Fréttablaðið - 21.12.2006, Síða 32
[Hlutabréf]
Ný skýrsla Hagfræði-
stofnunar Háskólans er
áfellisdómur yfir hag-
stjórn hér á landi sem
sögð er hafa einkennst
af misvægi. Verði ekki
gerð bót á liggur beinast
við að skipta úr krónu
í evru, að því er fram
kemur í niðurstöðum
skýrslunnar.
„Ef menn hysja ekki upp um sig
buxurnar er evran eini kosturinn.
En ég vil frekar að menn hysji upp
um sig buxurnar,“ segir Tryggvi
Þór Herbertsson, fráfarandi
forstððumaður Hagfræðistofnunar
Íslands. Hann kynnti í gærmorgun
nýja skýrslu stofnunarinnar sem
gerð var að beiðni Samtaka atvinnu-
lífsins um hagstjórnarumhverfið
og sambýli atvinnuvega hér á landi.
Í skýrslunni kemur fram hörð
gagnrýni á stjórn efnahagsmála
hér á landi.
Meginniðurstöður eru að stjórn
peningamála hafi verið of lengi að
taka við sér þegar ljóst var að mikið
hagvaxtarskeið væri að hefjast og
vextir Seðlabankans hafi hækkað
of hægt og of lítið. Þá hafi peninga-
stefna bankans ekki haft nægan
stuðning af ríkisfjármálunum, þar
sem síaukin ríkisútgjöld og lækkun
skatthlutfalla hafi ekki dregið úr
þenslunni í hagkerfinu. Sem dæmi
nefnir Tryggvi breytingar á íbúða-
lánamarkaði sem hafi verið mistök
sem búið hafi verið að vara sterk-
lega við með ítarlegri skýrslu Hag-
fræðistofnunar. „Atburðarásinni
var þar lýst svo nákvæmlega að
hún hefði eins getað verið skrifuð
eftir á,“ segir Tryggvi Þór. „En
stjórnmálamenn skelltu algjörlega
skollaeyrum við þessu.“ Hann segir
löngu tímabært að taka til hendinni
í þessum málum og telur að leggja
hefði átt niður Íbúðalánasjóð fyrir
löngu.
Sömuleiðis eru sveitarfélögin
sögð leika nánast lausum hala.
Hallarekstur sveitarfélaga og vax-
andi útgjöld ýti undir uppsveifluna.
„Hér þarf að verða breyting á, ef til
vill með atbeina ríkisvaldsins,“
segir Tryggi og vísar til þess að
Danir hafi hafi til dæmis sett sveit-
arfélögum skorður varðandi lántök-
ur. Þá kemur fram að nýjar aðstæð-
ur á fjármálamarkaði kunni að kalla
á nýjan gjaldmiðil ef hagstjórnin
lukkast ekki betur en hún hafi gert
að undanförnu. Tryggvi segir nær-
tækast að horfa til evrunnar í þeim
efnum. „Ef samspil hagstjórnar-
tækja verður ekki þannig að hér
verði eðlilegur hagvöxtur, sem ekki
leiðir af sér þenslu, getur verið að
hægt sé að neyða fram það umhverfi
með því að taka upp nýjan gjald-
miðil,” segir hann.
Tryggvi Þór bendir þó á að í aðra
hluti hafi verið erfiðara að sjá fyrir
og til dæmis hafi krónubréfaútgáfa
komið mönnum á óvart, þrátt fyrir
fordæmi frá Nýja-Sjálandi. Hag-
stjórn hér hafi hins vegar einkennst
af misvægi í aðgerðum þótt margt
gott hafi verið gert. Þannig hefði
rétta leiðin til dæmis verið að draga
úr útgjöldum ríkissjóðs um leið og
skattar eru lækkaðir.
Tryggvi segir þó jafnframt að
Seðlabankanum og þeim sem stunda
hagstjórn sé nokkur vorkunn í
umhverfi þar sem fyrir komi að
hagvaxtartölur séu leiðréttar úr
fimm prósentum í átta. „Fimm pró-
senta hagvöxtur kallar á allt aðra
hagstjórn en átta prósent. Þessu má
má líkja við að menn stýri bát án
þess að vita hvernig veðrið er.“
Fram kom á fundinum að skýrsl-
an hefði verði nokkuð lengi í
vinnslu. Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, segir að upphaflega hafi verið
beðið um hana þegar hátt gengi
krónunnar hafi verið að skapa hér
vandamál. „En skýrslan er mark-
vert innlegg í umræðuna,“ segir
hann.
Sparisjóður vélstjóra hefur keypt
fimm prósent stofnfjár í Spari-
sjóðnum í Keflavík af Festu lífeyr-
issjóði.
Bæði Gylfi Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Festu, og Jón Þor-
steinn Jónsson, stjórnarformaður
SPV, staðfestu þetta í samtali við
Fréttablaðið. Lífeyrissjóðurinn
heldur utan um tíu prósent í SpKef
eftir viðskiptin.
Gylfi sagði að stjórn sjóðsins
hefði viljað innleysa hagnað í ljósi
mikils áhuga á stofnfjárbréfum í
SpKef um þessar mundir. Til að fá
sem hæst verð fyrir bréfin lét líf-
eyrissjóðurinn fara fram lögform-
legt tilboðsferli þar sem stærstu
stofnfjáreigendunum í SPKef og
fagfjárfestum var boðið að leggja
fram tilboð í bréfin. Hæsta tilboði
var tekið og SPV hreppti hnossið
eins og áður sagði.
