Fréttablaðið - 19.11.2006, Qupperneq 80
B
irgir Leifur Hafþórs-
son braut blað í
íþróttasögu landsins
er hann varð fyrsti
karlkylfingur lands-
ins til að tryggja sér
þátttökurétt á Evrópumótaröðinni
í golfi. Það gerði hann í vikunni
með því að lenda meðal þrjátíu
efstu á þriðja og lokastigi úrtöku-
mótaraðarinnar. Alls hófu á níu
hundrað keppendur leik í þessu
ferli og því mikið afrek að komast
í hóp efstu manna.
Þetta var þó ekki fyrsta tilraun
Birgis Leifs við úrtökumótin en
hann hefur undanfarinn áratuginn
tekið þátt í þessum mótum. Í
sumar keppti hann á Áskorenda-
mótaröðinni og varð þar í 85. sæti
á tekjulistanum. Það gefur auga-
leið að sú mótaröð sem hann tekur
þátt í næsta sumar verður enn erf-
iðari en hann er hvergi banginn og
stefnir hátt í hverju móti.
„Ég var nokkuð viss um að
þetta væri komið þegar síðasta
púttið datt hjá mér. Það var gríð-
arlega ánægjuleg tilfinning,“
sagði hann við Fréttablaðið. Loka-
hringurinn hans var lýsandi fyrir
Birgir Leif, mikið um hæðir og
lægðir og allt afar dramatískt. Á
endanum var það fugl á 16. braut
sem gerði útslagið.
„Ég ætlaði mér alltaf áfram og
eftir næstsíðasta keppnisdaginn
æfði ég til að mynda í tvo og hálf-
an tíma eftir að ég kláraði hring-
inn. Ég gerði mér góða grein fyrir
því að tækifærið væri núna og ég
þyrfti að nýta það. Ég varð að
treysta því sem ég var að gera
enda tuðaði ég í sjálfum mér allan
þennan tíma um að hafa trú á sjálf-
um mér.“
Þegar niðurstaðan varð ljós segir
Birgir Leifur að ákveðið spennu-
fall hafi átt sér stað. „Ég svaf
ágætlega í nótt en það var reyndar
svolítið skrítin tilfinning sem
gerði vart við sig. Síðustu holurn-
ar runnu saman í huganum og fór
ég yfir þær aftur og aftur. En þetta
var afar notaleg tilfinning og
virkilega gaman. Þetta er vitan-
lega langþráð markmið og draum-
ur sem nú er orðinn að veruleika
að vera kominn inn á mótaröðina.
Það mun sjálfsagt líða einhver
tími þar til maður áttar sig fylli-
lega á þessu.“
Margir sterkir kylfingar tóku þátt
í mótinu á Spáni, til að mynda kylf-
ingar sem hafa keppt í Ryder Cup-
keppninni og unnið sterk mót
beggja vegna Atlantshafsins.
„Margir þeirra segja að þetta mót
sé engu líkt enda sé svo ótrúlega
mikið í húfi.“
Bigir Leifur fór ekki varhluta
af því en allan síðasta keppnisdag-
inn leit lengst af út fyrir að þetta
ætlaði ekki að hafast í þetta sinn.
Sér í lagi þegar hann fékk skolla á
15. braut og skaut sér þar með úr
hópi þeirra þrjátíu efstu.
„Það fyrsta og eina sem ég
hugsaði á þeim tímapunkti var að
ég yrði bara að fá fugl. Ég bara
hreinlega ætlaði mér að fá
„birdie“. Kannski hér áður fyrr
hefði maður farið að svekkja sig á
því að maður myndi missa af
þessu enn eitt árið en munurinn er
nú sá að ég hef unnið mikið í því að
temja mér jákvætt viðhorf og
halda mér í núinu. Það verður bara
að gleymast það sem er búið og
gert enda ekki hægt að breyta
því.“
Sem fyrr segir hefur Birgir
Leifur margoft keppt á álíka
mótum og segir hann að það sé
aldrei hægt að venjast spennunni
fyllilega. „Aðalmálið er að læra
inn á sjálfan þig. Í golfinu er
maður fyrst og fremst að slást við
sjálfan sig og sínar hugsanir. Það
er mikill dauður tími á milli högga
og þá getur ýmislegt skotist upp í
hugann eftir léleg högg. Það er því
mikilvægt að bregðast rétt við og
það lærist með reynslunni.
Hann segir að draumur sinn
um að komast á stóra mótaröð eigi
rætur sínar að rekja langt aftur í
tímann. „Ég man þegar ég var
fimmtán ára gamall að horfa á
Ryder Cup-keppnina á Belfry-
vellinum í sjónvarpi. Þá fór ég
fyrst að láta mig dreyma um þetta.
En svo varð þetta að hluta til að
veruleika árið 1997 þegar ég gerð-
ist atvinnumaður í golfi. Þá var
stofnað hlutafélag í kringum þetta
ævintýri og þá byrjaði ballið.“
Hann hefur þó unnið ýmsar aðra
vinnu samhliða golfinu á þessum
tíma. „Það er óhætt að segja að
það hefur gengið á ýmsu þessi ár.
