Fréttablaðið - 26.11.2006, Page 66
„Já, ein er sú mynd sem mér dett-
ur strax í hug að nefna,“ segir
Hilmar Oddsson kvikmynda-
gerðarmaður sem bendir á eftir-
tektarvert málverk að þessu
sinni.
Og það er heldur betur saga
sem fylgir verkinu. Þegar Hilmar
var fimmtán ára brann heimili
fjölskyldu hans. Þar fóru ýmis
minnisstæð málverk svo sem org-
ínall eftir Mugg og Hamilton, einn
frægasta popplistamann Bret-
lands. Sem og Kjarvalsmyndin
sem leikið hefur rullu í lífi Hilm-
ars.
„Við rúm mitt hékk eftirprent-
un af Kjarvalsmynd, Gaman er að
lifa, sem er í eigu Listasafns ASÍ.
(Olía, 135x141cm). Þarna standa
menn í fjörugrjótinu á Hellnum á
Snæfellsnesi. Þetta er mystísk
mynd. Og mér fannst alltaf sem
þeir ættu sér eitthvert leyndarmál
saman. Sögur eru um að menn
færu í fjörur og hraun til að eiga
leyndarmál. Svo brann myndin og
ég var ekki í rónni fyrr en ég sá
mörgum árum síðar orgínalinn á
sýningu. Ég vann þá á Kjarvals-
stöðum sem næturvörður með
menntaskóla. Og um miðnæturbil
átti ég eftirminnilegan samfund
með þessari mynd. Það er eins og
Kjarval sé að stríða með titli
myndarinnar því svo mikil mystík
er yfir mönnunum. En þetta mál-
verk hefur „inspírerað“ mig til
dæmis þegar ég gerði skólamynd
mína í München. Sem gerist á
Hellnum. Þá var ég að hugsa um
þessa mynd Kjarvals.“
Kjarvalsmyndin sem brann
Jón G. Friðjónsson prófessor hefur
sent frá sér nýja, endurbætta og
stóraukna útgáfu hins merka rits
síns Mergur málsins, íslensk orða-
tiltæki. „Sameiginlegt einkenni
orðatiltækja,“ segir hann í for-
mála, „er í fyrsta lagi að búningur
þeirra er fastmótaður og þau eru
notuð sem ein heild í málinu. Í öðru
lagi svipar þeim að því leyti til ein-
stakra orða að þau geta ekki staðið
ein sér heldur krefjast þau sam-
hengis“ og hann skiptir þeim í
fimm flokka: „orðtök, talshætti,
fastar líkingar, fleyg orð og sam-
stæður“. Ritið er nú 1.133 blaðsíð-
ur og ég bið menn að íhuga hvílíkr-
ar elju og ástar á viðfangsefninu
það krefst að ljúka slíku þrekvirki:
að safna saman í eina bók þeim
aragrúa orðatiltækja sem ein-
kenna og prýða mál okkar, með
öllum þeim dæmum sem tilgreind
eru. Bókin er ómetanlegt hjálpar-
gagn öllum sem vilja huga að orða-
forða sínum og málfari. Þjóðin
skuldar Jóni mikið þakklæti fyrir
þetta einstæða verk. Þessi bók ætti
að vera á hverju heimili í landinu.
Afturbeygða fornafnið sig/sér/sín
lætur lítið yfir og er því ekki fyr-
irferðarmikið í málinu. En dapur-
legt er að sjá það næstum hverfa
og birtast svo óvænt þar sem það á
ekki heima. Afturbeygða fornafn-
ið vísar til þriðju persónu og er
eins í öllum kynjum og báðum
tölum.
„Aðspurður um þá ákvörðun sína
að koma nú inn í stjórnmálin sagði
Jón, að honum fyndist þetta skylda
sín.“ Hér á auðvitað að segja sér
fyndist af því að hann vísar til
sjálfs sín. Mbl. 12. júní. „Hörður
sagði ... frá því að honum (sér)
fyndist hann bráðum vera búinn
að segja allt ...“ Mbl. 7. sept. „Þór-
unn segir að henni (sér) lítist vel á
...“ Kvöldfréttir RÚV 14. sept.
„Geir sagði einnig að honum (sér)
hefði blöskrað ...“ Mbl. 22. okt.
Hins vegar segir í fyrirsögn í
Fréttablaðinu 21. sept: „Hann ætl-
aði að drepa mig.“ En þar fyrir
neðan stendur svo: Hann heldur
að maðurinn hafi ætlað að drepa
sig. Sem þá merkir að hann hafi
ætlað að svipta sig lífi en ekki að
bana þeim sem segir frá. Merk-
ingin snýst við.
Önnur fyrirsögn í Fréttablað-
inu 6. okt: Ungliðar heiðra Alfreð
fyrir störf sín. Af hverju ætti að
heiðra hann fyrir störf þeirra?
Hér á auðvitað segja: fyrir störf
hans.
Hér eins og víðar þurfa blaða-
menn að gæta sín á þessu yfirlæt-
islausa fornafni.
sagði fréttamaður ríkissjónvarps-
ins á degi íslenskrar tungu. Fróð-
legt þætti mér að sjá framan í þá
sögn sem stýrir nefnifalli. Annað
mál er það, að hlakka tekur með
sér nefnifall: Ég hlakka til.
Heiður Gestsdóttir sendir mér
þessa fallegu braghendu sem ort
var til ritfærra brúðhjóna:
Baráttunnar besta vopn er
beittur penni,
bæði veit þið beita kunnið
brýnt er nú að vel sé unnið.
Þú sendir SMS skeytið
JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ
á númerið !
Dæmi hvernig SMS gæti
litið út ef svarið er Jón.
Þá sendir þú SMS-ið .
Dregið úr réttum svörum n.k.
. - 99 kr. smsið
Viltu eintak!
Leystu Krossgátuna
og sendu inn
lausnarorðið!