Fréttablaðið - 03.01.2007, Qupperneq 58
! Kl. 20.00Tónsmíðafélagið S.L.Á.T.U.R.,
Samtök listrænt ágengra tónsmiða
umhverfis Reykjavík, halda lúðra-
tónleika í Fríkirkjunni. Sex flytjend-
ur leika á lúðra en tveir af þeim eiga
einnig verk á tónleikunum. Flutt
verður ný tónlist eftir Áka Ásgeirs-
son, Benedikt Hermann Hermanns-
son, Guðmund Stein Gunnarsson,
Inga Garðar Erlendsson, Maríu Huld
Markan Sigfúsdóttur og Pál Ivan
Pálsson.
Tilfinningarík tónlist
Árleg úthlutun úr Rithöfundasjóði
Ríkisútvarpsins var á gamlársdag
og fékk Jón Kalman Stefánsson
hana að þessu sinni. Jón hlaut sem
kunnugt er íslensku bókmennta-
verðlaunin fyrr á árinu enda er
hann margra verðlauna maklegur:
Jón hóf feril sinn sem ljóðskáld en
hefur um langt árabil stundað
sagnabúskap og sent frá sér fjölda
eftirminnilegra sagna.
Að vanda gafst þeganum tæki-
færi til að segja nokkur orð og
kaus Jón að gera við athöfnina það
að meginmáli sínu að gagnrýna
lágar styrkveitingar íslenska rík-
isins til erlendra háskóla sem reka
íslenskuskorir fyrir námsmenn
sína. Menntun erlendra manna í
íslensku er sem kunnugt er mikil-
vægt tæki til að tryggja viðgang
íslenskra bókmennta á erlendum
vettvangi.
Verðlaunin eru peningaupphæð
sem fengin er úr höfundarlaunum
á íslensku efni í Ríkisútvarpinu
hljóðvarpi. Þetta árið námu þau
600 þúsund krónum.
Jón fékk pening
Frumraun Þóru Einarsdótt-
ur sópransöngkonu með
Sinfóníuhljómsveit Íslands
var á Vínartónleikum
þeirra fyrir tólf árum. Hún
endurtekur nú leikinn og
stígur á svið á fernum tón-
leikum því ekki má minna
vera – svo vinsæll er þessi
menningarviðburður.
Vínartónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands hafa verið árlegur
viðburður síðan árið 1981 og fara
vinsældir þeirra stöðugt vaxandi.
Eins og undanfarin ár verða haldn-
ir fernir tónleikar í Háskólabíói,
hinir fyrstu í dag á venjubundnum
tíma kl. 19.30. Hinir síðari verða á
sama tíma á morgun og á föstu-
dagskvöld en þeir síðustu síðdegis
á laugardag.
Þóra segir að það sé skemmti-
leg tilviljun að hún stígi aftur á
svið með Sinfóníunni á þessum
tónleikum nú og áréttar að henni
finnist ótrúlegt að tólf ár séu liðin
frá fyrstu tónum hennar með
sveitinni.
Þóra stundaði söngnám við
Söngskólann í Reykjavík hjá Ólöfu
Kolbrúnu Harðardóttur og síðan
við Guildhall School of Music and
Drama. Hún hefur sótt námskeið
hjá ýmsum merkum söngvurum
og tónlistarmönnum. Að námi
loknu kom Þóra fram við Glynde-
bourne Festival Opera aðeins 23
ára gömul en frumraun hennar á
sviði var í Rigoletto í Íslensku
Óperunni fimm árum áður.
Síðan þá hefur hún sungið víða
um lönd við fræg óperuhús auk
þess sem hún hefur komið mjög
víða fram á tónleikum, bæði með
hljómsveitum og með píanómeð-
leik. Óperuhlutverk Þóru eru orðin
ótrúlega mörg eða á fjórða tug og
spanna mjög vítt svið, allt frá
Rameau til Birtwistle. Hún hefur
þó lagt sérstaka áherslu á óperu-
hlutverk Mozarts og hefur nú
sungið yfir hundrað sinnum í óper-
um hans.
