Fréttablaðið - 03.01.2007, Page 67
Stuðningsmenn Chelsea
gerðu sér lítið fyrir og bauluðu á
liðið sitt eftir 2-2 jafnteflisleikinn
gegn Fulham um síðustu helgi.
Jose Mourinho, stjóri liðsins,
hefur látið stór orð falla um ein-
staka leikmenn og gagnrýndi þá
opinberlega eftir jafnteflið sem
setti Chelsea sex stigum á eftir
Manchester United.
Þrátt fyrir ótrúlegt fjármagn,
sem Mourinho hefur nýtt sér til
fullnustu með því að fá til sín
nafntogaða leikmenn á borð við
Michael Ballack og Andriy Shev-
chenko, hefur Chelsea ekki náð að
sýna þá yfirburði sem liðið hefur
áður sýnt. Eftir meiðsli Johns
Terry og Petrs Cech, sem Mourin-
ho segist sakna sárlega, hefur vörn
liðsins verið hriplek og meðal ann-
ars fengið á sig tvö mörk í hverjum
leik í síðustu þremur umferðum.
Mourinho snýst nú til varnar
og varar stuðningsmenn Chelsea
við. „Ef þeir vita stöðuna sem við
erum í hafa þeir enga ástæðu til
þess að gera þetta þar sem engin
kraftaverk gerast í fótboltanum,“
sagði Mourinho sem lýsti því yfir
eftir leikinn gegn Fulham að
Didier Drogba væri eini leikmað-
urinn sem væri að spila af fullri
getu. „Ég er enn sannfærður um
að við vinnum deildina,“ segir
Drogba. „Ég var líka sannfærður
um það þegar við vorum átta stig-
um frá efsta sætinu en við höfum
minnkað það um tvö stig. Ég veit
að það verður erfitt þar sem
Manchester United er að spila
vel um þessar mundir,“ sagði
Drogba.
Ekki búast við neinum kraftaverkum
Antti Niemi, markvörður
Fulham, hefur verið útskrifaður
af spítala en höfuðmeiðsli sem
hann varð fyrir í markalausu
jafntefli gegn Fulham reyndust
ekki eins alvarleg og fyrst var
talið. Þessi finnski leikmaður mun
gangast undir fleiri skoðanir síðar
í vikunni en Fulham mun kalla
Tony Warner til baka úr láni hjá
Leeds til að fylla hans skarð.
Fór betur en á
horfðist
Peter Crouch segist ekki
hafa nokkurn áhuga á því að
yfirgefa herbúðir bikarmeistara
Liverpool. Hinn hávaxni fram-
herji skoraði sitt tíunda mark á
tímabilinu með glæsilegri
bakfallsspyrnu gegn Bolton á
nýársdag en hann hefur verið
orðaður við Newcastle undanfar-
ið. „Ég hef heyrt þetta allt en ég
er mjög ánægður hérna og dýrka
að spila fyrir þennan klúbb,“
segir Crouch.
„Þetta er frábært félag, allir
leikir eru stórleikir og ég vil alls
ekki fara. Ég vona að ég hafi sýnt
að ég legg mig alltaf 100 prósent
fram. Ég sé framtíð mína hérna
og svo lengi sem stjórinn vill ekki
að ég fari fer ég ekki neitt.“
Ég vil ekki fara
Louis Saha, sóknarmaður
Manchester United, verður frá
vegna nárameiðsla næstu tvær
vikurnar. Hann fór meiddur af
velli eftir hálftíma leik þegar
United gerði 2-2 jafntefli við
Newcastle á nýársdag.
Hinn sænski Henrik Larsson
kemur því til liðsins á besta tíma
en lánssamningur hans hefur
tekið gildi og mun hann leika sinn
fyrsta leik gegn Aston Villa í
bikarkeppninni um komandi
helgi. Hann mun verða í sókninni
ásamt Ole Gunnar Solskjær sem
skoraði tvö mörk í jólatörninni.
Louis Saha frá í
tvær vikur
John Terry, varnarmaður
Chelsea, mun í þessari viku spila
æfingaleik fyrir luktum dyrum
en hann hefur ekki spilað með
Chelsea að undanförnu vegna
meiðsla. Talið er að hann geti
snúið aftur fyrir bikarleik gegn
Wycombe um næstu helgi og
verður hann því klár í slaginn
þegar enska landsliðið mætir því
spænska 7. febrúar. Chelsea
hefur fengið á sig átta mörk í
fjórum leikjum þann tíma sem
Terry hefur verið meiddur og
ljóst að hans hefur verið sárt
saknað.
Spilar æfinga-
leik í vikunni