Fréttablaðið - 03.01.2007, Blaðsíða 23
Lögaldur reykingarmanna hækkaður á
Englandi og í Wales.
Ný lög sem kveða á um að menn verði að
vera minnst átján ára til að geta fest kaup á
tóbaki taka gildi á Englandi og í Wales á
þessu ári. Aldursmörkin hækka þar með um
tvö ár.
Með þessari ákvörðun er vonast til að
stemma stigu við háu hlutfalli ungmenna
undir lögaldri sem kaupa tóbak, en rann-
sóknir sýna að níu prósent breskra barna á
aldrinum ellefu til fimmtán ára reykja.
Nýleg skoðanakönnun sýnir ennfremur að
einungis 23 prósent barna undir lögaldri eiga
í einhverjum erfiðleikum með að kaupa
tóbak. Í sjötíu prósentum tilfella er það keypt
hjá blaðsölum og í kjörverslunum.
Sérfræðingar segja unga reykingarmenn
eiga mun erfiðara með að hætta en þá sem
byrja síðar. Að sama skapi séu reykingar þri-
svar sinnum líklegri til að verða ungum reyk-
ingarmönnum seinna að aldurtila.
Þessi ákvarðanataka ríkisstjórnarinnar
kemur í kjölfar reykingarbanns á opinberum
stöðum sem verður lögfest seinna á árinu.
Eru yfirvöld bjartsýn á að ákvörðunin skili
tilætluðum árangri, auk þess að minnka fjár-
munina sem heilbrigðisyfirvöld þurfa að
verja til að taka á vandanum.
Ekki eru þó allir jafn jákvæðir í garð þess-
arar breytingar. Nokkrir læknar hafa bent á
að grípa verði til mun sterkari, samhæfðari
aðgerða eigi hún að skila góðri útkomu.
Þess má loks geta að með þessari hækkun
skipa England og Wales sér í flokk með
Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjá-
landi og Íslandi, svo dæmi séu tekin.
Reynt að draga úr reykingum barna
Jóga og dans eru í hávegum
höfð í Mannræktinni Atorku í
Álafosskvosinni í Mosfellsbæ.
„Við leggjum áherslu á að bjóða
upp á námskeið sem efla hvern og
einn til líkama og sálar,“ segir
Gunnlaugur B. Ólafsson lífeðlis-
fræðingur. Hann stendur m.a. að
Mannræktinni Atorku sem er til
húsa í Þrúðvangi í Álafosskvos og
kennir þar Rope Yoga. Aðrir jóga-
kennarar eru Áslaug Höskulds-
dóttir, leirlistakona og jógakenn-
ari til 15 ára, og Gunnhildur
Konráðsdóttir leikskólakennari
sem kennir Hatha Yoga. Í Atorku
er nefnilega áhersla lögð á
skemmtilegar og uppbyggjandi
greinar eins og jóga og dans og
einnig er Pilates-æfingakerfið á
dagskrá er eykur styrk, jafnvægi
og vellíðan. Ástrós Gunnarsdóttir
dansari hefur nýlokið kennslurétt-
indum í Pilates og býður upp á
tíma í Atorku. Um danskennsluna
sjá tangóhjónin frægu Hany Had-
aya og Bryndís Halldórsdóttir,
salsadrottingin Rossie Maillard
frá Chile og Rosana, margfaldur
Íslandsmeistari í magadansi.
Berglind Björgúlfsdóttir, söng-
kona og tónlistarkennari, sér svo
um tónlist og skapandi hreyfingu
fyrir börn frá 3-8 ára.
Kynning verður á námskeiðum
Atorku á laugardaginn, 6. janúar,
milli klukkan 14 og 16 í Þrúð-
vangi.
Markmið
Atorku að
efla hvern
og einn
Bakpoki sem dregur úr álagi á
baki og liðum er ný uppfinning.
Mörg skólabörn þjást af bak-
verkjum og vöðvabólgu ung að
aldri vegna þess að þau þurfa að
bera þungar skólatöskur. Nú hefur
verið fundinn upp bakpoki sem
gæti verið lausn á þessu vanda-
máli. Í pokanum eru teygjanlegir
þræðir sem veldur því að bakpok-
inn skoppar upp og niður í stað
þess að berja á axlirnar og bakið
þegar hann hreyfist. Hönnuður-
inn, lífeðlisfræðingurinn Law-
rence Rome, sem á heiðurinn af
þess nýja bakpoka sér fyrir sér að
þetta muni létta álaginu á baki og
hrygg skólabarna, hermanna og
allra þeirra sem þurfa að bera
þunga byrði á bakinu.
Minna álag
á bakið