Fréttablaðið - 19.11.2006, Qupperneq 82
Í gær fór fram formanna-
fundur KSÍ þar sem allir formenn
aðildarfélaga KSÍ voru velkomnir.
Meðal þess sem rætt var á fundin-
um voru tillögur KSÍ um breyt-
ingu á Íslandsmótinu í knatt-
spyrnu sem eiga að taka gildi árið
2010.
Í stórum dráttum felur tillagan
í sér þær breytingar að leiknar
verða þrjár umferðir og tímabilið
því lengt í báða enda. Engin niður-
staða var ákveðin á þessum fundi
enda þarf að kjósa um þessar
breytingar á þingi KSÍ sem fram
fer í febrúar á næsta ári. Ljóst er
þó eftir þennan fund að umræðan
er komin af stað en það eru skipt-
ar skoðanir á þessum breytingum
hjá formönnum félaganna sem nú
eru í Landsbankadeildinni.
Einnig var leikjaniðurröðun
næsta tímabils ákveðin bæði í
Landsbankadeild karla og kvenna.
Það er margir athyglisverðir leik-
ir á dagskrá og má þar nefna að
hjá körlunum faraÍslandsmeistar-
ar FH uppá skaga og mæta ÍA í
fyrstu umferð deildarinnar og
Reykjavíkur félögin Valur og
Fram mætast á Hlíðarenda þar
sem Helgi Sigurðsson mætir
sínum gömlu félögum. Liðin sem
mættust í bikarúrslitum í haust,
KR og Keflavík, mætast á heima-
velli KR-inga í fyrstu umferðinni.
Íslandsmeistarar Vals í kvenna-
flokki hefja titilvörn sína á heima-
velli gegn Keflvíkingum og nýlið-
ar ÍR fá Breiðablik í heimsókn í
Breiðholtið.
FH mætir ÍA í fyrstu umferð
SENDU SMS SKEYTIÐ
JA VTF Á NÚMERIÐ
1900 OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
Vinningar eru bíómiðar, tölvuleikir
DVD myndir og margt fleira
V
in
n
in
g
ar
v
er
ða
a
fh
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
Udo Erasmus er alþjóðlegt nafn í umræðunni um Omega-3 fitusýrur, kólesteról,
meltingu og almennt heilbrigði. Hann er í hópi helstu næringarfræðinga heims og
keppast vísindamenn um að vitna í rannsóknir hans. Einna þekktastur er hann fyrir
framlag sitt og þróun á Omega fitusýrum. Hann hefur ritað fjölda greina og bóka
um þessi viðfangsefni. Þekktastur er hann fyrir bókina: „Fats that Heal Fats that Kills“
Hjartasjúkdómar og of há blóðfita - Ein helsta meinsemd samtímans?
Udo Erasmus heldur fyrirlestur á
Grand hótel Reykjavík 28. nóvember
kl. 10:00 - 12:00 fyrir fagfólk
og kl.19:30 - 22:00 fyrir áhugafólk.
Þetta er fyrirlestur fyrir alla þá sem glíma
við of háa blóðfitu, þá sem er umhugað um
meltingarstarfsemi sína og alls áhuga- og
fagfólks um þessi málefni.
Nánari upplýsingar hjá Heilsu í síma 533 3232
eða heilsa@heilsa.is
Þú færð Udo‘s Choice í Heilsuhúsinu, Lyfju og flestum heilsubúðum
Grótta tók í gær á móti
Fram í DHL-deild kvenna í hand-
bolta. Fyrir leikinn var Grótta
talið sigurstranglegra enda liðið í
öðru sæti deildarinnar og líklegt
til að berjast um sigurinn í deild-
inni í vetur. Fram veitti þó heima-
mönnum harða keppni og stóð vel
í Gróttu í fyrri hálfleik. Það dugði
þó ekki til því lokatölur urðu 25-
19, Gróttu í vil.
Leikmenn beggja liða voru
lengi í gang í gær og fyrsta mark
leiksins kom ekki fyrr en tæpar
sex mínútur voru liðnar af leikn-
um þegar Eva Margrét Kristins-
dóttir kom Gróttu yfir en fram að
því höfðu bæði lið farið illa með
mörg góð færi.
Það var mikið jafnræði með lið-
unum í fyrri hálfleiknum og aðal-
menn vallarins voru ef til vill dóm-
ararnir, þeir Magnús Björnsson og
Júlíus Sigurjónsson, sem oft og
tíðum sýndu athyglisverða dóma
og voru á kafla við það að missa
leikinn úr höndum sér.
