Fréttablaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 88
Íslenskan er yndislega gegnsætt mál. Við búum í lýðveldi af því að
lýðurinn hefur völdin. Hér er lýð-
ræði af því að lýðurinn ræður. Að
vísu hefur lýðurinn svo margt
annað að gera að hann hefur komið
sér upp fulltrúalýðræði þar sem
lýðurinn velur fulltrúa til að ráða
fyrir sig. Þetta væri hreint fyrirtak
ef fyrirkomulagið á því hvernig lýð-
urinn velur fulltrúana væri ekki
svona ólýðræðislegt.
flokkanna hafa nefni-
lega komið sér upp prófkjörum. Þar
raðar lítið brot af væntanlegum
kjósendum flokksins upp listanum
sem boðinn verður fram. Þannig
getur tiltölulega fámennur hópur
með samanteknum ráðum komið
fullkomlega óhæfum frambjóð-
anda, jafnvel forhertum glæpa-
manni, í eitt efstu sætanna þvert á
vilja alls meirihluta kjósenda.
taka síðan þátt í
því að kippa lýðræðinu úr sambandi
á þennan hátt með því að hamra
stögugt á því að þessi eða hinn sé í
„öruggu“ sæti. Í lýðræði sem stend-
ur undir nafni, en er ekki skrípa-
mynd af hugtakinu, á enginn að
vera „öruggur“ um eitt einasta
atkvæði fyrr en það hefur verið
greitt honum. Ef þjófóttur mútu-
þegi kemst á þing má það ekki vera
af því að nokkrir siðblindingjar sem
meta dugnað meira en heiðarleika
komu honum í „öruggt“ sæti í próf-
kjöri. Það á að vera af því að kjós-
endur í flokksins í kjördæminu
völdu hann sem fulltrúa sinn.
hafa einfaldlega
gengið sér gjörsamlega til húðar.
Það vekur manni beinlínis ugg að
vongóð þingmannsefni skuli jafn-
vel kosta jafnmiklu til að komast á
þing og þau geta vænst að fá í kaup
á kjörtímabilinu. Annað hvort er
það alveg himinhrópandi augljós-
lega vondur bisnes eða eitthvað er í
gangi sem maður veit ekki um en
ætti að vera á allra vitorði í lýðræð-
isþjóðfélagi.
er löngu orðið tímabært að
leggja prófkjör og forvöl niður og
sameina þau kosningum. Það er ekki
mikið mál og auðvelt í framkvæmd
að kjósendur númeri, segjum tíu
manns frá einum og upp í tíu, um leið
og þeir kjósa flokkinn sem þeir bjóða
sig fram fyrir. Þannig ráða þeir sem
sannarlega kjósa hvern flokk hverjir
fulltrúar hans eru en ekki fáeinir
einstaklingar sem stjórnast kunna af
annarlegum forsendum.
verður eitthvað í þess-
um kosningum og aðdraganda
þeirra til þess að lýðræðinu verði
stungið í samband aftur.
Að kippa lýðræð-
inu úr sambandi