Fréttablaðið - 26.11.2006, Qupperneq 2
edda.is
„Hvorki hógvært né látlaust“
Jón Ásgeir Jóhannes-
son, Jóhannes Jónsson, Kristín
Jóhannesdóttir, Tryggvi Jónsson
og Stefán Hilmarsson, sem öll
tengjast rannsókn á skattamálum
Baugs, hafa lagt fram kæru í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur vegna meints
vanhæfis yfirmanna efnahags-
brotadeildar Ríkislögreglustjóra.
Þetta staðfestu Gestur Jónsson,
lögmaður Jóns Ásgeirs, og Einar
Þór Sverrisson, lögmaður Jóhann-
esar Jónssonar, í samtali við Frétta-
blaðið í gær.
„Kæran byggist á því að þessir
fimm einstaklingar, sem saman
standa að þessari kæru, telja að
yfirmenn efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóra hafi með
orðum og athöfnum sínum opin-
berað það að þeir gæti ekki hlut-
leysis við rannsókn í þessu máli,“
sagði Gestur.
Kærendur ætla sér ekki að
svara spurningum er varða skatta-
rannsóknina þangað til niðurstaða
fæst í kærumálinu en það verður
tekið fyrir í Héraðsdómi Reykja-
víkur á morgun. Eggert Óskarsson
hefur verið skipaður dómari í
kærumálinu.
Upphaf skattamálsins, sem nú
er til rannsóknar, er kæra skatt-
rannsóknarstjóra vegna ætlaðra
brota einstaklinga og fyrirtækja
tengdum Baugi á skattalögum árið
2004.
Eins og haft hefur verið eftir
Jóni H. B. Snorrasyni, yfirmanni
efnahagsbrotadeildar Ríkislög-
reglustjóra, í Fréttablaðinu tengj-
ast ætluð brot á skattalögum ekki
því máli sem er til meðferðar fyrir
dómi né heldur þeim málefnum
Baugs sem eru til skoðunar hjá
yfirskattanefnd. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Jóni hafa margir rétt-
arstöðu sakborninga í málinu en
hann hefur ekki viljað gefa það
upp hversu margir það eru.
Aðalmeðferð í Baugsmálinu,
sem nú er til meðferðar í héraðs-
dómi, fer fram 12. febrúar á næsta
ári en átján ákæruliðir bíða efnis-
meðferðar eftir að fyrsta lið
ákærunnar var vísað frá dómi.
Vitnalisti ákæruvaldsins telur
82 vitni en verjendur sakborninga
í málinu ætla sér að kalla til að
minnsta kosti tíu vitni til viðbótar.
Arngrímur Ísberg, dómari í mál-
inu, sagðist við fyrirtöku málsins
búast við því að aðalmeðferð í mál-
inu gæti tekið allt upp í fimm vikur
og gaf Sigurður Tómas Magnús-
son, settur saksóknari í málinu,
það í skyn að vitnaleiðslur yfir Jóni
Ásgeiri gætu tekið allt upp í þrjá
daga.
Ekki náðist í Jón H. B. Snorra-
son, yfirmann efnahagsbrotadeild-
ar Ríkislögreglustjóra, við vinnslu
þessarar fréttar.
Kæra vegna meints
vanhæfis yfirmanna
Fimm einstaklingar sem hafa stöðu sakborninga í rannsókn lögreglu vegna
meintra brota á skattalögum hafa kært meint vanhæfi lögreglumanna. Orð og
athafnir yfirmanna lögreglunnar gefa tilefni til kæru, segir Gestur Jónsson.
Erninum Sigurerni
verður sleppt í dag. Hann hefur
dvalið í Húsdýragarðinum í
Laugardal síðan í lok júní.
Samkvæmt niðurstöðum sýna
sem tekin voru úr fuglinum er
hann ósýktur og fær að halda til
síns heima í Grundarfirði. Þar
mun Sigurbjörg Pétursdóttir,
bjargvættur arnarins, sleppa
honum.
Sigurörn kom í Húsdýragarð-
inn í tengslum við verkefnið
„Villt dýr í hremmingum“. Hann
hafði steypst ofan í lón en náð að
koma sér að landi þar sem honum
var bjargað. Einhverra hluta
vegna vantaði á hann stélfjaðrirn-
ar, en þær hafa nú vaxið aftur og
er örninn sjálfbjarga á ný.
Sigurerni sleppt
Tæp vika er eftir af rjúpnaveiðitímabilinu í ár
og ljóst að umhleypingar í veðri hafa sett stórt strik
í reikning veiðimanna. Aðeins tólf til fjórtán
veiðidagar af 25 hafa nýst vegna veðurs og er talið
að aldrei hafi eins lítið veiðst af rjúpu þegar veiðar
hafa verið leyfðar á annað borð. Eins hefur lítið sést
af rjúpu í flestum landshlutum og veiðimenn á
nokkrum stöðum á Austurlandi helst lent í sæmilega
góðri veiði.
Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags
Íslands, segir marga veiðimenn hafa gengið
daglangt án þess að sjá fugl. „Veðrið hefur spilað
stórt hlutverk. Framan af var haustið mjög milt og
rjúpan hafði æti um allt. Því hefur fuglinn verið
mjög dreifður og styggur.“ Sigmar segir einnig
marga bændur af landsbyggðinni hafa haft samband
við sig og sagt að hretið í haust hafi haft mjög slæm
áhrif á stofninn. „Svo er talað um það á Suður- og
Vesturlandi hvað mikið er af ref. Það var mikið í
fyrra en keyrir um þverbak núna.“ Það er einnig
skoðun Sigmars að veiðimenn virði þau tilmæli
umhverfisráðherra að stunda hófveiði, sem hefur
töluverð áhrif á heildarveiðina. Hann á því ekki von
á mikilli sókn síðustu dagana þar sem margir
veiðimenn hafi náð sínum rjúpum nú þegar.
Skotveiðifélag Íslands hyggst gera skoðanakönn-
un meðal skotveiðimanna nú um mánaðamótin. Þar
verða athugaðir margir þættir veiðanna sem snúa
sérstaklega að veiðimönnum.
Tæplega fimmtugur króatískur
maður lést í gærmorgun í vinnuslysi á Fljóts-
dalsheiði.
Slysið varð með þeim hætti að verið var að
hífa einangrunarkeðju upp í mastur, þar sem
verið er að breyta Kröflulínu 2 vegna Kára-
hnjúkavirkjunar, þegar keðjan féll til jarðar
og lenti á starfsmanni króatísks fyrirtækis
sem þar er að störfum sem verktaki fyrir
Landsnet.
Læknir og sjúkrabíll sem eru á Kára-
hnjúkasvæðinu voru komnir á innan við stund-
arfjórðungi og var maðurinn fluttur á sjúkra-
húsið á Egilsstöðum. Hann var úrskurðaður
látinn við komuna þangað.
Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets,
segir slysið hafa orsakast af því að reipi hafi
slitnaði þegar verið var að hífa keðjuna upp.
„Það er ekki vitað af hverju reipið slitnaði en
málið er komið í rannsókn, bæði hjá lögregl-
unni á Egilsstöðum og Vinnueftirlitinu.“
Alls hafa orðið fjögur banaslys í tengslum
við framkvæmdirnar á Kárahnjúkum, þar af
þrjú á þessu ári. Þrír ungir Íslendingar hafa
látist í fyrri slysunum.
Undirbúningsframkvæmdir hófust um
mitt ár 2002 en verkið hófst af alvöru vorið
2003 eftir að gengið hafði verið frá öllum
samningum að sögn Sigurðar Arnalds, tals-
manns Landsvirkjunar vegna Kárahnjúka-
virkjunar.
„Þetta eru náttúrulega gríðarlega miklar
og hættulegar framkvæmdir en allt meira en
núll er mikið.“
Banaslys varð á Fljótsdalsheiði
Gylfi, yrði Íslendingum betur
borgað með evru?
Mapuche-indíánaætt-
bálkurinn frá Chile ætlar að
lögsækja Microsoft vegna
þýðingar á stýrikerfinu Windows.
Leiðtogar ættbálksins segja að
fyrirtækið hafi brotið lög þegar
það þýddi stýrikerfi sitt á tungu-
málið mapuzugun, sem talað er af
um fjögur hundruð þúsund Chile-
búum, án leyfis þeirra.
Leiðtogarnir sendu Bill Gates
einnig bréf þar sem hann er
sakaður um „vitsmunalegan stuld“.
Málshöfðunin vekur upp spurning-
una um hvort hægt sé að eiga
tungumál, en talsmenn Microsoft
hafa ekki tjáð sig um málið.
Kæra þýðingu
án þeirra leyfis
Ríkisstjórn Rúanda
hefur kallað erindreka sinn heim
frá París og sendiherra Frakka í
Rúanda undirbjó heimför sína í
gærkvöldi, en hann átti að reka úr
landi eftir helgi.
Frönsk rannsókn á morði
forseta Rúanda árið 1994 stendur
nú yfir og voru gefnar út
handtökuskipanir á níu háttsetta
embættismenn núverandi
stjórnar landsins á miðvikudag.
Mennirnir eru grunaðir um aðild
að morðinu og bandamenn
núverandi forseta, Pauls Kagame.
Haft er eftir dómsmálaráð-
herra Rúanda að stjórnmálasam-
bandinu hafi verið slitið vegna
yfirgangssemi Frakka.
Slítur stjórn-
málasambandi
við Frakkland