur þróast mikið. Það er kominn meiri kraftur í hana og hún er orðin þjóðlaga- skotin. Rass er skemmtilegt tónleika- band. Þeir byrjuðu bara þrír óraf- magnað, en svo bættust trommu- leikarinn og bassaleikarinn í hópinn og sveitin keyrði í gegn um plötuna sína með stuði og látum og endaði á snilldarlaginu Andstaða. Það var dramatísk stund þegar Sykurmolarnir tíndust inn á sviðið. Þeirra dagskrá hófst með Traitor, upphafslagi fyrstu Sykurmolaplöt- unnar Life’s Too Good. Næst kom Leash Called Love af þriðju plöt- unni Stick Around For Joy og svo Deus. Sykurmolarnir spiluðu yfir- leitt lögin sín með íslenskum text- um þegar þeir spiluðu á Íslandi, en núna voru sum lögin á ensku og önnur á íslensku. Deus, Water og Pump voru t.d. á íslensku, en Mama, Cold Sweat og Motorcrash á ensku. Það rann upp fyrir manni á tón- leikunum í Höllinni að þó að Syk- urmolarnir hafi verið miklu popp- aðri en þær sveitir sem meðlimirnir komu úr, eins og Kukl og Fan Hout- ens Kókó og þó að sveitin hafi búið til fullkomna poppsmelli eins og Deus, Regínu og Hit, þá var þetta alltaf skrýtin popphljómsveit. Hópur af ólíkum einstaklingum sem hver og einn setti svip á heild- armyndina: Einar Örn ofvirkur út um allt svið að reyna að vera pirr- andi og úttala sig um allt sem honum datt í hug. Á föstudags- kvöldið var Árni Johnsen honum greinilega ofarlega í huga. Björk hoppandi og dansandi og syngjandi eins og upptendraður engill, Magga hugmyndaríkur hljómborðsleikari, Þór sérstaklega frjór og lunkinn gítarleikari, Bragi traustur á bass- anum og Sigtryggur hélt öllu saman með eðal trommuleik. Tónleikar Sykurmolanna á föstudagskvöldið fóru svolítið rólega af stað. Sveitin byrjaði á minna þekktu lögunum, en um mið- bikið tók hún afmælislagið Amm- æli og eftir það voru þetta eintómir hittarar; Cold Sweat, Blue Eyed Pop, Motorcrash, Delicious Demon. Þegar því lauk og sveitin hvarf af sviðinu var stemningin orðin mögn- uð. Útgáfan af Ammæli var reynd- ar alveg stórkostleg og greinilegt að hlómsveitin hafði æft það lag sérstaklega. Einar Örn lét lítið fara fyrir sér og Björk gaf sig öll í söng- inn. Gæsahúð. Sveitin var klöppuð upp tvisvar, Fyrst tók hún Hit og magnaða útgáfu af Tekið í takti og trega en svo komu Sykurmolasynirnir Hrafnkell Flóki og Örnólfur Eldon á sviðið ásamt sjálfum Johnny Tri- umph og stuðslagarinn Luftgítar fékk að hljóma við mikinn fögnuð. Á heildina litið voru þetta frá- bærir tónleikar. Svona endurkomur eru misvel heppnaðar, en það sem gaf þessari svo mikið var hvað hljómsveitin hafði sjálf gaman af þessu. Hún gaf sig 100 prósent í þetta verkefni og gleði hljómsveit- armeðlimanna smitaði salinn. Mol- arnir spiluðu 21 lag og náðu upp sömu stemningunni í Höllinni núna og þeir náðu á Duus-húsi og Hótel Íslandi fyrir tæpum 20 árum síðan og það verður að teljast mikið afrek! Magnaðir Molar SÝND KL. 12 með ísl. tali HÁDEGISBÍÓ aðeins 500 kr. Á TOPPNUM Í 5 ÁR! SÝND KL. 12 með ísl. og ensku tali 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.