Fréttablaðið - 03.01.2007, Síða 62
Mikill nýársfagnaður var
haldinn í veislusalnum Lídó
þar sem fjöldi prúðbúins
fólks lét sig ekki vanta til að
fagna árinu 2007.
Félagarnir Andrés Pétur, Sveinn
Eyland, Hilmar í Blend og Ívar
Guðmundsson stóðu á bak við
uppákomuna, sem heppnaðist vel
eins og svo oft áður. Athygli vakti
að háttsettur maður innan enska
knattspyrnuliðsins Chelsea kíkti í
partíið og skemmti sér konung-
lega.
Keith Urban, eiginmaður Nicole
Kidman, er farinn aftur í meðferð
eftir að hafa verið með fjölskyld-
unni í Ástralíu yfir jólin. Urban
skráði sig í áfengismeðferð hjá
Betty Ford-stofnuninni í Kaliforn-
íu í október í fyrra en fékk að
verja jólunum með fjölskyldunni
en til Sydney hafði hann ekki
komið síðan hann og Kidman
gengu í það heilaga þar á síðasta
ári.
Eftir að fjölmiðlar vestra gerðu
því skóna að Urban hefði lokið
meðferðinni tók talsmaður hans
öll tvímæli af og tilkynnti að hann
væri snúinn aftur á stofnunina.
Urban aftur
í meðferð
Ofurhljómsveitin Queen er besta
breska hljómsveitin að mati hlust-
enda BBC Radio 2. Alls bárust
tuttugu þúsund atkvæði og skutu
Freddie Mercury og félagar hljóm-
sveitum á borð við Rolling Stones,
Bítlana, Take That og Oasis ref
fyrir rass. Hlustendur voru beðnir
um að gefa hljómsveitum einkunn
fyrir mikilvæga þætti og nægir
þar að nefna texta- og lagasmíðar,
framkomu á tónleikum og útgeisl-
un.
Queen var ein þeirra fimm
hljómsveita sem komust í úrslit og
hafði sigur eftir harða keppni við
Bítlana en einungis munaði fjögur
hundruð atkvæðum á þeim.
Queen varð hvað frægust fyrir
ákaflega líflega framkomu söngv-
arans Freddies Mercury en hann
lést úr alnæmi árið 1991. Hljóm-
sveitin hélt hins vegar áfram
störfum og frá árinu 2004 hefur
Paul Rodgers gegnt stöðu for-
sprakka. Samkvæmt síð-
ustu fregnum úr herbúð-
um sveitarinnar er stefnt
á nýja plötu á næstunni
með þessari með-
limaskipan en söng-
leikur byggður á
lögum Queen, We
Will Rock You,
er sýndur fyrir
fullu húsi í
London og
víðar.
Samkvæmt fréttum bresku slúð-
urpressunnar eru ofurfyrirsætan
Kate Moss og Pete Doherty nú gift
en talið er að þau hafi látið pússa
sig saman á eyjunni Phuket sem
tilheyrir Taílandi á gamlárskvöld.
Bresku blöðin hafa lengi fylgst
með þessum ólíkindatólum og
samlífi þeirra, enda er Doherty nú
á skilorði fyrir ólöglega vörslu
fíkniefna en Moss nýkomin úr
meðferð frá Bandaríkjunum.
Athöfnin var sögð hafa verið að
búddískum sið en giftingin telst
ekki lögleg í Bretlandi. Gula press-
an í Bretlandi er sannfærð um að
þetta brúðkaup sé aðeins forsmekk-
urinn af því sem koma skal en bæði
The Sun og The Mirror greina frá
því að vinir og ættingjar skötuhjú-
anna hafi verið beðnir um að taka
frá 18. janúar sem sé þá hugsanlega
stóri dagurinn. Talsmenn ferða-
mannaeyjunnar Phuket neita öllum
fréttum um brúðkaupið og sögðu
það ekki hafa farið fram enda hefði
parið ekki verið á staðnum.
Bresku fjölmiðlarnir halda því
hins vegar fram að nánustu vinir
Pete og Kate hafi verið viðstaddir
og að þau hafi notið kvöldsólarinn-
ar eftir athöfnina á fallegu hóteli
við ströndina.
Kate og Pete sögð hafa gift sig á Taílandi
Queen besta breska hljómsveitin
Gleðilegt ár!
Kennsla hefst
8. janúar
Innritun og upplýsingar
í síma 561 5620
frá kl. 12-17
www.schballett.is