Fréttablaðið - 03.01.2007, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 03.01.2007, Blaðsíða 53
Þinglok Alþingis nú fyrir jólin breyttust skyndilega í örvænt- ingarfulla atlögu formanns Sam- fylkingarinnar að Geir H. Haarde forsætisráðherra. Með valdagráð- ugri reiði réðst flokksstýran að honum með afar ósanngjörnum áróðursorðum vegna viðkvæm- ustu borgara þessa lands: Fátækra barna. Ruslbíómyndir, sorpsjónvarps- efni og drasldagblöð eiga sameig- inlegt með sumum stjórnmála- mönnum að beita jafnvel uppdiktuðu lýðskrumi til að rugla rökvísi fólks. Og þekkt er sú aðferð lýðskrumara í stjórnmál- um að kýla undir beltisstað, en slík högg hafa lengi þótt bleyðu- legust aðferða til að styrkja stöðu sína í kappleik og kappræðu. Formaður Samfylkingarinnar veit betur en áhorfendurnir sem hún reyndi að blekkja gegn betri vit- und. Hún veit að þegar Geir H. Haarde tók við formennsku Sjálf- stæðisflokksins og embætti for- sætisráðherra urðu straumhvörf í málefnum fátæks fólks á Íslandi – en hún þegir um það. Allir vita að sá uppsafnaði vandi sem fátækt er á Íslandi er á ábyrgð forvera núverandi forsæt- isráðherra. Í tíð forverans átti helzt að láta sem fátækt fólk væri ekki til. Viðhorfsbreytingin síðan þá er umbylting. Tabú breyttist í hnitmiðaðar aðgerðir sem nú standa yfir. Með einlægum ásetningi og fullum heilindum varð formaður Sjálfstæðisflokksins og sam- starfsfólk við réttmætri ábend- ingu Samfylkingarinnar um opin- bera rannsókn á aðstæðum þeirra sem búa við kröppust kjör hér á landi. Forsætisráðherra stóð svo sjálfur að gerð skýrslu um ástand- ið. Hann vildi rannsaka kjör fátæks fólks til að geta betur bætt þau. Með sérstökum fókus á fátæk börn, eldri borgara, einstæðra foreldra og öryrkja. Svo kemur formaður Samfylkingarinnar í aðdraganda jóla og ræðst á hann mitt í þessu verkefni. Er til ósmekklegri pólitík? Fyrir formanni Samfylkingar- innar vakti fyrst og fremst að koma höggi á þann sem hún veit að í góðum ásetningi vill bæta samfélagið og auka mannúð þess. Svo áköf var hún í árásum sínum að orðin fátæk börn urðu sem merkingarlaus í munni hennar. Urðu eins konar söluvara. Það er óhugnanlegt að verða vitni að því að orðin fátæk börn breytist í söluvöru í munni vonstola stjórnmála- manna. Að fátæk börn séu notuð sem beita í atkvæðaveiðum. Og það er nýmæli að valdagráðugt fólk noti fátæk börn sem skiptimynt í rökþrota umræðu í harki stjórnmálanna með þessum hætti. Gegn betri vit- und. Það er vont vega- nesti inn í framtíðina. Og afleit framkoma gagn- vart vönduðum stjórn- málamönnum eins og Geir H. Haarde forsæt- isráðherra sem hefur sýnt sanngirni og sam- starfsvilja í þessu alvar- lega máli og vilja til öfl- ugra aðgerða. Enda kom hann strax af stað víð- tæku átaki til að bæta ástandið. Ríkið gerir nú sitt. Borgin líka. En flokksstýran þegir um það. Sjálfstæðisflokkurinn er flokk- ur frelsis, mannúðar – og mann- helgi. Með áherzlu á virðingu fyrir einstaklingnum og þeim hæfileikum og krafti sem í honum býr og stækka manninn. Kristi- legt siðgæði er þar grunnþema eins og í menningu okkar allri. Í því felzt svo sá ásetningur að vinna á öllum þjóðfélagsmeinum sem minnka manninn. Og er eilífð- arverkefni. Róm var heldur ekki byggð á einum degi. Að taka á flóknum vanda tekur tíma. Ásetn- ingur Sjálfstæðisflokks dagsins í dag er samt skýr og klár í þessu efni. Formaður Samfylkingarinnar veit fullvel að vatnaskil hafa orðið í Sjálfstæðisflokknum sem hefur endurnýjast margvíslega og gæfulega. Ekki sízt í málefnum þeirra sem minnst mega sín. Með sígildu slagorðin stétt með stétt og frelsi og mannúð að leiðarljósi. En flokksstýrunni er sama. Rúin trausti sér hún það sem hún vill sjá. Fíkn í völdin byrgir henni sýn og brenglar því miður málstað hennar. Vopnin snúast í höndum lýð- skrumara. Og valdagræðgi er ekki gæfuríkur hvati í stjórnmál- um frekar en önnur ágirnd. Blind peningagræðgi og valdagræðgi eru af sama meiði og tæra sálina. Þá er stutt í örvæntingu, dramb og heift sem eru verztu óvinir heilbrigðra stjórnmála. Það er áminning til formanns Samfylk- ingarinnar. Höfundur er kvikmyndagerðar- maður. Fátæk börn peð í valdagráðugu tafli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.