Þóra hefur að mestu starfað á
meginlandinu og sungið mikið á
Englandi en nú er hún búsett í
Þýskalandi þar sem hún mun
syngja hlutverk Kleópötru í óperu
Händels um Júlíus Sesar og takast
á við Carmina Burana. „Eitt hefur
einfaldlega tekið við af öðru og
maður trúir því eiginlega ekki
hvað þetta er búinn að vera langur
tími,“ segir Þóra en hún hefur ekki
sungið hér heima síðan síðasta vor
þegar hún tók þátt í flutningi
Söngsveitarinnar Fílharmoníu á
Sálumessu Mozarts. Það er líka
sitthvað í bígerð þegar kemur að
tónleikahaldi hér heima en Þóra
vill lítið láta uppi um slíkt að svo
stöddu.
Efnisskráin á tónleikunum
geymir kunnugleg stef og hljóma
og segist Þóra búast við góðri
stemningu. „Við flytjum verk
Strauss, bæði föður og sonar, sem
er við hæfi á Vínartónleikum.
Þarna verða valsarnir sem fólk
þekkir og þess vegna finnst gest-
um þetta svo gaman.“ Sem dæmi
má þar nefna „An der schönen,
blauen Donau“, atriði úr Leður-
blökunni og „Sögur úr Vínar-
skógi“ en auk þeirra Strauss-
feðga verða einnig leikin verk
eftir Richard Heuberger og Carl
Millöcker
„Þetta er líka skemmtileg til-
breyting fyrir mig því ég hef
aðallega verið að syngja Mozart
og Händel en þetta er meiri dans-
músík. Ég held að fólkið syngi
líka með í hjartanu,“ segir Þóra.
Hljómsveitarstjórinn Christ-
opher Warren-Green stýrir sveit-
inni að þessu sinni en hann hefur
verið tónlistarstjóri Kammer-
sveitar Lundúnaborgar síðan 1988
auk þess að stýra þekktum sveit-
um vestan hafs og hljóðrita fyrir
virtustu útgáfufyrirtæki heims.
Warren-Green hóf feril sinn
sem fiðluleikari og segja for-
svarsmenn sveitarinnar ekki ólík-
legt að hann freistist til þess að
handleika hljóðfærið við þetta
tækifæri. Þetta er í fyrsta sinn
sem Þóra vinnur með honum en
hún segist vera einkar ánægð
með samstarfið. „Það er sérstak-
lega gaman hvernig þetta bland-
ast hjá honum því hann er sjálfur
Englendingur sem eru þekktir
fyrir smekkvísi og eru jafnan
skemmtilega nákvæmir. Hins
vegar er Vínarhefðin frjálsleg og
mér líkar vel hvernig þetta mæt-
ist.“
Nánari upplýsingar um tón-
leika og efnisskrána má finna á
heimasíðu Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, www.sinfonia.is.
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
græn tónleikaröð í háskólabíói
Hljómsveitarstjóri ::: Christopher Warren-Green
Einsöngvari ::: Þóra Einarsdóttir
Í KVÖLD, MIÐVIKUDAGSKVÖLD KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Vínartónlist eftir Johann Strauss yngri,
Johann Strauss eldri, Carl Millöcker og
Richard Heuberger
Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar
eru í huga margra jafn ómissandi hluti af því
að fagna nýju ári og flugeldar og brennur.
Líklega verður uppselt á Vínartónleika venju
samkvæmt og því er ráðlegt að tryggja sér
miða í tíma á www.sinfonia.is
tónleikar utan raða í háskólabíói
FIMMTUDAGINN 4. JANÚAR KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS
FÖSTUDAGINN 5. JANÚAR KL. 19.30 ÖRFÁ SÆTI LAUS
LAUGARDAGINN 6. JANÚAR KL. 17.00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
Vínartónleikar