En með því að flytja hingað út tók
ég skrefið til fulls og ákvað að
hella mér af fullum krafti í þetta.
Ég gerði það líka mín fyrstu ár í
þessu en þá vissi ég ef til vill ekki
alveg út í hvað ég væri að fara. En
ætli reynslan sé ekki að skila sínu
núna.“
Birgir Leifur er þrítugur og
segir sjálfur að hann telji sig geta
bætt sig enn frekar. „Margir segja
að kylfingar eiga sín bestu ár eftir
þrítugsaldurinn og komist á það
sem er stundum kallað skynsömu
árin. Ég tel mig í dag vera miklu
betri en ég var fyrir þremur árum
enda tók ég ákvörðun þá um að
kúvenda mínum leik. Ég sá að ég
var ekki alveg nógu góður og
þurfti að vinna vel í mínum leik.
Ég er að uppskera það í dag.“
Aðspurður segist hann aldrei
hafa misst trúna á sjálfum sér.
„Annars væri ég ekki í þessu. Það
er svo einfalt. Ég hef alla tíð haft
trú á því að ég eigi heima í þessum
hópi og gæti komið mér í hann.
Annars væri ég löngu hættur. Og
nú þegar þetta er loksins komið er
það afar sæt og góð tilfinning að
fá staðfestingu á því.“
Birgir Leifur Hafþórsson yfirsteig mikla hindrun
er honum tókst að vinna sér þátttökurétt á Evrópu-
mótaröðinni næsta árið á lokaúrtökumótinu sem
fór fram á Spáni í vikunni. Var það tíunda tilraun
hans til að komast inn á þessa sterku mótaröð og
nú er markmiðinu loksins náð. Eiríkur Stefán Ás-
geirsson ræddi við hann af þessu tilefni.
Eiginkona Birgis Leifs Hafþórs-
sonar heitir Elísabet Halldórs-
dóttir og hefur stutt dyggilega
við sinn mann. Í ófá skipti hefur
hún dregið kylfurnar fyrir hann
á mótum en fyrst og
fremst sýnt honum
þann andlega
stuðning sem
hann þarf.
„Þegar illa
gengur reyni ég
að skipta um
umræðuefni og
tala um eitt-
hvað
skemmti-
legra. Það
fylgir
þessari
íþrótt
mikil sál-
fræði
og þarf
ég að
passa mig á öllu sem ég
segi. Stundum hef ég
misst eitthvað út úr
mér sem hefur verið
algerlega út í hött.
En hann fyrirgefur
mér það fljótt. Þetta
getur stundum verið
flókið en það hefur
tekið mig átta ár
að læra
almenni-
lega inn á
þetta,“
segir
hún og
hlær.
Birg-
ir Leifur
og Elísa-
bet búa í
Lúxem-
borg með
tveimur
börnum
sínum, Inga Rúnari (6 ára) og
Birgittu Sóleyju (2ja ára). Þau
ákváðu að hella sér af fullum
krafti í golfið og flytja til megin-
landsins þar sem Birgir Leifur
gæti einbeitt sér að íþrótt sinni af
fullum krafi. „Í upphafi ákváðum
við að gefa okkur þrjú ár í þetta og
er það frábært að ná þessum
árangri strax á fyrsta árinu. Það
segir mikið um hversu vel okkur
líður hér úti. Hér fáum við mikinn
og góðan stuðning, sér í lagi frá
KB banka þar sem við höfum
kynnst mörgu góðu fólki. Það er
mikilvægt upp á fjölskyldulífið að
gera og hefur hjálpað okkur
mikið,“ sagði Elísabet en KB banki
er helsti styrktaraðili Birgis
Leifs.
Elísabet hefur sem fyrr segir
fylgt Birgi Leifi á nokkur mót og í
önnur skipti farið bara um helgar.
Hún segir það hjálpa Birgi Leifi
mikið að fjölskyldan sé skammt
undan. „Oft þegar illa gengur er
nóg að krakkarnir tali við pabba
sinn í símann og þá lifnar fljótt
yfir honum aftur. Sjálf hef ég allt-
af verið róleg yfir þessu stressi
sem fylgir íþróttinni og sér í lagi
síðustu ár. Ég neita því þó ekki að
þessa síðustu tvo daga á mótinu í
vikunni átti ég mjög erfitt með
sjálfa mig. Ég gat ekkert borðað
og þráðurinn var orðinn mjög
stuttur á tímabili.“
Hún býst við þó nokkrum breyt-
ingum á næsta keppnistímabili þar
sem Birgir Leifur mun fyrst og
fremst keppa á mótum á Evrópu-
mótaröðinni. „Öll aðstaða á þess-
um mótum er mun betri en á
Áskorendamótunum. Það verður
auðveldara fyrir okkur að fara
með þar sem það er beinlínis gert
ráð fyrir börnum á þessari móta-
röð. Þá hittast eiginkonur kylfing-
anna mikið auk þess sem allt skipu-
lag er einfaldlega mun betra.“
Gat ekki borðað síðustu tvo keppnisdagana