Fréttablaðið - 03.01.2007, Page 61

Fréttablaðið - 03.01.2007, Page 61
31 1 2 3 4 5 6 Á gamlárskvöld var frumsýndur nýr danskur söngleikur, Midt om natten. Midt om natten var hljóm- plata sem kom út þann 24. nóv- ember 1983 og er mest selda plata í sögu Danmerkur. Talið er að hún finnist enn á meira en tíunda hverju heimili í Dan- mörku. Höfundur laganna og aðalflytjandi var Kim Larsen. Efni laganna var allt tengt pólit- ískri baráttu þessa tíma, íbúðar- tökufólki og baráttunni fyrir framtíð Kristjaníu. Skömmu eftir útgáfu plötunnar hafði Larsen samband við Erik Balling leik- stjóra (79 af stöðinni, Matador, Olsen Banden) og varpaði þeirri hugmynd fram að gera kvikmynd eftir lögunum á plötunni sem varð úr: Midt om natten-kvik- myndin var frumsýnd ári síðar. Nú er Balling fallinn frá en Larsen heldur enn veldissprota sínum sem þjóðargersemi Dana: menn gera því ráð fyrir að söng- leikurinn gangi vel. Þetta er dýrð- aróður til baráttunnar um mann- gildi og frelsi, segir leikstjórinn Mikael Fock. Tónlistin er klingj- andi rokk með elskulegum laglín- um, þéttu undirspili og glæsileg- um söng. Hér er borgarstjórnin í Höfn fjandmaðurinn, rokkararn- ir ráða öllu, og ungt fólk berst við atvinnuleysi. Fjarri eru mál inn- flytjenda. Fyrir bragðið er yfir sýningunni þrá eftir liðnum tíma. Sýningin er á Det Danske Teater. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem efni úr danskri kvikmynd kveikir söngleik – kvikmyndin Den enes- te ene leiddi til söngleiks fyrir tveimur árum sem naut mikilla vinsælda í Danmörku. Hér á landi hefur danskur söngleikur ekki komið á svið síðan Þjóðleikhúsið setti Táningaást eftir Ernst Bruun Olsen á svið á miðjum sjö- unda áratug síðustu aldar en á fyrri hluta aldarinnar hafði dönsk dægurlagatónlist mikil áhrif hér á landi. Söngleikurinn Um miðja nótt

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.