Jón Þorsteinn sagði að SPV líti
á þessi kaup sem spennandi fjár-
festingu. SpKef hefur styrkst
mikið að undanförnu, ekki síst
eftir að Exista fór á markað en
SpKef á þar þriggja prósenta hlut.
Hvorki Gylfi né Jón Þorsteinn
vildu gefa upp á hvaða verði við-
skiptin fóru fram. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins var
gengið í viðskiptunum 8,2 miðað
við uppreiknað nafnverð stofnfjár-
hluta í SpKef. Það þýðir að SPV
hafi borgað um það bil 470 milljón-
ir króna fyrir hlutinn.
Í morgun hófst stofnfjárútboð í
SpKef þar sem ætlunin er að selja
nýtt stofnfé fyrir 950 milljónir
króna. Á fundi stofnfjáreigenda í
gær var gengið að tillögu stjórnar
um að sameina sjóðinn Sparisjóðn-
um í Ólafsvík.
SPV eignast 5 prósent í SpKef
Kaupverð stofnfjárbréfanna nemur tæpum hálfum milljarði króna.
Peningaskápurinn
Actavis hefur keypt verksmiðju
indverska lyfjafyrirtækisins
Grandix Pharmaceuticals þar sem
fer fram framleiðsla og þróun
samheitalyfja. Halldór Krist-
mannsson, framkvæmdastjóri
innri og ytri samskipta Actavis,
segir þetta mikilvægt skref fyrir
Actavis í harðnandi samkeppnis-
umhverfi. „Til þess að við getum
verið samkeppnishæf og staðist
þær verðlækkanir sem eru að eiga
sér stað á mörgum af okkar lykil-
mörkuðum þurfum við að lækka
framleiðslukostnað. Í verksmiðj-
unni eru í dag framleiddar 700
milljónir taflna á ári. Við ætlum að
auka það magn upp í fjóra millj-
arða. Það mun gera hana að næsts-
tærstu verksmiðju samstæðunn-
ar.“ Actavis á tuttugu verksmiðjur
í tólf löndum og segir Halldór
félagið horfa til þess að efla verk-
smiðjuna á Indlandi og aðrar sem
eru hagkvæmar í rekstri. Á móti
verði framleiðsla á óhagkvæmari
stöðum minnkuð.
Auk nýju verksmiðjunnar
hefur Actavis opnað nýja þróunar-
einingu á Indlandi sem mun sér-
hæfa sig í þróun virkra lyfjaefna.
Verða þau notuð fyrir hluta af
þeim lyfjum sem verða markaðs-
sett á næstu árum í Bandaríkjun-
um og Evrópu.
Auka Indlandsumsvif
HLUTHAFAFUNDUR
Í ICELANDAIR GROUP HOLDING HF.
Stjórn Icelandair Group Holding hf. boðar til hluthafafundar í
félaginu föstudaginn 29. desember 2006, kl. 16. Fundurinn verður
haldinn á Hótel Nordica við Suðurlandsbraut, Reykjavík, á 2. hæð
í fundarsal merktum I.
Á dagskrá fundarins eru:
1. Tillaga stjórnar félagsins um samruna Icelandair Grop ehf. og
Icelandair Group Holding hf. skv. fyrirliggjandi samrunaáætlun
félaganna, dags. 15. nóvember 2006.
2. Tillaga um heimild stjórnar til að samþykkja kaupréttaráætlun fyrir
lykilstarfsmenn félagsins og/eða dótturfélaga þess, og gefa út nýja
hluti í samræmi við það, er taka til allt að 6% af útgefnu hlutafé
félagsins á hverjum tíma.
3. Heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum í félaginu.
4. Önnur mál löglega fram borin.
Hluthöfum er bent á að skjölum viðkomandi fyrirhugaðan samruna, skv. 5. mgr. 124. gr.
hlutafélagalaga, hafa legið frammi á skrifstofum félagsins frá 20. nóvember 2006,
hluthöfum til skoðunar. Þar er um að ræða sjálfa samrunaáætlunina, ársreikninga
yfirtekna félagsins og yfirtöku félagsins eins og þeim er til að dreifa í samræmi við
ákvæði laga, árshlutareikninga samrunafélaganna fyrir fyrstu tíu mánuði ársins 2006,
en samruni félaganna, ef af verður, miðast við 1. nóvember 2006; sameiginlegur
upphafsefnahagsreikningur félaganna, sameiginleg greinargerð stjórna samruna
félaganna, og skýrsla matsmanns. Hluthafar geta fengið framangreind gögn send skv.
beiðni fyrir fundinn, eða nálgast þau á skrifstofu félagsins, en rétt er að taka fram að
gögnin liggja einnig frammi til skoðunar á sjálfum hluthafafundinum.
Vakin er athygli hluthafa á að samþykki hluthafafundir í samrunafélögunum, með
auknum lögbundnum meirihluta, tillöguna um samruna félaganna, á grundvelli fyrir-
liggjandi samrunaáætlunar, þá tekur hið sameinaða félag við rekstri og efnahag
samrunafélaganna þegar skráning hluta hins sameinaða félags hefur verið samþykkt
og farið fram í Kauphöll Íslands hf.
Reykjavík, 20. desember 2006.
F.h. stjórnar Icelandair Group Holding hf.
Jón Karl Ólafsson, forstjóri.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
3
54
90
1
2/
06