Fréttablaðið - 28.01.2007, Qupperneq 4
H
ri
n
g
d
u
n
ú
n
a
!!
!
4
2
1
4
0
2
5
tölvuskóli
suðurnesja
Túngötu 1
Reykjanesbær
Sími 421 4025
www.tss.is
skoli@tss.is
Tölvunámskeið
fyrir foreldra
Haldið í samstarfi við:
Þetta námskeið er ætlað fyrir foreldra til þess að tryggja
öryggi barna og unglinga. Á því er farið yfir ýmsar leiðir til
að fylgjast með hvað börnin eru að gera í tölvunni og á
netinu, sett eru upp forrit og farið yfir leiðir til að fyrirbyggja
ranga notkun og farið yfir ýmsa fræðslu fyrir börn varðandi
hættur á netinu og hvernig best er að fræða börn á
hættunum.
Námskeiðið innifelur meðal annars:
Hvernig þú getur stjórnað hversu mikinn tíma börnin
mega vera í tölvunni.
Hvernig þú getur stjórnað tölvu- og netnotkun.
Hvernig þú getur fylgst með hvaða vefsíður eru skoðaðar
með ýmsum leiðum.
Hvernig þú getur fylgst með notkun á skilaboðaforritum
eins og messenger.
Hvernig þú getur komið í veg fyrir uppsetningu á forritum
án þín leyfis.
Hvernig þú getur læst aðgangi og komið í veg fyrir að
börnin skoði þín gögn.
Þá verður farið yfir gerð notkunarsamnings, þ.e. þar sem
foreldrar og börn eru sammála um notkun á tölvunni.
info .isSec
Mikill meirihluti þeirra
unglinga sem stunda nær aldrei
íþróttir með íþróttafélagi segir
fjölskyldu sína fjárhagslega verr
stæða en aðrar. Þetta er meðal
þess sem kemur fram í rannsókn-
inni „Ungt fólk 2006“ en að henni
standa menntamálaráðuneytið og
Rannsóknir & greining í Háskól-
anum í Reykjavík. Meðal þess sem
var athugað var tómstunda- og
íþróttaiðkun nemenda í 9. og 10.
bekk grunnskóla og kom í ljós að
63,5 prósent þeirra sem stunduðu
nær aldrei íþróttir með íþrótta-
félagi töldu fjölskyldu sína verr
stæða en aðrar. Unglingar sem
töldu sig koma af verr stæðum
heimilum voru einnig ólíklegri að
taka þátt í öðru skipulögðu tóm-
stundastarfi en börn sem töldu
fjölskyldur sínar betur eða svipað
settar og aðrar.
Björn Ingi Hrafnsson, formað-
ur Íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur, segir niðurstöðurnar
staðfestingu á því að rétt hafi
verið að byrja með svokölluð frí-
stundakort, sem niðurgreiða
íþróttaiðkun barna í Reykjavík og
verða tekin í notkun í sumar. „Ég
fagna því að þessar tölur komi
fram að því leyti að þær staðfesta
þörfina á því að komið sé til móts
við ákveðinn hóp barna. Við vilj-
um að öll börn geti tekið þátt í
tómstundastarfi, án tillits til efna-
hags eða fjölskylduaðstæðna,“
segir Björn, sem segir líklegt að í
sumar sé von á börnum úr fleiri
hópum samfélagsins en áður, svo
sem meðal innflytjenda. Hann
segir vitað mál að íþróttir og tóm-
stundir hafi mikið gildi í forvörn-
um, heilbrigði og félagsþroska
barna sem sé brýnt að sinna.
Álfgeir Logi Kristjánsson,
félagsfræðingur og starfsmaður
Rannsókna & greininga, sagði töl-
urnar sýna tilhneigingu sem
ástæða væri til að kanna og greina
betur.
„Tengslin eru algerlega skýr,
nemendur sem koma frá velstæð-
um fjölskyldum eru töluvert lík-
legri til að stunda skipulagðar
íþóttir. Við vitum hins vegar ekki
hvort orsakasamband er milli fjár-
hagsstöðu og þátttöku, þar sem
fremur fá börn sögðust vera frá
illa stæðum fjölskyldum,“ segir
hann.
Álfgeir bætir við að erlendar
rannsóknir hafi sýnt að gildi og
viðmið barna séu breytileg eftir
fjárhagsaðstöðu foreldra og tíma-
bært sé að kanna hvort því sé eins
farið hér.
Börn fátækari fólks
stunda síður íþróttir
Börn sem telja sig koma af fátækari fjölskyldum eru mun ólíklegri til að stunda
skipulagt íþóttastarf en önnur. Formaður ÍTR segir að reynt verði að koma til
móts við þessi börn í sumar og fá fleiri hópa samfélagsins í íþróttir en áður.
Fyrirtækið Sena, sem
sérhæfir sig í dreifingu og sölu á
alls kyns afþreyingarefni, mun
taka við kvikmyndahúsarekstri í
Háskólabíói á næstu mánuðum af
Sambíóunum.
