Fréttablaðið - 19.11.2006, Qupperneq 81
Enska úrvalsdeildin:
Þýska úrvalsdeildin:
„Þetta var erfiður leikur,
þeir skoruðu snemma og reyndu
allt til að hanga á því marki. Við
náðum samt að skapa fjölda færa
og það var mjög mikilvægt að ná
jöfnunarmarkinu fyrir hálfleik.
Það gaf liðinu aukið sjálfstraust
og að mínu mati spiluðum við vel
og hefðum átt að skora fleiri
mörk,“ sagði Sir Alex Ferguson,
knattspyrnustjóri Manchester
United, eftir að hans menn unnu
Sheffield United 2-1 á útivelli og
halda því þriggja stiga forskoti á
toppi deildarinnar.
Sheffield United komst yfir en
Wayne Rooney var í banastuði og
skoraði tvö mörk fyrir Manchest-
er United, sigurmarkið þegar
stundarfjórðungur var eftir af
leiknum. „Hann var alveg frábær,
klárlega leikmaður í hæsta gæða-
flokki,“ sagði Ferguson. Cristiano
Ronaldo skaut í þverslána og mis-
notaði sannkallað dauðafæri til að
skora þriðja mark United í leikn-
um. Chelsea er í öðru sæti en tvö
efstu liðin mætast einmitt um
næstu helgi. Í gær vann Chelsea
heimasigur á West Ham 1-0 en
það var Geremi af öllum mönnum
sem skoraði eina mark leiksins,
hans fyrsta mark í eitt ár.
„Þetta var ásættanleg frammi-
staða vegna þess að við vorum að
leika gegn mjög góðu liði. Ef
maður sér þau gæði sem leik-
menn liðsins og knattspyrnustjóri
búa yfir þá tel ég það ekki eiga
skilið að vera á þessum stað í
deildinni. Við misnotuðum færi
til að gera út um leikinn en á
heildina séð þá réðum við ferð-
inni og eigum þessi þrjú stig skil-
in. Geremi stóð sig vel og hann er
alltaf að skora svona mörk á
æfingum,“ sagði José Mourinho,
stjóri Chelsea. Alan Pardew,
stjóri West Ham, sagði eftir leik-
inn að Chelsea væri klárlega eitt
besta varnarlið Evrópu í dag.
Arsenal er nú níu stigum á
eftir Chelsea en í gær gerði liðið
aðeins 1-1 jafntefli gegn New-
castle. Kieron Dyer sneri aftur
eftir sjö mánaða fjarveru vegna
meiðsla og kom Newcastle yfir
eftir hálftíma leik en Thierry
Henry jafnaði beint úr auka-
spyrnu þegar tuttugu mínútur
voru til leiksloka. „Dyer var frá-
bær og sama má segja um Shay
Given í markinu sem kom í lið
okkar eftir meiðsli. Við höfðum
trú á því að við gætum náð góðum
úrslitum í þessum leik og það
varð staðreyndin. Við vörðumst
vel og ég er ánægður,“ sagði
Roeder.
Ófarir Liverpool halda áfram
en liðið gerði markalaust jafntefli
gegn Middlesbrough í tilþrifalitl-
um leik í gær. Liverpool hefur
aðeins fengið tvö stig úr sjö úti-
leikjum sínum á tímabilinu og
aðeins skorað eitt mark í þeim
leikjum en það kom úr vítaspyrnu
gegn Sheffield United.
Manchester United heldur þriggja stiga forystu sinni í ensku úrvalsdeildinni.
Chelsea vann einnig en Arsenal gerði aðeins jafntefli gegn Newcastle.
Fabio Cannavaro, fyrir-
liði ítalska landsliðsins, hefur
verið valinn besti knattspyrnu-
maður Evrópu 2007 en það er
tímaritið France Football sem
stendur fyrir kjörinu. Cannavaro
leiddi Ítalíu til sigurs á heims-
meistaramótinu sem fram fór í
Þýskalandi í sumar en hann lék
frábærlega á mótinu. Hann er nú
leikmaður hjá spænska stórliðinu
Real Madrid en það var forseti
félagsins, Ramon Calderon, sem
ljóstraði því upp í gær að
Cannavaro hefði unnið verðlaun-
in. Það verður þó ekki tilkynnt
opinberlega fyrr en 27. nóvember.
Cannavaro er 33 ára en hann
er einn fárra varnarmanna sem
hafa unnið þessi verðlaun. Hann
er fjórði ítalski knattspyrnumað-
urinn sem hlýtur titilinn en áður
voru það Gianni Rivera, Paolo
Rossi og Roberto Baggio sem
valdir voru bestu knattspyrnu-
menn Evrópu. Ronaldinho hlaut
verðlaunin í fyrra.
Cannavaro fær
verðlaunin