Fréttablaðið - 20.11.2006, Blaðsíða 6
Miele þvottavélar
Íslenskt stjórnborð
Ný og betri tromla
Verð frá kr. 114.800
-hreinn sparnaður
1.
verðlaun
í Þýskalandi
W2241WPS
Alls 52 björgunarsveitar-
menn sinntu um 200 verkefnum á
höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt
sunnudagsins og í gærdag. Mikil
snjóþyngsli voru á götum borgar-
innar. Langflest útköllin voru
vegna þess að fólk hafði fest bíla
sína í snjónum, en björgunarsveit-
armennirnir aðstoðuðu einnig
starfsfólk á heilbrigðisstofnunum
sem gekk erfiðlega að komast til
vinnu sinnar í gærmorgun.
Að sögn Ólafar Snæhólm, upp-
lýsingafulltrúa Slysavarnarfé-
lagsins Landsbjargar, voru fyrstu
útköllin um klukkan fimm um
nóttina og um fjórum tímum síðar
höfðu björgunarveitarmenn sinnt
rúmlega 120 verkefnum. Björgun-
arsveitirnar héldu áfram að sinna
útköllum fram eftir degi, þótt
færð hafi skánað þegar líða tók á
daginn. Björgunarsveitarmenn-
irnir luku störfum sínum um
klukkan hálffimm í gærdag.
Kristín Hermannsdóttir, veður-
fræðingur hjá Veðurstofu Íslands,
segir að snjókoman sem gekk yfir
Faxaflóasvæðið í fyrrinótt hafi
byrjað um klukkan tvö um nóttina
í Reykjavík en verið gengin yfir
um klukkan sjö. Snjókoman náði
ekki mikið austar en að Hvera-
gerði. Kristín segir að snjókomu-
bakki hafi gengið hægt yfir svæð-
ið frá Snæfellsnesi til Reykjaness
og það hafi snjóað mjög mikið úr
honum á skömmum tíma. Um
hádegisbilið var snjókomubakk-
inn genginn endanlega yfir Suður-
nesin og færðist út á miðin vestur
af landinu að sögn Kristínar.
Vegna snjókomunnar átti fólk
sem var statt í miðbæ Reykjavík-
ur aðfaranótt sunnudagsins erfitt
með að komast heim til sín því fáir
leigubílar voru á ferli vegna
ófærðarinnar. Um klukkan fimm
brá lögreglan í Reykjavík á það
ráð að kalla eftir aðstoð Strætós
bs., svo fólk sem var í leigubíla-
röðinni í Lækjargötu þyrfti ekki
að bíða eftir leigubílum úti í snjó-
komunni. Fljótlega áttaði lögregl-
an sig á því að ekki væru nægilega
margir leigubílar í miðbænum til
að koma öllu fólkinu til síns heima,
og voru um 150 einstaklingar
keyrðir heim í þremur strætis-
vögnum. Um klukkan níu í gær-
morgun var lokið við að ferja fólk-
ið heim.
Gærdagurinn var erilssamur
hjá lögreglunni í Reykjavík því
tilkynnt var um 26 umferðar-
óhöpp. Mikil ófærð var víða í
borginni, sérstaklega í úthverfum
og í íbúðargötum; margir bílar
sátu til dæmis fastir í snjónum á
Víkurvegi í Grafarvogi eftir
hádegi í gær.
Vandræði í borginni
vegna snjóþyngsla
Björgunarsveitarmenn sinntu um 200 verkefnum aðfaranótt sunnudags og í
gærdag. Lögreglan þurfti að óska eftir aðstoð Strætós bs. til að ferja fólk heim
úr miðbæ Reykjavíkur. Mikil ófærð var víða á höfuðborgarsvæðinu.
Starfsmenn Reykja-
víkurborgar og Vegagerðarinnar
unnu sleitulaust við snjóruðning í
höfuðborginni og nágrenni henn-
ar í gær. Nánast ófært var í borg-
inni í gærmorgun og nokkuð um
yfirgefna bíla í vegköntum þar
sem bílstjórar höfðu gefist upp á
akstrinum.
„Þetta hefur gengið þokkalega,
það var erfiðast í morgun vegna
skafrenningsins en staðan var
sæmileg þegar við hættum í gær-
kvöldi,“ segir Guðni Hannesson,
verkstjóri hjá framkvæmdasviði
Reykjavíkurborgar. „Við höldum
áfram í dag og reynum að ryðja
þær húsgötur sem við náðum ekki
að ryðja í gær.“ Hann segir Graf-
arvog, Grafarholt og Norðlinga-
holt hafa orðið einna verst úti af
hverfum höfuðborgarsvæðisins.
„Ruðningur á okkar vegum
hefur gengið vel, við erum ekki
með nema lítinn hluta af götum í
kringum borgina,“ segir Hjálmar
Haraldsson, vaktmaður hjá Vega-
gerðinni, en Vegagerðin sér um að
ryðja götur til Keflavíkur og Hval-
fjarðarganga ásamt Miklubraut og
Hafnarfjarðarvegi. „Við höfum
ekki orðið mikið varir við fólk í
vandræðum, það var þá helst í
gærmorgun þegar göturnar voru
verstar. Þær eru að mestu leyti
orðnar hálkulausar núna.“
Yfirgefnir bílar í vegköntum í borginni
Er jólaundirbúningurinn hafinn
á þínu heimili?
Festirðu bílinn þinn í ófærðinni
um helgina?
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI