Fréttablaðið - 19.11.2006, Page 86
Viðkvæmni er helsti veikleikinn
„Hvaaaa, neineineineineinei … ég
verð ekki fullur. Geri allt svona
sóber,“ segir Pétur Jóhann Sigfús-
son. Hann mun standa í eldlínunni í
kvöld ásamt Ragnhildi Steinunni
þegar þau verða kynnar í því sem
hlýtur að teljast einn hápunkta
samkvæmislífsins í henni Reykja-
vík.
Í kvöld verða Edduverðlaunin
afhent í 8. skipti með pomp og
prakt. Galadress og kjólföt. Sem
aðalkynnar feta þau Ragnhildur
Steinunn og Pétur í fótspor helstu
og glæsilegustu sjónvarpsstjarna,
leikara og skemmtikrafta landsins.
Aðalkynnar hafa verið frá upphafi
þessir:
Aðalkynnar: Þorfinnur Ómars-
son, Steinunn Ólína og Jón Ársæll,
svo Valgeir Guðjónsson og Edda
Heiðrún Backman, þá Logi Berg-
mann og Valgerður Matthíasdóttir,
Kristján Kristjánsson og Helga
Braga, Eva María og Sveppi og nú
allra síðast var Þorsteinn Guð-
mundsson.
Sé litið á þennan fína hóp má sjá
skýrar línur. Glæsileikinn í fyrir-
rúmi og kryddað með fíflalátum.
Reyndar var Pétur Jóhann ekkert
búinn að leggja neinar línur þegar
Fréttablaðið náði af honum tali.
„Við flippum eitthvað.“
Hann er reyndar í sérkennilegri
stöðu því Pétur Jóhann er tilnefnd-
ur í tveimur flokkum sjálfur. Í
„Leikið sjónvarpsefni“ fyrir Stelp-
urnar og í „Skemmtiþætti ársins“
fyrir Strákana. Hann segist þó ætla
að gæta þess að vera ekki hlut-
drægur sem kynnir. En þessi
kynnavinna þýðir það að hann getur
ekki slakað á og fagnað úti í sal –
fari svo að hann vinni. Eða ekki.
Ragnhildur Steinunn er
hins vegar ekki í nokkrum
vafa um að kvöldið verður
Péturs.
„Já, svo gæti hann
fengið verðlaun sem vin-
sælasti sjónvarpsmaður-
inn. Þetta gæti heldur
betur orðið kvöldið hans Péturs.
Reyndar er það svo að þar sem
hann mætir, þá og þar er kvöldið
hans. Pétur Jóhann fer ekki fram
hjá manni þar sem hann er,“ segir
Ragnhildur Steinunn.
Kvöldið leggst vel í hana en hún
dregur ekki á það dul, þegar for-
verar hennar í Eddukynningum
eru þuldir upp.
„Þá fær maður nettan
sting í magann, hvort
maður eigi heima
þarna. En þetta er
sannkallaður heiður
að fá að kynna Edd-
una. Og að vinna
með Pétri er alveg
frábært. Það
hefur geng-
ið mjög
vel. Mér líst vel á þetta þar til annað
kemur í ljós.“
Að sögn Ragnhildar Steinunnar
ætla þau kynnaparið ekki að skrifa
brandarana. Enda komi það ævin-
lega hallærislega út. Þau búa að
hvatvísum Pétri auk þess sem þau
hafa hist og látið reyna á stemning-
una sín á milli.
„Já, og skrifað niður einhverja
punkta. Annars erum við ekki aðal-
atriði kvöldsins heldur bara að
kynna hvað sé næst á dagskrá.
Gerum það af látleysi og von-
andi skemmtilega.”
… fær Gísli Jóhannsson sem lét
gamlan draum rætast, fetaði í
fótspor Johnny Cash og flutti til
Nashville, þar sem kántrítónlist
hans hefur strax vakið athygli.
Þeir Davíð Óskar Ólafs-
son, Hreinn Beck og
Árni Filippusson vinna
nú að verkefni sem þeir
kalla Painting Love,
ásamt Dananum Bjarke
von Koning. „Við förum
til tólf borga, stillum
upp trönum og striga og
biðjum vegfarendur
um að mála ást,“
útskýrði Davíð.
Hugmyndin er
sprottin úr ástarsorg
Bjarke. „Við þekkjumst
frá því að við vorum
saman í kvikmynda-
skóla í Kaupmannahöfn
og þróuðum hugmyndina
í sameiningu. Ætlunin er
að búa til dagatal, og
selja svo myndirnar tólf á uppboði
til styrktar Lækna án landamæra.
Svo tökum við upp og erum með ljós-
myndara á svæðinu,“ sagði Davíð,
en þeir íhuga nú að
gefa einnig út bók.
„Það er eins og við
náum einhvern veg-
inn til fólks í gegnum
þetta. Það var til
dæmis stelpa í Kaup-
mannahöfn sem mál-
aði hauskúpu á
strigann. Bjarke
spurði hana út í það,
og þá brotnaði hún
saman og sagði frá
því að hún hefði
nýlega misst fyrstu
ástina sína úr krabba-
meini. Þess vegna sá
hún ástina í þessu
ljósi,“ sagði Davíð.
Þeir félagar eru nú
hálfnaðir með verk-
efnið, en á mánudag verða þeir
staddir í Smáralindinni þar sem veg-
farendum gefst kostur á að mála ást-
ina.
Biðja vegfarendur að mála ást
V
in
n
in
g
ar
ve
rð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d
. K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
DÝRIN TAKA VÖLDIN!
MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI!
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR,
DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS JA OSF Á 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA
FARÐU ÁMYNDINASPILAÐULEIKINN!
11.
HVERVINNUR!