Fréttablaðið - 28.01.2007, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
SUNNUDAGUR
28. janúar 2007 — 27. tölublað — 7. árgangur
Landsbankinn – Fyrirtækjasvið
Laust er til umsóknar starf í ábyrgðadeild á fyrirtækjasviði Landsbankans. Leitað er að met ð
einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi st f í
á frumkvæði sterk lið
ÍS
L
E
N
S
K
A
/ S
IA
.I
S
/ I
C
E
3
58
55
0
1/
07
VEÐRIÐ Í DAG
ALLT ATVINNA
Stútfullt blað af
atvinnuauglýsingum
Atvinna
Í MIÐJU BLAÐSINS
Ferðabæklingur Iceland Express
fylgir Fréttablaðinu í dag.
EINAR MÁR GUNNLAUGSSON
Þrífur íbúðir
eftir andlát
Viðkvæmt og vandasamt verk
FÓLK 38
Þjóðleikhúsið svarar
gagnrýni
Það er allt að ger-
ast hjá Þjóðleik-
húsinu.
MENNING 26
Dreifa orði Guðs
Gídeonfélagið hefur afhent yfir
þrjú hundruð þúsund eintök af
Nýja testamentinu síðan 1949.
FÓLK 29
Skáldskapur breytir
heiminum á hverjum degi
Hermann Stefánsson
rithöfundur ræðir um
íslensku skáldsöguna,
fyndnar hugmyndir og
flokkunaráráttu.
HELGAREFNI 18
RÓLEGT Í FYRSTU - Í dag verður
hæg suðlæg átt í fyrstu en vaxandi
vindur síðdegis, fyrst vestan til.
Rigning á landinu sunnan- og
vestanverðu en úrkomlítið á Norð-
austur- og Austurlandi. Hiti 2-8 stig,
mildast síðdegis.
VEÐUR 4
Var slagsmálahundur
Alexander Petersson hefur unnið
hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar
með frammistöðu sinni á HM í
handbolta í Þýskalandi. Í sunnu-
dagsviðtalinu talar hann um hversu
sæll hann sé að
hafa komist til
Íslands því líf
hans var á rangri
braut í Lettlandi.
ÍÞRÓTTIR 32
UTANRÍKISMÁL Valgerður Sverrisdóttir utanríkis-
ráðherra hefur óskað eftir skýringum frá forseta
Íslands vegna þeirrar ákvörðunar hans að setjast í
þróunarráð Indlands.
„Ég er hlynnt því að embætti forseta Íslands sé
nýtt til góðra verka, hvort sem er á Íslandi eða
erlendri grundu. Slík embættisverk verða hins
vegar að samræmast íslenskri stjórnskipan,“ segir
Valgerður. „Hvað setu forseta Íslands í svokölluðu
þróunarráði varðar þá var utanríkisráðuneytið ekki
upplýst um þá fyrirætlan og mun ráðuneytið óska
eftir skýringum frá embætti forseta Íslands á
hverju það sætir og í hverju sú seta er fólgin.“
Valgerður segist bíða skýringa og því ekki geta
úttalað sig um þetta mál að svo stöddu. „Ég get þó
nefnt að innan utanríkisráðuneytisins er unnið að
mótun verklagsreglna um hvernig bæta megi
boðleiðir og verkferla milli framkvæmdavalds og
embættis forseta Íslands.“
Í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu 23.
janúar segir að þróunarráðinu sé ætlað að móta
tillögur um á hvern hátt Indverjar geti styrkt
efnahagslíf sitt og velferð þjóðarinnar án þess að
umhverfi bíði varanlegt tjón af. Ráðið muni skila
tillögum, sem teknar verði til umfjöllunar af
indverskum ráðamönnum og stofnunum. - bg
Seta Ólafs Ragnars í þróunarráði Indlands kallar á viðbrögð í utanríkisráðuneyti:
Óska eftir skýringu forsetans
STJÓRNMÁL Magnús Þór Hafsteins-
son, þingmaður Frjálslynda
flokksins, hlaut meirihlutakosn-
ingu til varaformennsku á lands-
þingi flokksins í gær. Alls voru
greidd 811 atkvæði og fékk Magn-
ús 460 þeirra, eða 56,7 prósent.
Margrét Sverrisdóttir hlaut 351
atkvæði, eða 43,3 prósent. Útgefn-
ir kjörseðlar voru 881.
