Fréttablaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 13
Arctic Trucks sýnir og selur í samstarfi við Ingvar Helgason
nýja breytta jeppa á verulega lækkuðu verði
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
50
33
0
1/
07
Skráðu þig á www.ibliduogstridu.is
Þú getur sýnt stuðning þinn í verki með því að fara á
vefsíðuna ibliduogstridu.is og skrá þig í „Í blíðu og
stríðu“, stuðningssamtök handboltalandsliðsins fyrir
heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi.
Á vefsíðunni mætast stuðningsmenn og landsliðsmenn,
þar birtast nýjustu fréttir, sýnd eru valin myndbrot úr
leikjum, allir blogga, spjalla, hvetja íslenska landsliðið og
birta myndir frá keppninni og af íslenskum stuðnings-
mönnum á leikjunum sem hafa staðið sig frábærlega.
STYÐJUM STRÁKANA Í BLÍÐU OG STRÍÐU
Séra Bjarni Þór Bjarnason verður
settur inn í embætti sem prestur
Ensku biskupakirkjunnar á Íslandi
við enska messu í Hallgrímskirkju
í dag. Messan hefst kl. 14.00 og
þar mun David Hamid, biskup í
Evrópubiskupsdæmi Ensku
biskupakirkjunnar, setja sr.
Bjarna í embætti.
Undanfarin fimm ár hefur séra
Bjarni haft umsjón með messum á
ensku í Hallgrímskirkju og fylgt
helgisiðum Ensku biskupakirkj-
unnar.
Við innsetninguna tengjast
ensku messurnar formlega Ensku
biskupakirkjunni. Innsetning séra
Bjarna Þórs er gerð á grundvelli
sérstaks sáttmála, Porvoo-sátt-
málans, sem undirritaður var
fyrir 10 árum, milli biskupakirkna
á Bretlandseyjum og flestra lúth-
erskra kirkna á Norðurlöndum og
í Eystrasaltsríkjum. Samkvæmt
honum geta prestar þessara
kirkna starfað í öðrum Porvoo-
kirkjum. Séra Bjarni Þór Bjarna-
son starfaði meðal annars í þrjú ár
í Ensku biskupakirkjunni í Eng-
landi eftir að Porvoo-sáttmálinn
tók gildi.
Við messuna á sunnudag mun
David Hamid biskup predika og
þjóna fyrir altari ásamt Karli
Sigurbjörnssyni, biskupi Íslands.
Séra Jón Dalbú Hróbjartsson,
prófastur í Reykjavíkurprófasts-
dæmi vestra, tekur einnig þátt í
athöfninni. Organisti verður Hörð-
ur Áskelsson og Guðrún Finn-
bjarnardóttir leiðir almennan
messusöng.
Boðið verður upp á veitingar að
messu lokinni.
Settur inn
í embætti