Fréttablaðið - 23.12.2006, Side 96
Ætla að koma mér í hóp þeirra 30 bestu
Real Madrid keypti í
vikunni Gonzalo Higuain frá River
Plate fyrir 9 milljónir punda og í
gær gekk félagið frá kaupum á
Fernando Gago frá Boca Juniors
fyrir 14 milljónir punda. Koma
Gago til félagsins þykir ýta undir
þær sögusagnir að David Beck-
ham muni yfirgefa félagið.
Gago er tvítugur og skrifaði
undir sex og hálfs árs samning
við Real Madrid. Hann getur spila
bæði á miðjunni og úti á hægri
kanti og hefur verið líkt við
snillinginn Fernando Redondo
sem lék á sínum tíma með Real
Madrid.
Gago til liðs við
Real Madrid
KSÍ tilkynnti í gær
ráðningu Kristins R. Jónssonar í
starf þjálfara landsliðs karla
skipuðu leikmönnum 19 ára og
yngri. Gerði hann tveggja ára
samning. Þá verður Luka Kostic
áfram með U-17 lið karla næstu
tvö árin en hann þjálfar einnig U-
21 liðið.
Freyr Sverrisson verður
þjálfari U-16 liðsins næstu tvö
árin og þá gerði Ólafur Þór
Guðbjörnsson samning um að
halda áfram með U-19 lið kvenna
næsta árið hið minnsta.
Kristinn þjálfar
U-19 lið karla
Kjöri íþrótta-
manns ársins verður lýst á Grand
Hótel hinn 28. desember næst-
komandi. Samtök íþróttafrétta-
manna standa að kjörinu og allir
23 meðlimir samtakanna kusu að
þessu sinni.
Á topp tíu listanum eru knatt-
spyrnumenn fjölmennastir, þrír
talsins, og handboltinn kemur
næstur með tvo fulltrúa. Hlutur
kvenna er nokkuð góður en fjórar
konur eru á listanum að þessu
sinni.
Atkvæðagreiðslan í kjörinu er
leynileg en efsti maður hvers lista
fær 20 stig, 15 stig eru gefin fyrir
annað sætið og þriðja sætið gefur
10 stig. Allar frekari upplýsingar
um reglugerðir og kjörið sjálft má
finna á heimasíðu samtaka íþrótta-
fréttamanna, www.sportpress.is.
Eiður Smári Guðjohnsen, knatt-
spyrnumaður hjá Barcelona, hefur
hlotið sæmdarheitið síðustu tvö ár
og hann er aftur á topp tíu listanum.
Maðurinn sem hlaut sæmdarheitið
tvö ár í röð þar á undan, handknatt-
leiksmaðurinn Ólafur Stefánsson
hjá Ciudad Real, er einnig á topp tíu
listanum að þessu sinni.
Eins og áður segir eru flestir
knattspyrnumenn á listanum og
vekur athygli að meirihluti þeirra
sé konur. Þrír fyrrverandi hand-
hafar sæmdarheitisins eru á list-
anum en auk þeirra Eiðs Smára og
Ólafs hefur sundkappinn Örn Arn-
arson lyft styttunni góðu og það
þrisvar sinnum.
Eins og áður segir verður kjör-
inu lýst 28. desember næstkom-
andi. Bein útsending frá kjörinu
hefst klukkan 20 á Sýn og RÚV en
Sýn byrjar að rifja upp íþróttaárið
klukkan 19.25.
Hinn 28. desember verður kunngjört hver hlýtur sæmdarheitið Íþróttamaður
ársins. Listi yfir tíu efstu íþróttamennina í kjörinu liggur fyrir. Ný stytta mun
fylgja sæmdarheitinu en gamla styttan er farin á Þjóðminjasafnið.