Fréttablaðið - 20.11.2006, Side 64
Hefur hækkað um átta hundruð sæti á árinu
Knattspyrnuþjálfara-
félag Íslands hélt á laugardaginn
aðalfund sinn í Smáranum, félags-
heimili Breiðabliks. Venja er að
velja þjálfara ársins í meistara-
flokki karla og kvenna á þessum
fundum og í ár voru það Ólafur
Jóhannesson, þjálfari FH í
karlaflokki, og Elísabet Gunnars-
dóttir, þjálfari kvennaliðs Vals,
sem fengu þessi verðlaun.
Einnig voru veittar viðurkenn-
ingar fyrir vel unnin störf í
þjálfun yngri flokka. Þau sem
fengu viðurkenningu í þeim
flokki voru Ingvar Gísli Jónsson,
þjálfari hjá FH, Páll Viðar
Gíslason hjá Þór á Akureyri og
Ásdís Hrönn Viðarsdóttir hjá Ægi
í Þorlákshöfn.
Stjórn félagsins var endurkjör-
in á fundinum en Sigurður Þórir
Þorsteinsson hefur gegnt starfi
formanns undanfarin átta ár.
Ólafur og Elísa-
bet valin best
Roger Federer sýndi og
sannaði að hann er fremsti
tennisspilari veraldar þegar hann
rúllaði yfir James Blake í
úrslitum á stórmeistaramóti sem
fram fór í Sjanghæ. Úrslitaleik-
urinn var í gær og þar vann
Federer öruggan sigur í þremur
settum, 6-0, 6-3 og 6-4.
Blake lýsti þessum leik sem
svo að hann hafi fengið kennslu-
stund í tennis en Federer lék
feikilega vel allan leikinn.
Federer tapaði úrslitaleiknum á
þessu móti fyrir ári síðan og var
greinilega staðráðinn í að láta það
ekki endurtaka sig. Hann sýndi
algjöra yfirburði í fyrsta settinu
og það eina sem Blake gat gert
var að horfa til himins og biðja
æðri máttarvöld um aðstoð.
Federer sigraði
í Sjanghæ
Padraig Harrington frá
Írlandi bar sigur úr býtum á opna
stórmótinu í golfi sem lauk í
Miyazaki í Japan í gær. Hann
vann besta kylfing heims, Tiger
Woods, á annarri holu í bráða-
bana. „Þegar þú ert að keppa
gegn kylfingi eins og Tiger þá
verðurðu að grípa öll þau
tækifæri sem þér býðst. Heppnin
var með mér í liði en stundum
fylgir lukkan þeim hugrökku,“
sagði Harrington.
Harrington átti sannkallað
undrahögg á annarri holu
bráðabana þegar hann lét tré sem
var í vegi fyrir honum ekki
stöðva sig. Hann og Tiger voru
jafnir eftir 72 holur, báðir á níu
höggum undir pari. Í gær lauk
einnig opna meistaramótinu í
Hong Kong en þar var það
kylfingurinn Jose Manuel Lara
sem sigraði með eins höggs mun.
Nýliðinn Juvic Pagunsan varð í
öðru sæti.
Vann Tiger í
bráðabana
Utah Jazz hefur farið mjög
vel af stað í NBA-deildinni en í
fyrrinótt vann liðið níunda leik
sinn af fyrstu tíu með því að
leggja Phoenix 120-117 eftir
framlengingu. Með þessum sigri
jafnaði liðið bestu byrjun sína í
sögunni.
Nýliðinn Paul Millsap vakti
mikla athygli í leiknum en hann
spilaði eins og þrautreyndur
leikmaður og skoraði sex af átján
stigum í framlengingunni. Deron
Williams var stigahæstur Utah
manna í leiknum en hann skoraði
25 stig.
„Sjálfstraust mitt er algjör-
lega í hámarki og ég get þakkað
þjálfurum mínum og liðsfélögum
fyrir það. Það er mjög erfitt að
koma inn sem nýliði en mér er
sýnt mikið traust og legg mig
allan fram,“ sagði Millsap sem
hefur átt algjöra draumabyrjun í
NBA-deildinni enda hjá liðinu
sem hefur náð bestum árangri
allra liða í upphafi leiktíðar.
Meðal annarra úrslita í
fyrrinótt má nefna að Washington
sigraði Cleveland 111-99 þar sem
Gilberto Arenas skoraði 45 stig
og gaf sex stoðsendingar fyrir
Washington.
Utah Jazz á
miklu skriði
„Við vorum einfaldlega
lélegir og það var enginn klassi
yfir þessum leik. Varnarleikurinn
gekk ágætlega upp hjá okkur en
sóknin var hins vegar ömurleg.
Við spiluðum mjög óagað í sóknar-
leiknum og gáfum þeim þetta í
lokin. Það var hausinn sem klikk-
aði á leikmönnum, það vantaði
leikmenn hjá okkur en líka hjá
þeim og ef við getum ekki unnið
svona leiki á heimavelli eigum við
ekki skilið að vinna neitt,“ sagði
Sigurður Sveinsson, þjálfari Fylk-
ismanna, sem var sár og svekktur
eftir að hans menn töpuðu með
þriggja marka mun fyrir Stjörn-
unni á heimavelli sínum í gær.
