Fréttablaðið - 26.11.2006, Side 18
Langflest frumvörp ráðherra verða að lögum, en einungis átta ráðherrar hafa komið
öllum þeim frumvörpum sem lögð
hafa verið fram í gegn. Að meðal-
tali hafa 90 prósent frumvarpa
allra ráðherranna orðið að lögum.
Hjá fjórum ráðherrum urðu
innan við þrjú af hverjum fjórum
frumvörpum að lögum á meðan
þeir sátu í embætti. Það er hjá
þeim Halldóri Ásgrímssyni sem
forsætisráðherra, Þorgerði Katr-
ínu Gunnarsdóttur sem mennta-
málaráðherra, Geir H. Haarde
sem utanríkisráðherra og Siv Frið-
leifsdóttur sem umhverfisráð-
herra sem hefur komið fæstum af
sínum málum í gegn. Vegna þess
hve fá frumvörp Geir H. Haarde
og Jón Kristjánsson sem félags-
málaráðherra lögðu fram, er það
aðeins eitt frumvarp sem ekki
náði samþykki hjá hvorum sem
munar því að þeir ná ekki hundrað
prósent hlutfall samþykkta frum-
varpa.
Ef litið er til þess hversu dug-
legir ráðherrar hafa verið að
leggja fram frumvörp hafa bæði
Valgerður Sverrisdóttir, sem við-
skipta- og iðnaðarráðherra og Árni
Mathiesen sem fjármálaráðherra
lagt flest frumvörp fyrir Alþingi,
miðað við fjölda mánaða í emb-
ætti. Miðað er við stöðu frum-
varpa eins og hún lá fyrir föstu-
daginn 17. nóvember, áður en fyrri
greinin birtist. Að meðaltali hafa
allir ráðherrarnir lagt fram 0,82
frumvörp á mánuði.
Duglegastir við að leggja fram
frumvörp á þessu kjörtímabili
hafa verið viðskipta- og iðnaðar-
ráðherrarnir tveir og fjármála-
ráðherrarnir tveir. Í fimmta sæti
kemur svo Halldór Ásgrímsson
sem forsætisráðherra.
Þá hafa Davíð Oddsson sem
utanríkisráðherra, Valgerður
Sverrisdóttir sem utanríkisráð-
herra og Jónína Bjartmarz sem
umhverfisráðherra ekki lagt neitt
frumvarp fram. Af þeim sem
lögðu frumvarp fram lagði Hall-
dór Ásgrímsson fæst frumvörpin
fram sem utanríkisráðherra, eða
að meðaltali 0,06 fyrir hvern
mánuð í embætti.
Fyrir utan forsætisráðherratíð
Halldórs Ásgrímssonar eru það
utanríkisráðherrar og forsætis-
ráðherrar sem leggja fæst frum-
vörp fyrir Alþingi. Auk þeirra má
nefna Tómas Inga Olrich, sem var
einungis þrjá mánuði í embætti og
Jónínu Bjartmarz umhverfisráð-
herra sem fyrir viku síðan hafði
ekki lagt fram frumvarp eftir
fjóra mánuði í embætti.
Líkt og í fyrri greininni er ein-
ungis tekið tillit til þeirra 413
frumvarpa sem lögð hafa verið
fram á þessu kjörtímabili. Af þeim
hafa 317 frumvörp orðið að lögum.
Þá teljast frumvörp sem fyrrum
ráðherra undirbjó og lagði fyrst
fram til tekna þeirra ráðherra sem
leggja frumvöpin aftur fram og ná
samþykki.
Afrekaskrá
ráðherra
Átta ráðherrar hafa komið öllum sínum frum-
vörpum í gegn á þessu kjörtímabili. Svanborg Sig-
marsdóttir fer yfir síðari hluta afrekaskrárinnar.