Fréttablaðið - 03.01.2007, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 03.01.2007, Blaðsíða 58
! Kl. 20.00Tónsmíðafélagið S.L.Á.T.U.R., Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík, halda lúðra- tónleika í Fríkirkjunni. Sex flytjend- ur leika á lúðra en tveir af þeim eiga einnig verk á tónleikunum. Flutt verður ný tónlist eftir Áka Ásgeirs- son, Benedikt Hermann Hermanns- son, Guðmund Stein Gunnarsson, Inga Garðar Erlendsson, Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Pál Ivan Pálsson. Tilfinningarík tónlist Árleg úthlutun úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins var á gamlársdag og fékk Jón Kalman Stefánsson hana að þessu sinni. Jón hlaut sem kunnugt er íslensku bókmennta- verðlaunin fyrr á árinu enda er hann margra verðlauna maklegur: Jón hóf feril sinn sem ljóðskáld en hefur um langt árabil stundað sagnabúskap og sent frá sér fjölda eftirminnilegra sagna. Að vanda gafst þeganum tæki- færi til að segja nokkur orð og kaus Jón að gera við athöfnina það að meginmáli sínu að gagnrýna lágar styrkveitingar íslenska rík- isins til erlendra háskóla sem reka íslenskuskorir fyrir námsmenn sína. Menntun erlendra manna í íslensku er sem kunnugt er mikil- vægt tæki til að tryggja viðgang íslenskra bókmennta á erlendum vettvangi. Verðlaunin eru peningaupphæð sem fengin er úr höfundarlaunum á íslensku efni í Ríkisútvarpinu hljóðvarpi. Þetta árið námu þau 600 þúsund krónum. Jón fékk pening Frumraun Þóru Einarsdótt- ur sópransöngkonu með Sinfóníuhljómsveit Íslands var á Vínartónleikum þeirra fyrir tólf árum. Hún endurtekur nú leikinn og stígur á svið á fernum tón- leikum því ekki má minna vera – svo vinsæll er þessi menningarviðburður. Vínartónleikar Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands hafa verið árlegur viðburður síðan árið 1981 og fara vinsældir þeirra stöðugt vaxandi. Eins og undanfarin ár verða haldn- ir fernir tónleikar í Háskólabíói, hinir fyrstu í dag á venjubundnum tíma kl. 19.30. Hinir síðari verða á sama tíma á morgun og á föstu- dagskvöld en þeir síðustu síðdegis á laugardag. Þóra segir að það sé skemmti- leg tilviljun að hún stígi aftur á svið með Sinfóníunni á þessum tónleikum nú og áréttar að henni finnist ótrúlegt að tólf ár séu liðin frá fyrstu tónum hennar með sveitinni. Þóra stundaði söngnám við Söngskólann í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og síðan við Guildhall School of Music and Drama. Hún hefur sótt námskeið hjá ýmsum merkum söngvurum og tónlistarmönnum. Að námi loknu kom Þóra fram við Glynde- bourne Festival Opera aðeins 23 ára gömul en frumraun hennar á sviði var í Rigoletto í Íslensku Óperunni fimm árum áður. Síðan þá hefur hún sungið víða um lönd við fræg óperuhús auk þess sem hún hefur komið mjög víða fram á tónleikum, bæði með hljómsveitum og með píanómeð- leik. Óperuhlutverk Þóru eru orðin ótrúlega mörg eða á fjórða tug og spanna mjög vítt svið, allt frá Rameau til Birtwistle. Hún hefur þó lagt sérstaka áherslu á óperu- hlutverk Mozarts og hefur nú sungið yfir hundrað sinnum í óper- um hans. Þóra hefur að mestu starfað á meginlandinu og sungið mikið á Englandi en nú er hún búsett í Þýskalandi þar sem hún mun syngja hlutverk Kleópötru í óperu Händels um Júlíus Sesar og takast á við Carmina Burana. „Eitt hefur einfaldlega tekið við af öðru og maður trúir því eiginlega ekki hvað þetta er búinn að vera langur tími,“ segir Þóra en hún hefur ekki sungið hér heima síðan síðasta vor þegar hún tók þátt í flutningi Söngsveitarinnar Fílharmoníu á Sálumessu Mozarts. Það er líka sitthvað í bígerð þegar kemur að tónleikahaldi hér heima en Þóra vill lítið láta uppi um slíkt að svo stöddu. Efnisskráin á tónleikunum geymir kunnugleg stef og hljóma og segist Þóra búast við góðri stemningu. „Við flytjum verk Strauss, bæði föður og sonar, sem er við hæfi á Vínartónleikum. Þarna verða valsarnir sem fólk þekkir og þess vegna finnst gest- um þetta svo gaman.“ Sem dæmi má þar nefna „An der schönen, blauen Donau“, atriði úr Leður- blökunni og „Sögur úr Vínar- skógi“ en auk þeirra Strauss- feðga verða einnig leikin verk eftir Richard Heuberger og Carl Millöcker „Þetta er líka skemmtileg til- breyting fyrir mig því ég hef aðallega verið að syngja Mozart og Händel en þetta er meiri dans- músík. Ég held að fólkið syngi líka með í hjartanu,“ segir Þóra. Hljómsveitarstjórinn Christ- opher Warren-Green stýrir sveit- inni að þessu sinni en hann hefur verið tónlistarstjóri Kammer- sveitar Lundúnaborgar síðan 1988 auk þess að stýra þekktum sveit- um vestan hafs og hljóðrita fyrir virtustu útgáfufyrirtæki heims. Warren-Green hóf feril sinn sem fiðluleikari og segja for- svarsmenn sveitarinnar ekki ólík- legt að hann freistist til þess að handleika hljóðfærið við þetta tækifæri. Þetta er í fyrsta sinn sem Þóra vinnur með honum en hún segist vera einkar ánægð með samstarfið. „Það er sérstak- lega gaman hvernig þetta bland- ast hjá honum því hann er sjálfur Englendingur sem eru þekktir fyrir smekkvísi og eru jafnan skemmtilega nákvæmir. Hins vegar er Vínarhefðin frjálsleg og mér líkar vel hvernig þetta mæt- ist.“ Nánari upplýsingar um tón- leika og efnisskrána má finna á heimasíðu Sinfóníuhljómsveitar Íslands, www.sinfonia.is. fl group er aðalstyrktaraðili sinfóníuhljómsveitar íslands SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS græn tónleikaröð í háskólabíói Hljómsveitarstjóri ::: Christopher Warren-Green Einsöngvari ::: Þóra Einarsdóttir Í KVÖLD, MIÐVIKUDAGSKVÖLD KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS Vínartónlist eftir Johann Strauss yngri, Johann Strauss eldri, Carl Millöcker og Richard Heuberger Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar eru í huga margra jafn ómissandi hluti af því að fagna nýju ári og flugeldar og brennur. Líklega verður uppselt á Vínartónleika venju samkvæmt og því er ráðlegt að tryggja sér miða í tíma á www.sinfonia.is tónleikar utan raða í háskólabíói FIMMTUDAGINN 4. JANÚAR KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS FÖSTUDAGINN 5. JANÚAR KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS LAUGARDAGINN 6. JANÚAR KL. 17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS Vínartónleikar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.