Fréttablaðið - 26.11.2006, Page 22
L
öngunin til að líta
nyrsta odda Evrópu,
Nordkap í Noregi, togar
sterkt í margan ferða-
fíkil nútímans. En færri
vita að talsvert á fjórða
hundrað ár eru liðin síðan sú löng-
un dró fyrsta ferðamanninn á
þennan afskekkta tanga langt
norðan heimskautsbaugs. Það var
Ítalinn Francesco Negri (1624-
1698). Honum fannst sérkennilegt
að Evrópumenn hans samtíma
skyldu í öllu landafunda- og land-
könnunaræðinu sinna því eins lítið
og raun bar vitni að kanna eigin
heimsálfu. Hann lagði land undir
fót (bókstaflega) árið 1663 og
komst um haustið 1664 til Nord-
kap. Heim kominn til Ítalíu skrif-
aði hann lært rit um ferð sína sem
kom út árið 1700, að honum látn-
um. Hann er talinn fyrstur manna
hafa heimsótt nyrsta odda Evrópu
sem ferðamaður.
Liðlega 340 árum síðar lét
Hjörtur Jónasson, farskipastýri-
maður uppi á Íslandi og áhuga-
maður til margra ára um klassísk
bresk mótorhjól, draum sinn um
að ferðast norður til Nordkap
verða að veruleika. Og gott betur
en það. Hann ók þangað frá Dan-
mörku og síðan sem leið lá suður
eftir álfunni, um Eystrasaltslönd-
in og Pólland alla leið til uppruna-
slóða Francesco Negri á Adría-
hafsströnd Ítalíu. Þar með var
ferðalaginu reyndar ekki lokið því
hann ók aftur norður til Danmerk-
ur, samtals rúmlega 10.000 kíló-
metra leið.
Og farkosturinn var ekki af verri
endanum: Triumph Trident árgerð
1975. Triumph „Þristurinn“ (nafn-
ið Trident vísar til þriggja strokka
vélarinnar) var síðasta hjólið sem
hinar fornfrægu Triumph-verk-
smiðjur þróuðu áður en þær
þurftu að játa sig sigraðar fyrir
japönsku samkeppninni fáeinum
árum síðar. Það má því segja að
farkosturinn hafi fengið það í þrí-
tugsafmælisgjöf að vera stýrt
þessa tíu þúsund kílómetra eftir
þjóðvegum Evrópu, yfir álfuna
endilanga.
Hjörtur segir sig lengi hafa
dreymt um að fara þessa leið og
loks látið verða af því sumarið
2005. „Ég var búinn að ganga með
þetta í maganum lengi en eiginleg-
ur undirbúningur fór ekki í gang
fyrr en um vorið, þannig séð á síð-
ustu stundu,“ segir hann. „Vélin í
hjólinu var tekin upp og hjólið allt
yfirfarið – ég safnaði saman vara-
hlutum og viðlegubúnaði, en eins
og nærri má geta þarf að hugsa
það vel hvað maður tekur með sér
í svona ferð.“
Auk viðlegubúnaðar, varahluta
og vista þurfti hann að hafa með
sér föt bæði fyrir hita og kulda.
„Hitinn fór niður í þrjár gráður
norður við Nordkap en upp í 38
gráður þar sem ég lenti í hita-
bylgju á leiðinni í gegnum
Slóvakíu. Það reyndist líka alveg
nauðsynlegt að hafa regngalla
meðferðis,“ segir Hjörtur.
Ferðaáætlunin var á þessa leið:
Hjólið var sent með fragtskipi frá
Reykjavík til Árósa með nokkrum
fyrirvara, en þaðan var síðan lagt
upp í ferðina þann 22. júlí. Áætl-
unin var að þeysa norður til Nord-
kap á þremur dögum, þ.e. beint
strik norður eftir Svíþjóð og Norð-
ur-Finnlandi áður en ekið var inn í
Noreg á síðasta kaflanum að
nyrsta odda álfunnar. Hjörtur
útskýrir að það hefði verið miklu
seinfarnara að fara í gegnum
Noreg alla leiðina.
„Áætlunin var að vera kominn
til Rimini sunnudaginn 31. júlí en
þar beið fjölskyldan og hálfsmán-
aðar afslöppun. Áætlunin stóðst –
ég var kominn í hádeginu þann
dag upp að hótelinu þar,“ segir
Hjörtur glettinn á svip, enda þýðir
það að hann ók 7.289 km vega-
lengd á níu og hálfum sólarhring.