Staðan þegar flautað var til
leikhlés var 11-10 fyrir Gróttu og
allt í járnum.
Það var sama jafnræði með lið-
unum í upphafi síðari hálfleiks og
var í lok þess síðari. En með bætt-
um varnarleik og hraðaupphlaup-
um í kjölfarið sigu Gróttustúlkur
smátt og smátt fram úr gestunum.
Framstúlkur fundu fáar smugur
á vörn Gróttu en það var helst
Hekla Daðadóttir sem skoraði
mörkin fyrir Fram í síðari hálfleik
með skotum fyrir utan punkta-
línu.
Líkt og gegn Val á dögunum þá
náðu Framstúlkur ekki að fylgja
eftir góðum fyrri hálfleik og fyrir
vikið fór Grótta með sigur af
hólmi, 25-19.
„Mér fannst þetta mjög góður
leikur. Við spiluðum hörkuvörn í
fimmtíu mínútur. Við gáfum þeim
stundum nokkur aulamörk en við
spiluðum í heildina góða vörn. Mér
fannst líka sóknin hraðari núna en
hún hefur verið hjá okkur og ég
var bara mjög ánægður með þenn-
an leik,“ sagði Alfreð Finnsson,
þjálfari Gróttu, og bætti því við að
hann væri mjög ánægður að hafa
unnið sterkt lið Framara þrisvar á
þessu tímabili.
„Þetta var bara ekki að ganga í
síðari hálfleik. Við eigum eftir að
stilla strengina betur saman. Þetta
er ekki sama lið og vorum með í
haust,“ sagði Magnús Jónsson,
þjálfari Fram, eftir leikinn í gær.
Gróttustúlkur höfðu betur gegn Fram í góðum handboltaleik í gær. Fram lék
vel í fyrri hálfleik og náði ekki að halda út og því fóru heimamenn með sigur.
Nú er ljóst að Thiago
Motta, miðjumaður og félagi Eiðs
Smára hjá Barcelona, getur
leikið með liðinu gegn Real
Mallorca í dag eftir að aganefnd
spænska knattspyrnusambands-
ins dró eins leiks bann leik-
mannsins til baka.
Motta fékk eins leiks bann
fyrir rauða spjaldið sem hann
hlaut í leik Barcelona og Real
Zaragoza um síðustu helgi. Motta
fékk rautt spjald fyrir litlar
sakir, en hönd Motta rétt kom við
bringuna á Diego Milito sem féll
í völlinn og hélt um andlit sér.
Motta fékk
bannið ógilt
Nwankwo Kanu lýsti því
yfir á dögunum að hann hafi mik-
inn áhuga á að fara aftur til holl-
enska liðsins Ajax frá Amster-
dam. Búist er við að þessi
yfirlýsing leikmannsins muni
ergja Harry Redknapp, stjóra
Portsmouth, en Kanu er marka-
hæsti leikmaður liðsins á þessari
leiktíð.
Óhætt er að segja að Kanu hafi
hlotið endurnýjun lífdaga eftir að
hann gekk í raðir Portsmouth fyrir
tímabilið. Kanu náði sér ekki á
strik með West Bromwich Albion
síðasta vetur en hefur nú skorað
sjö mörk í tíu leikjum fyrir Ports-
mouth á þessari leiktíð. Þrátt fyrir
þetta gengi virðist Kanu hafa mik-
inn áhuga á að fara til Ajax.
„Rætur mínar eru hjá Ajax. Þar
óx ég úr grasi og mig langar mikið
að fara þangað aftur. Edgar Dav-
ids hefur líka sagt að hann langi
þangað aftur og við getum átt
góðan tíma þar saman.
Ef Ajax er til í að fá okkur þá
væri ég tilbúinn. Ég myndi fara
með fjölskylduna mína með næstu
vél til Amsterdam, ég þekki borg-
ina mjög vel. Ég á marga vini þar
og lögfræðingurinn minn er þar
líka. Ég fylgist vel með Ajax og þó
að liðið sé breytt þá eru stuðnings-
mennirnir enn þeir sömu. Ég var
ánægður í Amsterdam, ánægður
með borgina, ánægður með félag-
ið og ánægður með vinum mínum,“
sagði Kanu í viðtali við Daily
Express.
Ajax er uppeldisfélag Nígeríu-
mannsins og hann vann m.a. Meist-
aradeild Evrópu með félaginu.
Kanu saknar Ajax