Þetta var tilkynnt á starfs-
mannafundi 365 hf. í Háskólabíói
á föstudagsmorgun, en Sena er í
eigu 365.
Sena mun leigja Háskólabíó af
Sáttmálasjóði Háskóla Íslands.
Þegar Sena tekur við rekstri
Háskólabíós mun kvikmyndahús-
um á vegum fyrirtækisins fjölga
úr þremur í fjögur. Félagið rekur
nú þegar Smárabíó, Regnbogann
og Borgarbíó á Akureyri.
Sena tekur við
Háskólabíói
Þyrla Landhelgis-
gæslunnar sótti í gær mann á
þrítugsaldri sem slasast hafði
alvarlega þegar hann kastaðist út
úr bíl sínum eftir að bíllinn fór út
af veginum og valt.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Borgarnesi var
talsverð hálka á slysstað, á
Snæfellsnesi við Álftá, og er talið
að bíllinn hafi runnið út af
veginum og oltið. Ökumaðurinn
var einn í bílnum. Farið var með
manninn á bráðamóttöku
Landspítalans í Fossvogi.
Kastaðist út úr
bílnum í veltu
Sjálfstæðisflokkur-
inn ætti fram að landsfundi í apríl
að skoða möguleikann á því að
þrengja ákvæði í raforkulögum
um eignarnám á landi fyrir virkj-
anir, sagði Illugi Gunnarsson,
frambjóðandi Sjálfstæðisflokks-
ins í komandi alþingiskosningum,
á opnum fundi sjálfstæðismanna í
Reykjavík um umhverfi og vel-
ferðarmál á Hótel Sögu í gær.
„Það sem ég lagði til var að við
myndum skoða sérstaklega hvort
rétt væri að þrengja þann mögu-
leika sem raforkufyrirtæki hafa
til þess að fá fram eignarnám, sér-
staklega í þeim tilvikum þegar
verið er að virkja fyrir einn aðila,
til dæmis til að selja raforku til
stóriðju,“ sagði Illugi í samtali við
Fréttablaðið eftir fundinn.
Hann sagði að þegar gengið sé
gegn stjórnarskrárvörðum eign-
arrétti borgaranna þurfi að vera
til þess ríkir almannahagsmunir
og eðlilegra sé að raforkufyrir-
tækin greiði það verð sem eigend-
ur landsins telji sig þurfa að fá til
að fallast á að selja land sitt. Þá
geti eigendurnir metið sína hags-
muni, til dæmis vegna nýtingar í
tengslum við ferðaþjónustu. Þar
með fari verðið inn í raforkuverð-
ið, sem leiði til þess að þegar
ákvörðun sé tekin um að fórna
landi fyrir raforkuframleiðslu
fáist fyrir það sanngjarnt verð.
Illugi segir að áfram þurfi þó
að vera möguleiki á eignarnámi í
þágu almannahagsmuna vegna
eðlilegrar uppbyggingar á raf-
orkukerfi landsmanna.
Kostnaður inn í raforkuverðið
Skipafélögin hafa
tilkynnt hækkun á verði á
vöruflutningum til og frá landinu
frá 1. febrúar næstkomandi.
Samskip hækkar um fimm
prósent og Eimskip um 4,5
prósent. Þetta kemur fram á
vefsíðu Neytendasamtakanna.
Skipafélögin leggja bæði á
sérstakt olíuálag, sem er 2,75
prósent hjá Samskipum og 2,68
prósent hjá Eimskipi. Í tilkynn-
ingu frá Eimskipi segir að
olíuálagið hafi lækkað síðustu
mánuði. Hæst var það í septemb-
er seinastliðnum, 3,74 prósent, og
er það tengt heimsmarkaðsverði
á olíu.
Skipafélögin
hækka fragt
Þeir notendur
YouTube-vefsíðunnar, þar sem
notendur geta sett inn og horft á
myndskeið, sem setja inn sín
eigin myndskeið munu á næst-
unni fá hluta af auglýsingatekjum
YouTube vegna sinna mynd-
skeiða.
Slíkt greiðslukerfi verður
tekið í gagnið eftir nokkra
mánuði, að því er fram kemur á
fréttavef BBC, en eigendur
YouTube vilja með þessu verð-
launa sköpunargleði notenda
sinna. Stjórnendurnir vildu ekki
fara nánar út í hvernig kerfið
myndi virka, en sögðu það í
vinnslu.
Munu fá aug-
lýsingatekjur
Þrír menn hafa verið
handteknir í norðurhluta Kína
fyrir morð á tveimur konum.
Meiningin var að selja lík
kvennanna til þess að gifta þær
látnum mönnum.
Á þessum slóðum í Kína munu
„draugabrúðkaup“ vera gömul
hefð, og felst í því að nýdáin kona
er grafin hjá látnum piparsveini
til þess að veita honum félags-
skap eftir dauðann.
Maður að nafni Yang Dong-
yang keypti konu og ætlaði að
selja hana í hjónaband, en taldi
sig fá hærra verð með því að
drepa hana fyrst. Skömmu síðar
drap hann vændiskonu með sama
markmið í huga.
Hugðust gifta
hinar myrtu