Sem er 767 km að meðaltali á sól-
arhring.
Það sem rak á eftir honum fyrstu
dagana var líka rigningin, sem
dundi á honum nánast látlaust frá
því hann lagði af stað frá Dan-
mörku – með því að hraða sér í
gegnum hana vonaðist hann til að
komast út úr henni – en varð ekki
kápan úr því klæðinu: það rigndi
meira og minna alla leiðina til
Nordkap og þaðan til Helsinki. Þar
norður frá gekk á með skúrum en
það hellirigndi á leiðinni suður í
gegnum finnsku skógana.
„Úrhellið var þannig að ég ók
framhjá mörgum bílum stopp í
útskotum frá malbikuðum þjóð-
veginum þar sem rúðuþurrkurnar
höfðu ekki undan. Ég varð auðvit-
að holdvotur í gegnum allt, en þar
sem þetta var hlý rigning kom það
lítið að sök. Ég valdi að minnsta
kosti frekar að keyra sem hraðast
í gegn um þetta, enda orðinn leið-
ur á að pakka saman rennblautum
útilegubúnaði,“ segir Hjörtur.
Hann bætir við að ekki hefði verið
nóg með að hann sjálfur varð
votur inn að beini heldur fylltust
líka stefnuljósin af vatni! Loft-
kældri Triumph-vélinni varð þó
ekki meint af.
„Hættulegast var þó að á veg-
unum þarna norður frá stukku
hreindýr gjarnan fyrirvaralaust
upp á veginn, en það er yfirleitt
mjög erfitt að koma auga á þau
fyrir skóginum. Einu sinni munaði
mjög mjóu, ég hefði getað gripið í
hornin á einu hreindýrinu sem ég
þurfti að nauðsveigja framhjá – og
var þá kominn yfir á öfugan veg-
arhelming,“ segir Hjörtur. „Þá var
gott að vera með „ABS“ – Antique
Brake System,“ bætir hann við
kíminn.
Úrhellið var mest á leiðinni í gegn-
um skógana í Suður-Finnlandi en
það stytti upp þegar til Helsinki
var komið – „þar fór ég beint í
ferju yfir til Tallinn í Eistlandi,“
heldur Hjörtur ferðasögunni
áfram. „Þar var komin heiðríkja
og sól.“ En mestu viðbrigðin við að
koma yfir í Eystrasaltslöndin –
sem voru hluti af Sovétríkjunum
frá seinni heimsstyrjöldinni til
ársins 1991 – voru vegakerfið.
„Það er hræðilegt ástand á því
víða ennþá. Það eru alls staðar
framkvæmdir í gangi við endur-
nýjun og betrumbætur veganna
eftir áratuga viðhaldsskort. Sem
flýtir ekki för ferðalangs,“ segir
hann. Það hafi hins vegar ekki
reynst neitt vandamál að rata.
„Enda var ég með þokkaleg kort
og GPS-tæki.“
Þegar Hjörtur ók í gegn um löndin
þar eystra varð hann var við að
framförunum er misskipt. „Í
dreifbýlinu er eins og tíminn hafi
staðið í stað.“ Á nýlögðum hrað-
brautarspotta í Litháen rakst hann
aftur á móti á nokkra stráka á
dýrum nýjum kappakstursmótor-
hjólum að leika sér, spóla í hringi
og spyrna á ofsahraða, með hrað-
brautina sem einkaleikvöll.
Næsti áfangi var frá Kaunas í
Litháen til Krakár í Suður-Pól-
landi. Það reyndist ekkert mál að
komast yfir landamærin inn í Pól-
land. En það reyndi mjög á demp-
arana í hjólinu að skrölta yfir
pólsku þjóðvegina; þeir voru í
afleitu ásigkomulagi,“ segir Hjört-
ur. „Á leiðinni flæktist ég inn í
miðborg Varsjár, inn í mitt öng-
þveitið. Það tók svolítið á taugarn-
Evrópa endanna á milli
á þrítugum Þristi
Margur ferðaglaður Íslendingurinn lætur sig dreyma um að komast einhvern tíma ævinnar á nyrsta
odda Evrópu. En að aka þangað á þrjátíu ára gömlu mótorhjóli dettur fáum í hug, hvað þá að fram-
kvæma það. En það er einmitt það sem Hjörtur Jónasson gerði – og gott betur því hann ók líka alla
leið suður að Miðjarðarhafinu og aftur norður. Hann sagði Auðuni Arnórssyni ferðasöguna.