Fréttablaðið - 19.11.2006, Síða 78
Fjölnir – ÍR
í dag kl. 19:15
Grafarvogsbúar og aðrir Fjölnismenn!
Stórleikur í kvöld! Mætum öll í
Íþróttamiðstöðina við Dalhús
og hvetjum okkar menn til sigurs.
Við þurfum ykkar stuðning!
Haukar og Valur mætt-
ust fyrr í vikunni í bikarkeppninni
og þá voru það Haukar sem unnu
en í gær náði Valur fram hefndum
í stórskemmtilegum og æsispenn-
andi handboltaleik. Með þessum
sigri styrkti Valur stöðu sína í
efsta sæti DHL-deildarinnar og er
liðið nú með þriggja stiga forskot
á HK sem á þó leik inni.
„Þetta var stórglæsilegt. Við
vorum að keppa gegn sterku liði
Hauka sem hefur marga frábæra
leikmenn í sínum röðum. Ef þeir
hefðu náð að sigra þennan leik
væru bara fjögur stig á milli þess-
ara liða, þetta er svo jafnt allt
saman og stutt milli liðanna þegar
þau eru svona fá,“ sagði Óskar
Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals,
eftir leikinn í gær.
Haukar voru einu marki yfir en
þegar tæp ein og hálf mínúta var
eftir af leiknum skoraði Arnór
Gunnarsson úr hægra horninu og
jafnaði fyrir Val í 29-29. Andri
Stefán skaut framhjá í næstu sókn
og Valsmenn fengu því boltann
þegar um tuttugu sekúndur voru
eftir af leiknum. Aftur var það
Arnór sem fékk boltann í horninu
og hann gerði allt rétt og skoraði
sigurmarkið 30-29 þegar örfáar
sekúndur voru eftir. Valsmenn
fögnuðu gífurlega enda leit fátt út
fyrir að þeir næðu að innbyrða
bæði stigin þegar lítið var eftir.
Valsmenn byrjuðu talsvert
betur í leiknum í gær og komust
10-6 yfir en þá náðu Haukar upp
frábærum leikkafla og komust
yfir 13-11. „Árni Þór var funheitur
og Haukar spiluðu gríðarlega fast
í vörninni og við áttum í miklum
vandræðum með þá. Þetta hefur
verið mjög sálrænt hjá okkur hve
illa hefur gengið gegn Haukum í
gegnum tíðina. Í einhverjum sex-
tán leikjum á Ásvöllum höfum við
tapað þrettan á síðustu árum,“
sagði Óskar Bjarni.
Staðan var jöfn, 13-13, í hálf-
leik en Haukar skoruðu tvö fyrstu
mörk seinni hálfleiksins. Mikið
jafnræði var með liðunum á síð-
asta stundarfjórðungi leiksins og
þau skiptust á að skora. Það voru
þó Valsmenn sem höfðu heppnina
með sér á endanum en jafntefli
hefðu líklega verið sanngjörn
úrslit. Mikil harka var í leiknum
en Anton og Hlynur hafa oft dæmt
betur en þeir gerðu í gær.
Árni var bestur í liði Hauka
sem eru í miklu basli í deildinni.
Þeir hafa aðeins unnið einn af sjö
leikjum sínum og hafa fjögur stig.
Valsmenn eru hins vegar á toppi
deildarinnar. „Nú er fyrstu
umferðinni lokið og næsti leikur
okkar er gegn Akureyri á útivelli.
Akureyri hefur spilað mjög vel á
tímabilinu og það verður erfitt en
skemmtilegt verkefni að reyna að
sækja tvö stig þangað,“ sagði
Óskar að lokum.
Valsmenn styrktu stöðu sína á toppi DHL-deildar karla með sigri á Haukum, 30-
29, í æsispennandi leik. Sigurmarkið kom þegar nokkrar sekúndur voru eftir.
„Það er einfaldlega
töluverður getumunur á þessum
liðum. FH hefur verið að missa
leikmenn, tvær sem hafa skipt um
félag og aðrar tvær sem eru
meiddar. Þær mega ekki við því og
það kom bersýnilega í ljós í þess-
um leik,“ sagði Einar Jónsson,
þjálfari Haukastúlkna, eftir að
hans lið vann öruggan tíu marka
sigur gegn FH á heimavelli í Hafn-
arfjarðarslag í DHL-deild kvenna
í gær.
„Landsliðsmarkvörðurinn í fót-
bolta var að draga vagninn hjá
þeim allan leikinn. Styrkur FH
felst í henni og hún er sterk í vörn-
inni en liðið vantar klárlega meiri
breidd. Hins vegar er þetta mikil-
vægur sigur hjá okkur og við verð-
um að klára svona leiki til að vera
með í slagnum þarna uppi. Það er
þó ljóst að við þurfum líka að fara
að vinna eitthvað af þessum liðum
sem eru í þessum pakka, við höfum
tapað fyrir þeim öllum þremur.
Nú kemur langt frí og ég held að
mitt lið muni mæta ferskt eftir
áramót,“ sagði Einar.
Leikurinn í gær var eiginlega
aldrei spennandi, Haukastúlkur
náðu snemma góðri forystu og
höfðu leikinn í hendi sér allan tím-
ann eftir það. Þær léku leikinn af
miklu öryggi og enginn einn leik-
maður sem stóð upp úr heldur var
liðið mjög jafnt. Staðan var 15-12 í
hálfleik og í seinni hálfleik juku
Haukastúlkur forskot sitt og unnu
33-23.
Eins og Einar sagði átti Þóra B.
Helgadóttir mjög góðan leik í liði
FH en hún var besti leikmaður
liðsins ásamt Ástu Björk Ragnars-
dóttur sem skoraði tíu mörk. FH
er aðeins með þrjú stig í næst-
neðsta sæti eftir tíu fyrstu leikina
en Haukar halda áfram að elta
efstu lið og hafa hlotið tólf stig.
Eftir leikina í dag verður síðan
gert hlé á deildarkeppninni þar til
í byrjun janúar.
Haukar betri á öllum sviðum
Íslandsmeistaramótið í sundi
hélt áfram í gær og það var ekkert
lát á Íslandsmetunum. Þrjú
Íslandsmet voru sett í gær og eitt
drengjamet.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir úr
Sundfélaginu Ægi setti nýtt
Íslandsmet í 50 metra flugsundi
og Kolbrún var einnig í kvenna-
sveit Ægis sem setti nýtt Íslands-
met í 4 sinnum 50 metra fjórsundi,
en með henni í sveitinni voru þær
Anja Ríkey Jakobsdóttir, Sif Jóns-
dóttir og Ásbjörg Gústafsdóttir.
Karlasveit ÍRB setti einnig
Íslandsmet í 4 sinnum 50 metra
fjórsundi en sveitina skipa þeir
Davíð Aðalsteinsson, Guðni Emils-
son, Hjalti Oddsson og Birkir
Jónsson. Sunddeild Hafnarfjarðar
náði þó besta tímanum en í liðinu
er einn Serbi og því fékkst tíminn
ekki skráður sem Íslandsmet.
Þá bætti Gunnar Örn Arnars-
son drengjametið í 400 metra fjór-
sundi.
Þrjú Íslandsmet í gær