Magnús Reynir Guðmundsson,
framkvæmdastjóri flokksins, telur
að þau sjötíu atkvæði sem upp á
vanti megi skýra með því að fólk
hafi gefist upp á biðinni, en tafir
urðu á framkvæmd kosninganna.
Magnús Þór var að vonum
sáttur við niðurstöðuna: „Ég vissi
alla tíð að þetta yrði jafnt og
spennandi. Nú er bara að horfa
fram á veginn, horfa inn í fram-
tíðina og berjast til sigurs í vor.“
Aðspurður sagðist Magnús von-
ast til þess að Margrét héldi
áfram að starfa fyrir Frjálslynda
flokkinn.
Margrét Sverrisdóttir sagðist
ekki geta verið annað en sátt við
niðurstöðuna, „miðað við smölun
og að formaðurinn lýsti marg-
ítrekað yfir stuðningi við Magnús
Þór.“ Margrét sagði ekki beint út
hvort hún myndi segja skilið við
flokkinn. Hún lítur á úrslitin sem
„alvarlegt vantraust“.
„Ég er svolítið hrædd um að
önnur öfl hafi tekið hann yfir og
ég lít svo á að þar með hafi flokk-
urinn yfirgefið mig en ekki ég
hann,“ sagði hún.
Mikil ringulreið einkenndi
landsþingið og voru lokatölur til
að mynda tilkynntar tvisvar, í
annað sinn eftir að kjörkassi
fannst í kjallaranum. Fólk skráði
sig í flokkinn til klukkan rúmlega
þrjú, en þá átti kosning að hefjast.
Nokkrir þurftu frá að hverfa. „Það
var þó nokkur fjöldi fólks sem
vildi ganga í flokkinn eftir þrjú,“
sagði Magnús Reynir, en gat
hvorki tekið undir né neitað kjafta-
sögu um hóp ungliða úr öðrum
flokki sem hefði viljað skrá sig til
að hafa áhrif á kosningarnar.
Til ritara var kjörin Kolbrún
Stefánsdóttir og hlaut hún 398
atkvæði. Tillaga Grétars Mars
Jónssonar um að breyta nafni
flokksins í Frjálslynda jafnaðar-
mannaflokkinn var ekki lögð fyrir
á þinginu. - kóþ
Magnús Þór varaformaður
Magnús Þór Hafsteinsson hlaut 56,7 prósent atkvæða á landsþingi Frjálslynda flokksins í gær. Margrét
Sverrisdóttir ætlar að íhuga framtíðarskref sín í pólitík um helgina. Mikil ringulreið var á þinginu.
Ég er svolítið hrædd um
að önnur öfl hafi tekið
hann yfir og ég lít svo á að þar
með hafi flokkurinn yfirgefið mig
en ekki ég hann.
MARGRÉT SVERRISDÓTTIR
HUNDRAÐ ÁRA AFMÆLI KVENRÉTTINDAFÉLAGS ÍSLANDS Kristín Ólafsdóttir og Amíra Snærós Jabali skáru afmælistertuna
af stakri vandvirkni í gær. Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra studdi við bak þeirra en fyrr hafði hún afhent Kvenréttinda-
félaginu milljón króna að styrk fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Vigdís Finnbogadóttir og Þorbjörg Inga Jónsdóttir fylgjast með.
Kynslóðir kvenna fagna saman:
Ræddu framboð
og launamun
FÓLK Kvenréttindafélag Íslands
fagnaði aldarafmæli sínu í
Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í
gær. Þorbjörg Inga Jónsdóttir,
formaður félagsins, segir greini-
legt að enn sé full þörf fyrir
félagið þótt hundrað ár séu liðin
frá því það var stofnað á heimili
Bríetar Bjarnhéðinsdóttur.
„Þegar mest var held ég að um
það bil 170 gestir hafi verið saman
komnir og flestir stöldruðu lengi
við enda fjölmörg áhugaverð
erindi sem þarna voru flutt,“ segir
hún.
Þorbjörg segir margar góðar
hugmyndir hafa komið fram, til að
mynda að farið verði af stað með
kvennaframboð í þeim landshlut-
um þar sem fyrirséð sé að kona
geti ekki náð inn á þing. Einnig
hafi komið fram í einu erindanna
að nær ekkert hafi dregið úr
launamun kynjanna síðustu
tuttugu ár. Margt hafi þokast í
rétta átt frá því félagið var stofnað
inni í stofu hjá Bríeti Bjarnhéðins-
dóttur en margt sé enn ógert. - kdk
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I