Leikurinn var í járnum allan
fyrri hálfleikinn, gestirnir fóru
betur af stað en heimamenn voru
þó skrefinu á undan lengst af. Fyl-
kir náði þriggja marka forskoti,
10-7, en lokamínútur hálfleiksins
voru eign Stjörnumanna sem
höfðu eins marks forskot, 12-11, í
hálfleik.
Seinni hálfleikurinn þróaðist
mjög svipað og sá fyrri og voru
Fylkismenn yfir nær allan tímann
en munurinn þó aldrei mikill.
Þegar skammt var eftir af leikn-
um var Fylkir yfir 22-20 en þá
hrundi leikur þeirra og Stjarnan
refsaði þeim. Mikil spenna var
undir lokin en þrjú síðustu mörk
leiksins komu frá Stjörnunni sem
vann 27-24.
Kristján Halldórsson, þjálfari
Stjörnunnar, var ekki sáttur við
leik sinna manna. „Við byrjuðum
leikinn ágætlega en ég get sagt
það hreint út að þetta var ekki
góður leikur af okkar hálfu. Hóp-
urinn gerði ekki það sem var lagt
upp með en við náðum samt sigri.
Það er jákvætt að við náum að
sigra þótt við spilum illa, þegar
fer að vora er bara horft á stigin.
Þeirra leikur var voðalega háður
Vladimir Duric sem er mjög sterk-
ur leikmaður og við áttum erfitt
með hann,“ sagði Kristján.
Sterka leikmenn vantaði í bæði
lið í gær, Tite Kalandadze er í leik-
banni hjá Stjörnunni og þá voru
Ólafur Víðir Ólafsson og Patrekur
Jóhannesson ekki með. Hjá Fylk-
ismönnum vantaði Eymar Krüger
sem hefur skorað flest mörk
þeirra það sem af er tímabili. Það
var ekki fallegur handbolti sem
var spilaður í Fylkishöllinni í gær,
baráttan var frekar í aðalhlut-
verkinu. Konráð Olavsson spilaði
lykilhlutverk og var markahæstur
í Stjörnuliðinu. „Það eru til gamlir
taktar í Konna enn þá. En að maður
sem er langt kominn á fertugsald-
urinn sé að klára þetta fyrir okkur
sýnir leikmönnum að þeir þurfa
aðeins að fara að spýta í,“ sagði
Kristján.
Báðir markverðirnir stóðu sig
vel í leiknum en besti leikmaður
Fylkisliðsins var Duric sem skor-
aði alls níu mörk og þar af sex í
fyrri hálfleiknum en gestirnir
tóku hann úr umferð á köflum í
leiknum. Stjarnan og Fylkir höfðu
sætaskipti eftir leikinn í gær,
Stjarnan hefur sex stig eftir sjö
leiki en Fylkir hefur leikið leik
færri og er með fimm stig.
Gamla kempan Konráð Olavsson átti frábæran leik fyrir Stjörnumenn sem
sóttu bæði stigin í Árbæinn í gær og unnu 27-24 í DHL-deild karla í handbolta.
Leikurinn fór hægt af
stað og það var sem heimamenn
vildu halda hraðanum niðri sem
lengst. Eftir eilítið jafnræði náðu
Framarar smám saman þriggja
marka forskoti í bragðdaufum leik
en undir lok hálfleiksins hrundi
leikur ÍR-inga og Framarar náðu
sjö marka forskoti. Staðan í hálf-
leik var 19-12 gestunum í Fram í
vil.
Gestirnir hófu seinni hálfleik-
inn á sömu nótum og þeir enduðu
þann fyrri og voru fljótlega komn-
ir með tíu marka forskot. Þar með
má segja að úrslit leiksins hafi
verið ljós og bæði lið léku út leik-
tímann án mikillar fyrirhafnar
eða áreynslu.
Leikur heimamanna í gær ein-
kenndist af lélegu skipulagi, en á
tímum virtust hvorki leikmenn né
þjálfari vita í hvorn fótinn átti að
stíga. Léleg vörn varð þeim að
falli og það er ljóst að meira þarf
að koma til ef ekki á að fara illa
fyrir liðinu í vetur. Sigur Framara
var aldrei í vafa og lokatölur urðu
29-40 þeim í vil.
Guðmundur Guðmundsson,
þjálfari Framara, var sáttur í
leikslok. „Við bjuggumst við ÍR-
ingunum sterkari en þetta. Þeir
hafa spilað betur að undanförnu.
Við spiluðum mjög vel í dag, sann-
færandi varnarleik og góðan sókn-
arleik, og þeir virkuðu ráðalaus-
ir.“ Þá sagðist hann viss um að
leiðin lægi upp á við eftir misjafnt
gengi í vetur. „Meistaradeildin
færði okkur mikla reynslu sem
nýtist liðinu en við þurfum að
vinna okkur upp töfluna. Við
eigum tvo leiki til góða á hin liðin
og þurfum bara að klára þá og hífa
okkur upp. Það er mikið eftir.“
Auðveldur sigur Framara á ÍR