Fréttablaðið - 26.11.2006, Side 79
Tímabilið í NBA-
körfuboltanum hefur byrjað lygi-
lega vel fyrir Utah Jazz sem hefur
unnið tólf leiki af þrettán í haust.
Er það besta byrjun liðsins frá
upphafi í deildinni og í fyrrinótt
gerði liðið sér lítið fyrir og vann
LA Lakers með 114 stigum gegn
108. Utah vann síðasta leikhlut-
ann með tólf stigum og er það
ekki í fyrsta skiptið sem liðið
vinnur leiki sína á endasprettin-
um.
Kobe Bryant skoraði ekki nema
tvö stig í fjórða leikhlutanum,
þökk sé meðal annarra Andrei
Kirilenko sem lék sinn fyrsta leik
í gær eftir meiðsli sem voru búin
að hrjá hann í síðustu fimm leikj-
um á undan. Kirilenko varði fimm
skot í leiknum en Bryant skoraði
alls 27 stig.
„Hér kom upp sú staða að Kiri-
lenko skoraði aðeins fjögur stig í
leiknum en var samt algjör lykil-
maður í sigri liðsins,“ sagði Jerry
Sloan, þjálfari Utah.
Carlos Boozer hélt áfram að
sýna snilli sína og skoraði 31 stig
og tók sextán fráköst.
„Þeir keyrðu á okkur og settu
okkur aðeins út af laginu. En við
börðumst fyrir okkar hlut og
tókum alla stjórn í leiknum,“ sagði
Deron Williams sem skoraði ell-
efu af sínum fimmtán stigum í
fjórða leikhlutanum.
Í síðustu þremur leikjum sínum
hefur Utah þurft að ná upp sextán
stiga forskoti andstæðingsins tví-
vegis og 21 stigi einu sinni.
Dallas og San Antonio eru tvö
af sterkustu liðum deidarinnar og
áttust við í fyrrinótt. Dallas gerði
sér lítið fyrir og vann á útivelli,
95-92. Dirk Nowitzky fór sem fyrr
fyrir Dallas-liðinu og skoraði 31
stig, þar af fjórtán í síðasta leik-
hlutanum.
Þá áttust Denver og Golden
State við í ótrúlegum leik sem
lauk með 140-129 sigri Denver.
„Við getum aukið hraða okkar enn
frekar,“ vildi þjálfari Denver þó
meina þrátt fyrir flest skoruð stig
liðsins í einum leik síðan 1991.
Utah heldur áfram að fara á kostum í NBA
El-Hadji Diouf, leikmað-
ur Bolton, hefur viðurkennt að
stunda leikaraskap en segist alls
ekki vera sá eini. Hann segist
bara vera snjall þegar hann lætur
sig falla í vítateig andstæðinga til
að reyna að fiska vítaspyrnu.
„Stundum þarf ég að láta mig
falla til að vinna víti. Þetta er
bara hluti af fótboltanum.
Snjöllustu knattspyrnumenn
samtímans stunda þetta,“ sagði
Diouf sem á klárlega ekki eftir að
auka vinsældir sínar með þessum
ummælum. Hann hefur verið að
spila vel með Bolton en hefur þó
nokkrum sinnum komist í
fréttirnar fyrir hegðun sína.
Viðurkennir
leikaraskap
Leonidas Sampanis
hefur verið dæmdur í hálfs árs
skilorðsbundið fangelsi fyrir að
hafa notað stera á Ólympíuleikun-
um í Aþenu fyrir tveimur árum.
Sampanis er grískur lyftingamað-
ur sem vann bronsverðlaun á
leikunum en þau voru síðan tekin
af honum eftir að hann féll á
lyfjaprófi og var dæmdur í
keppnisbann. Sampanis hefur
neitað allri sök og segir að
einhver hafi látið sig taka stera
án hans vitneskju.
Þetta er mikið áfall fyrir grískt
íþróttalíf en rétt fyrir Ólympíu-
leikana voru spretthlaupararnir
Kostas Kenteris og Katarina
Thanou dæmd í bann eftir að hafa
skrópað í lyfjaprófi. Þau eiga
eftir að svara til saka fyrir
framan dómstóla en þau dvöldu í
fjóra daga á sjúkrahúsi um þetta
leyti og sögðust hafa lent í
mótorhjólaslysi.
Dæmdur í háfs
árs fangelsi
Nemanja Vidic, varnar-
maður Manchester United, er sá
leikmaður sem hefur vakið hvað
mesta athygli í enska boltanum á
þessu tímabili. Þessi serbneski
landsliðsmaður kom til United
fyrir ári en gekk erfiðlega að fóta
sig í ensku deildinni til að byrja
með. Hann hefur spilað frábær-
lega að undanförnu og segist vera
farinn að aðlagast lífinu á
Englandi.
„Þetta var mjög erfitt í byrjun.
Ég bjó á hóteli og gekk erfiðlega
að aðlagast öðruvísi fótbolta og
öðruvísi menningu í nýju landi.
Ég var nokkurn veginn óþekktur
en samt keyptur fyrir sjö
milljónir punda. Stuðningsmenn
voru efins og ég skynjaði það, Nú
er allt komið á beinu brautina, ég
hef keypt mér hús og enskan er
orðin betri. Ég hef spilað vel en
get spilað enn betur og er
ákveðinn í að sýna það,“ sagði
Vidic.
Ég get spilað
enn betur