Fréttablaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 21
Landsbankinn – Fyrirtækjasvið
Laust er til umsóknar starf í ábyrgðadeild á fyrirtækjasviði Landsbankans. Leitað er að metnaðarfullum
einstaklingi sem er tilbúinn að takast á við krefjandi starf í lifandi starfsumhverfi þar sem áhersla er lögð
á frumkvæði, sterka liðsheild og árangur.
Nánari upplýsingar veita Árni Þór Þorbjörnsson forstöðumaður útlánaþjónustu
í síma 410 7450 / 820-6342 og Berglind Ingvarsdóttir á starfsmannasviði í
síma 410 7914.
Umsókn og ferilskrá sendist á netfangið berglind.ingvarsdottir@landsbanki.is
merkt „Fyrirtækjasvið – Ábyrgðadeild“. Einnig er mögulegt að sækja um
starfið á www.landsbanki.is. Umsóknarfrestur er til og með 5. febrúar nk.
Helstu verkefni:
• Gerð allra tegunda af bankaábyrgðum
• Samskipti við erlenda og innlenda banka og fyrirtæki
• Úrvinnsla gagna
• Skráning og eftirfylgni
Hæfniskröfur og eiginleikar:
• Þekking og reynsla af inn- og útflutningi og alþjóðlegum flutningsskjölum
• Afburða enskukunnátta er skilyrði auk þess sem Norðurlandamál er kostur
• Háskólamenntun á sviði viðskipta er kostur
• Færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Landsbankinn er eitt stærsta
fjármálafyrirtæki landsins og
veitir alhliða fjármálaþjónustu
til einstaklinga, fyrirtækja og
stofnana.
Landsbankinn leitast við að ráða
til sín og hafa í sínum röðum
framúrskarandi starfsfólk og efla
það í störfum sínum.
Til að stuðla að vexti og arðsemi
bankans er áhersla lögð á
skemmtilegan vinnustað, starfs-
ánægju og gott starfsumhverfi,
sem og markvissa starfsþróun
og þekkingu starfsfólks.
Það er viðhorf stjórnenda
Landsbankans að starfsfólkið,
metnaður þess, kraftur og
hollusta, séu lykillinn að
farsælum rekstri bankans.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
3
58
55
0
1/
07