Fréttablaðið - 28.01.2007, Page 2
H
im
in
n
o
g
h
af
/S
ÍA
Síðu
stu
dag
ar
risa
útsö
lunn
ar
um
helg
ina!
Virgin Galactic, félag
breska auðkýfingsins Richards
Branson sem hyggst bjóða upp á
áætlunarflug út í geim, undirrit-
aði í gær samning við sænskt
fyrirtæki um að kanna möguleika
á því að gera slíkt flug út frá
Kiruna-flugvelli í Norður-Svíþjóð.
Að sögn Susan Newsam,
talsmanns Virgin Galactic, væri
einn kosturinn við geimflug frá
Kiruna að farþegar fengju í
leiðinni að skoða norðurljósin úr
návígi.
Fyrsta farþegageimflugið á
vegum fyrirtækisins er áformað
frá Bandaríkjunum strax á næsta
ári.
Kann að verða
flogið frá Kiruna
„Lýsi gefur sig út
fyrir að vera mjög umhverfis-
vænt fyrirtæki en svo stendur
ekki steinn yfir steini í Þorláks-
höfn,“ segir Ólafur Áki Ragnars-
son, bæjarstjóri Ölfuss.
Heilbrigðisnefnd Suðurlands
hefur í algjörri andstöðu við
bæjarstjórnina veitt Lýsi hf.
starfsleyfi til fjögurra ára fyrir
hausaþurrkun í Þorlákshöfn.
Hausaþurrkunin hefur sætt
geysiharðri gagnrýni vegna
lyktarmengunar sem heimamenn
segja með öllu óásættanlega.
Ölfus hefur kært útgáfu starfs-
leyfisins til umhverfisráðherra
og jafnframt óskað eftir því að
heilbrigðisnefndin haldi borgar-
fund í Þorlákshöfn og skýri þar
rök sín í málinu.
„Við ætlumst til þess að
umhverfisráðherra grípi fram
fyrir hendurnar á þessu ágæta
fólki í heilbrigðisnefndinni. Því-
lík valdníðsla og yfirgangur gagn-
vart einu litlu samfélagi hefur
varla sést,“ segir Ólafur Áki.
Bæjarstjórnin lagðist alfarið
gegn því að leyfið yrði veitt nema
til sex mánaða enda hefði fyrir-
tækið ítrekað fengið frest til að
vinna bug á ólyktinni án þess að
gera neitt.
„Menn hafa komið með ýmsar
patentlausnir og ætlað sér að
redda lyktinni í hvert skipti sem
nýtt starfsleyfi hefur verið gefið
út en það hefur ekkert gerst. Við
erum búnir að fá okkur full-
sadda,“ segir Ólafur Áki.
Lýsi vill fá að reisa þvotta-
turna til að hreinsa útblástur og
setja niður fitugildrur en bæjar-
stjórinn hefur efasemdir: „Við
höfum hvergi séð neina niður-
stöðu um að þetta sé einhver
endanleg lausn.“
Kjartan Ólafsson, verksmiðju-
stjóri hjá Lýsi, segist undrandi á
að bæjaryfirvöld hafi ekki
afgreitt leyfi fyrir nýja mengunar-
varnarbúnaðinum.
„Síðan í júní erum við búnir að
bjóðast til að setja upp fullkomn-
asta mengunarbúnað sem til er til
þess að eyða þessari lykt en
bæjaryfirvöld gefa okkur annan
daginn vilyrði fyrir leyfinu en
svo næsta dag er allt komið í bak-
lás,“ segir Kjartan og fullyrðir að
umræddur búnaður, sem kosti um
tuttugu milljónir króna, muni
taka nánast alla ólyktina.
Uppsetning þessa búnaðar sé
einmitt meðal skilyrða fyrir nýja
starfsleyfinu.
„Við erum nú þegar með
stærsta ósontæki á landinu til
þess að eyða lykt. Það er ekki eins
og við höfum ekki verið að reyna
að gera eitthvað,“ segir Kjartan
Ólafsson.
