Fréttablaðið - 26.11.2006, Page 83
DHL-deild karla
Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar
Ítalska úrvalsdeildin
Spænska úrvalsdeildin
Belgíska úrvalsdeildin
Hollenska úrvalsdeildin
Þýska úrvalsdeildin
„Ég átti ekki von á
þessu. Það verður ekki tekið af
Stjörnumönnum að þeir spiluðu
vel á köflum í fyrri hálfleik en í
hálfleik var ég sannfærður um að
við myndum taka þetta,“ sagði
Guðmundur Guðmundsson, þjálf-
ari Fram, eftir að hans menn unnu
ellefu marka sigur gegn Stjörn-
unni á heimavelli sínum í gær.
„Liðið er í mjög góðu ásigkomu-
lagi og við náðum að nýta okkur
það. Vörnin var góð og það sést á
því að Stjarnan skoraði bara átta
mörk í síðari hálfleik. Það vantar
stórskyttur í þeirra lið og auðvitað
hefur það áhrif en við erum að
komast aftur í gang eftir þessa
meistaradeild. Leikformið hefur
skilað okkur fjórum sigrum í
röð.“
Framarar náðu fljótt þægilegri
forystu í leiknum í gær og voru
með fjögurra marka forskot um
tíma. Undir lok hálfleiksins náðu
Stjörnumenn góðum leikkafla,
skoruðu fjögur mörk í röð og jöfn-
uðu 12-12. Síðasta markið fyrir hlé
var þó eign Fram sem hafði því
eins marks forskot 13-12 í hálf-
leik. Allt leit út fyrir spennandi
síðari hálfleik en sú varð ekki
raunin. Framarar voru mun
ákveðnari í sínum aðgerðum,
keyrðu einfaldlega yfir gesti sína
og unnu á endanum 31-19.
Stjörnumenn voru augljóslega
ekki sáttir við dómgæsluna en
þeir fengu aðeins eitt vítakast í
leiknum gegn þrettán vítum Fram-
ara. Þá léku Stjörnumenn einum
færri í samtals fjórtán mínútur en
Framarar sex. Jóhann Gunnar
Einarsson sýndi mikið öryggi á
vítalínunni og skoraði hann níu af
tíu mörkum sínum þaðan. Þá tók
Einar Ingi Hrafnsson þrjú víti og
skoraði úr þeim öllum. Stuðnings-
menn Stjörnunnar fjölmenntu í
Safamýrina en voru nær allir farn-
ir þegar leiktíminn rann út.
Leikmenn Stjörnunnar voru
einfaldlega hugmyndalausir í
seinni hálfleik og enginn þorði að
taka á skarið. Á síðasta stundar-
fjórðungi leiksins skoraði liðið
aðeins tvö mörk en þau komu bæði
undir lokin. „Það var margt sem
við gerðum vitlaust en ég held að
niðurstaðan sé bara sú að við séum
ekki betra lið en þetta. Við settum
markið hátt fyrir tímabilið en
höfum verið að missa lykilmenn í
meiðsli. Við höfum marga sterka
og efnilega leikmenn en sem liðs-
heild eigum við enn langt í land.
Menn eru of ragir að mínu mati,“
sagði Konráð Olavsson, hinn
reynslumikli leikmaður Stjörn-
unnar.
Þegar hann var spurður út í
dómgæsluna vildi hann lítið segja.
„Það þýðir ekkert að segja um
þessi mál því það er enginn sem er
að hlusta. Við töpuðum þessum
leik sjálfir en ekki vegna dóm-
gæslunnar. Það er samt greinilegt
að ástandið í dómaramálum hér á
landi er eins og það er vegna
lélegrar stjórnunar í handboltan-
um. Leikmenn hafa verið að kvarta
undan einstökum dómurum í mörg
ár en það er ekkert gert,“ sagði
Konráð.
Fram gerði sér lítið fyrir og rúllaði yfir Stjörnuna 31-20 í DHL-deild karla í handbolta í gær. Fyrirfram var
reiknað með spennandi leik en eftir jafnan fyrri hálfleik sáu gestirnir ekki til sólar í þeim síðari.
Eiður Smári Guðjohnsen
var enn á ný í lykilhlutverki hjá
Spánarmeisturum Barcelona sem
unnu í gær Villarreal á heimavelli,
4-0. Eiður fiskaði víti á 35. mínútu
sem Ronaldinho skoraði úr og
bætti svo sjálfur öðru marki við á
55. mínútu áður en hann var tek-
inn af velli á 72. mínútu.
Var þetta fimmta markið sem
Eiður skoraði fyrir Börsunga í
spænsku úrvalsdeildinni og það
fyrsta með skalla. Hann var búinn
að fá nokkur færi til að skora áður
en að fyrsta markinu kom en þar
fyrir utan átti hann skínandi góðan
leik. Frank Rijkaard teflir greini-
lega ekki á tvær hættur og skiptir
Eiði út af þegar honum finnst sig-
urinn ekki lengur í hættu.
Skömmu áður en honum var
skipt út skoraði Andres Iniesta
þriðja mark Börsunga en hann gaf
sendinguna á Eið Smára í öðru
marki leiksins. Greinilegt er að
þeir tveir ná einkar vel saman inni
á vellinum.
Ronaldinho skoraði svo fjórða
mark leiksins og annað mark sitt í
leiknum á 88. mínútu. Markið var
stórglæsilegt svo ekki sé minna
sagt. Xavi gaf háa sendingu inn á
kappann sem tók boltann á kass-
ann og skoraði svo með bakfalls-
spyrnu án þess að boltinn snerti
nokkru sinni jörðina.
Sannarlega glæsilegur endir á
leik þar sem Börsungar sýndu
ótvíræða yfirburði.
Eiður Smári skoraði
og fiskaði víti