Fréttablaðið - 03.01.2007, Síða 2
Tryggvi Kr.
Ólafsson, rannsóknarlögreglu-
maður í Vestmannaeyjum, segist
ekki geta svarað því hvort
upplýsingar úr farsímakerfum
hefðu hjálpað til við rannsókn á
íkveikju í Ísfélaginu. „Þetta var
einfaldlega tilraun og ætlunin
var að bera upplýsingarnar
saman við önnur gögn í málinu,
hefðu þær fengist. Þetta var
bara hugmynd sem við ákváðum
að láta reyna á.“
Að sögn Tryggva er ekkert
nýtt að frétta af rannsókninni og
engar handtökur hafa verið átt
sér stað. Bruninn í Ísfélaginu var
fjórða íkveikjan í Eyjum í
desembermánuði einum og sú
ellefta á sex árum.
Vildu upplýs-
ingar úr símum
Fjörutíu og átta ára
gamall karlmaður, sem grunaður
er um að hafa myrt fimm vændis-
konur á Austur-Englandi, hefur
verið úrskurðaður í gæsluvarð-
hald fram í maí. Dómari í Ipswich
ákvað þetta í gær.
Steve Wright var ákærður
fyrir morðin þann 21. desember
síðastliðinn. Er hann kom fyrir
dómarann í gær andmælti hann
hvorki ákærunum né fór fram á
lausn gegn tryggingu.
Lík kvennanna, sem voru á
aldrinum 19 til 29 ára, fundust á
ellefu daga tímabili fyrri hluta
desember í kringum Ipswich.
Gæsluvarðhald
fram í maí
Frumvarpið um
Ríkisútvarpið hefur verið til
umfjöllunar í menntamálanefnd
Alþingis síðan hlé var gert á
þingstörfum 9. desember.
Nefndin
fundar í dag og
verður Páll
Gunnar Pálsson,
forstjóri Sam-
keppniseftirlits-
ins, meðal gesta.
Sigurður Kári
Kristjánsson
nefndarformað-
ur segir upplýs-
ingum og sjónarmiðum hafa
verið safnað en enn hafi ekki
borið á góma að breyta frum-
varpinu. „Málið er ekki komið á
það stig,“ segir Sigurður Kári.
Hann býst við að nefndin komi
saman einu sinni eða tvisvar áður
en þingstörf hefjast 15. janúar en
þá verður Ríkisútvarpið fyrsta
mál á dagskrá.
Ekki verið rætt
um breytingar
Opið: Alla virka daga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00. Sími: 525 8020.
NOTAÐIR BÍLAR
BÍLL DAGSINS
SUBARU IMPREZA GL
Nýskr. 04.99 - Sjálfskiptur - Ekinn 160 þús. km. - Allt að 100% lán.
Verð á
ður: 68
0.000
-
Tilboð
:
490.00
0.-
Bæjarráð Kópavogs
hefur ákveðið að skipulögð verði
sérstök lóð í Kórahverfinu fyrir
einbýlishús auðmannsins Þor-
steins Vilhelmssonar.
Lóðum í Austurkór var úthlut-
að í nóvember síðastliðnum. Um
300 umsækjendur voru um lóðirn-
ar, sem langflestar, eða um 60 tals-
ins, eru fyrir einbýlishús. Flestir
munu hafa sótt um endalóðina
Austurkór 159. Meðal þeirra voru
hjónin Þorsteinn Vilhelmsson og
Þóra Jónsdóttir. Þorsteinn er einna
þekktastur fyrir að vera einna
svokallaðra Samherjafrænda frá
Akureyri. Hann er í dag aðaleig-
andi fjárfestingafélagsins Atorku.
Við útdrátt kom umrædd lóð í
hlut Gunnars Jóhannssonar og
Lindu Bentsdóttur. Mánuði síðar,
sex dögum fyrir jól, átti Þorsteinn
fund með Gunnari I. Birgissyni
bæjarstjóra og fór fram á að fyrir
hann yrði skipulögð sérstök bygg-
ingarlóð á opnu svæði norðvestan
við Austurkór 159. Daginn eftir
sendi Þorsteinn Gunnari formlegt
bréf og vísaði í samtal þeirra:
„Undirritaður leyfir sér jafn-
framt að ítreka það sem þá kom
fram að hann hefur mikinn áhuga á
því að búa áfram í Kópavogi,“
skrifar Þorsteinn bæjarstjóranum.
„Leyfi ég mér nú að óska eftir
því að málið verði tekið til velvilj-
aðrar skoðunar af hálfu Kópavogs-
bæjar og mér úhlutuð umrædd lóð
komi til þess að hún verði sam-
þykkt,“ segir loks í bréfi Þorsteins
sem bæjarstjórinn lagði fyrir
bæjarráðsfund 21. desember.
Bæjarráð kvaðst telja jákvætt
að skoða hvort hægt væri að koma
lóðinni fyrir og óskaði eftir að fá
umsögn Smára Smárasonar skipu-
lagsstjóra bæjarins. Smári sagðist
ekki gera athugasemd við stofnun
lóðarinnar.
Ekki náðist í Gunnar bæjar-
stjóra sem er í leyfi. Staðgengill
hans, Páll Magnússon bæjarritari,
segist ekki geta sagt til um hvort
Þorsteinn fái lóðina eða hvort hún
verði auglýst til úthlutunar sam-
kvæmt gildandi reglum. „Það
hefur engin ákvörðun verið tekin
um það en hins vegar fer málið af
stað að hans beiðni. Bæjarráð
mundi væntanlega taka ákvörðun
um það hvernig lóðinni yrði ráð-
stafað ef hún verður til,“ segir
Páll.