Bæjarstjórn kærir
leyfi hausaverkunar
Heilbrigðisnefnd Suðurlands hefur verið kærð til umhverfisráðherra vegna
starfsleyfis fyrir hausaverkun í Þorlákshöfn. Bæjarstjóri sakar nefndina um
valdníðslu. Verksmiðjustjóri segir bæinn stöðva nýjan mengunarvarnarbúnað.
Baugsmálið væri réttarfarslegt hneyksli
í öðrum löndum og hafa íslensk stjórnvöld farið
gáleysislega með vald sitt og farið fram af offorsi
án þess að nægar vísbendingar lægju fyrir. Þetta
var meðal þess sem fram kom í ræðu Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar,
á aðalfundi Samfylkingarfélagsins í Reykjavík í
gær.
„Mér finnst eins og menn hafi látið stjórnast af
pólitískum hvötum sem ekki eru í takt við réttar-
ríkið í Baugsmálinu. Þó að ég vilji ekki halda því
fram að ákæruvaldinu hafi verið sigað á sakborn-
inga Baugsmálisns er ljóst að forystumenn Sjálf-
stæðisflokksins hafa látið orð falla um þetta mál,
sem er vitnisburður um að þeir hafi farið gáleysis-
lega með vald sitt,“ segir Ingibjörg.
Ingibjörg nefndi Byrgismálið einnig sem dæmi
um kæruleysi valdhafa í ræðu sinni. Í því segir hún
stjórnvöld hafa brugðist eftirlitsskyldu sinni með
öryggi borgaranna gróflega. Í öðrum löndum en
Íslandi hefði einhver verið gerður ábyrgur fyrir
þessu máli aðrir en starfsfólk Byrgisins og skjól-
stæðingar þess. „Það er frumskylda ríkisvaldsins
að fylgjast með að stofnanir þess uppfylli þau skil-
yrði sem krafist er af þeim. Ég ætla ekki út í sak-
bendingar en vil að þetta mál sé athugað til hlítar.“
Bresk lögregluyfir-
völd telja sig hafa nægar
sannanir til að leggja fram kæru
á hendur rússneska kaupsýslu-
manninum Andrei Lugovoi fyrir
morðið á
fyrrverandi
njósnaranum
Alexander
Litvinenko, sem
myrtur var með
geislavirku efni
í London í
nóvember. Þau
eru þó ekki
vongóð um að
fá Lugovoi framseldan frá
Rússlandi.
Lögregla telur að Litvinenko
hafi látist eftir að hann drakk
geislavirkt te á hóteli. Tekannan
sem geislavirka teið var borið
fram í var notuð áfram í nokkrar
vikur á hótelinu eftir dauða
Litvinenko, en hún var mjög
geislavirk.
Nægar sannan-
ir fyrir ákæru
Magnús, hvernig er að vera
óbreyttur borgari?
Ísland tryggði sér sæti
í 8 liða úrslitum á HM í handbolta
með eins marks sigri, 32-31, á
Slóvenum í næstasíðasta leik
liðsins í milliriðli. Íslensku
markverðirnir áttu stórleik í gær
og sáu um að landa sigrinum.
Ísland leikur í dag til úrslita
um sigurinn í milliriðlinum og
mótherjarnir eru heimamenn í
Þýskalandi. Íslendingar eru með
jafn mörg stig og Þjóðverjar fyrir
leikinn í dag.
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra var
meðal áhorfenda ásamt Kristjáni
Arasyni eiginmanni sínum og lifði
sig inn í leikinn.
Ísland komið í
átta liða úrslit
Helga Sigrún Harðar-
dóttir, skrifstofustjóri þingflokks
Framsóknarflokksins, verður í
þriðja sæti framboðslista
Framsóknarflokksins í Suður-
kjördæmi í komandi kosningum.
Þetta var ákveðið á kjördæmis-
þingi Framsóknarflokksins sem
haldið var á Hótel Selfossi í gær.
Helga tók ekki þátt í próf-
kjöri, en Hjálmar Árnason, sem
hafnaði í þriðja sætinu, ákvað að
taka ekki sæti á listanum. Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
mun leiða listann og Bjarni
Harðarson bóksali verður í öðru
sætinu. Flokkurinn hefur tvo
þingmenn í kjördæminu í dag.
Helga Sigrún
í þriðja sætið