Linda Bentsdóttir og Gunnar
Jóhannsson, sem verða ekki leng-
ur á endalóð, segjast afar ósátt við
vinnubrögð bæjaryfirvalda. „Þetta
er í þriðja skipti sem við sækjum
um lóð. Nú lentum við í útdrætti
og fengum endalóð. Þá er einhver
sem er ekki sáttur og þá á bara að
búa til lóð við hliðina. Ég vissi ekki
að menn gætu bara pantað sér
lóðir. Ég mun gera mitt til að reyna
að hnekkja þessu,“ segir Linda
Bentsdóttir.
Ætla auðmanni lóð
samkvæmt pöntun
Bæjaryfirvöld í Kópavogi vilja verða við ósk milljarðamæringsins Þorsteins
Vilhelmssonar og skipuleggja nýja einbýlishúsalóð á Rjúpnahæð við hlið enda-
lóðar sem hann fékk ekki við úthlutun. Verðandi nágrannar eru afar ósáttir.
Yfirvöld í Kópavogi
sendu starfsmönnum bæjarins
tvær léttvínsflöskur í jólagjöf.
Bæjaryfirvöld gáfu starfsmönn-
um konfekt árið 2005 en nú var
ákveðið að breyta til enda er létt-
vín almenn viðurkennd tækifær-
isgjöf sem mörg fyrirtæki gefa
við ýmis tímamót, að sögn Páls
Magnússonar bæjarritara í Kópa-
vogi. Þetta mun vera í fyrsta
skipti sem Kópavogsbær gefur
starfsmönnum sínum vínflöskur
á jólunum og segir hann að starfs-
menn bæjarins hafi almennt
verið mjög ánægðir með gjöfina.
1.800 starfsmenn vinna hjá Kópa-
vogsbæ og eru um 70 þeirra of ungir
til að mega neyta áfengis og fengu
þeir því geisladisk með íslensku
söngkonunni Lay Low frá bænum að
sögn Páls. Bærinn gaf því 3.460 vín-
flöskur í jólagjafir. Hver flaska
kostar 990 krónur í ríkinu.
Guðríður Arnardóttir, oddviti
Samfylkingarinnar í bæjarstjórn
Kópavogs, segir að hugsunin hafi
verið góð hjá bæjaryfirvöldum
og hún vilji ekki gagnrýna þau of
mikið. „En auðvitað er það alltaf
umdeilt þegar menn gefa vín í
jólagjöf og ég veit að það var kurr
í mörgum vegna þessa,“ segir
Guðríður og bætir því við að það
sem hafi stungið hana mest við
gjöfina var að á kortinu sem
fylgdi kom fram að hún væri frá
Gunnari Birgissyni bæjarstjóra
og Ómari Stefánssyni, formanni
bæjarráðs.
Gáfu tæplega 3.500 vínflöskur
Arna Sigríður Alberts-
dóttir, 16 ára stúlka frá Ísafirði,
slasaðist alvarlega í skíðaslysi í
Noregi 30. desember. Hún liggur
nú á sjúkrahúsi í Ósló hryggbrot-
in og með innvortis blæðingar
eftir að hún lenti á tré í skíða-
brekkunni þar sem hún var við
æfingar ásamt félögum sínum í
Skíðafélagi Ísfirðinga.
Albert Óskarsson, faðir Örnu,
segir líðan dóttur sinnar eftir
atvikum og vonast til að hægt
verði að flytja hana heim um
helgina. Hann fór til Noregs 1.
janúar til að vera hjá dóttur sinni.
Hryggbrotin
eftir skíðaslys
Annar Íslendingurinn til
að líta dagsins ljós árið 2007 var
stúlka sem fæddist á fæðingar-
deild Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja klukkan sex mínútur í
fjögur aðfaranótt nýársdags. Í
Fréttablaðinu í gær var ranglega
sagt frá því að annar Íslendingur-
inn hefði fæðst á Landspítalanum
klukkan rúmlega fimm.
Móðirin mætti upp á fæðingar-
deild þegar hálftími var liðinn af
nýja árinu. Stúlkan var rúmar 13
merkur og 51 sentimetri. Hún er
fyrsta barn foreldra sinna og
heilsast móður og barni vel.
Annar Íslend-
ingur ársins
Meira en þrjú þúsund manns voru
viðstaddir viðhafnarútför Geralds Fords, fyrrver-
andi Bandaríkjaforseta, sem haldin var í dómkirkj-
unni í Washington í gær. Meðal gestanna var Valgerð-
ur Sverrisdóttir utanríkisráðherra ásamt öðrum
fulltrúum erlendra ríkja.
Líkkista Fords hafði í tvo daga legið á viðhafnar-
börum í hvelfingu bandaríska þinghússins í Washing-
ton þar sem ættingjar hans og fyrrverandi jafnt sem
núverandi ráðamenn Bandaríkjanna vottuðu hinum
látna virðingu sína.
Ræður við útförina héldu George W. Bush forseti,
Henry Kissinger, fyrrverandi utanríkisráðherra, og
Tom Brokaw, fyrrverandi fréttaþulur NBC-sjón-
varpsstöðvarinnar.
Eftir athöfnina í Washington í gær var kista Fords
flutt til bæjarins Grand Rapids í Michigan, þar sem
hann ólst upp. Þar verður hann borinn til grafar í dag
að lokinni smærri athöfn fyrir nánustu ættingja og
vini.
Ford tók við forsetaembættinu árið 1974 þegar
Richard Nixon hrökklaðist frá völdum vegna
Watergate-málsins. Ford tapaði síðan forsetakosning-
um fyrir Jimmy Carter rúmlega tveimur árum síðar.
Ford lést á heimili sínu í Kaliforníu 26. desember
síðastliðinn, 93 ára gamall.
Er skollið á stéttastríð,
Gunnar?