Fréttablaðið - 28.01.2007, Blaðsíða 74
Enska bikarkeppnin
Það verður hart tek-
ist á í Röstinni í Grindavík í dag
þegar heimamenn freista þess
að komast með bæði karla- og
kvennalið sín í Laugardalshöll-
ina annað árið í röð.
Karlaliðið, sem varð bikar-
meistari í fyrra, tekur á móti ÍR-
ingum í seinni leiknum sem hefst
klukkan 19.15 en á undan mun
kvennaliðið fá Íslandsmeistara
Hauka í heimsókn en stelpurnar
byrja að spila klukkan 17.00.
Kvennalið Grindavíkur og
Hauka hafa mæst þrisvar sinnum
í vetur og hefur Haukaliðið unnið
alla leikina. Karlalið Grindavíkur
hefur verið í vandræðum á sama
tíma og ÍR-ingar hafa spilað vel og
margt hefur breyst síðan að
Grindavík vann öruggan 32 stiga
sigur í deildarleik liðanna í
október.
Hinn undanúrslitaleikur karla
fer einnig fram í kvöld þegar
Hamar/Selfoss tekur á móti
Keflavík klukkan 19.15 í Hvera-
gerði. Kvennalið félaganna mæt-
ast síðan í Keflavík á morgun.
Tvíhöfði í Grindavík í kvöld
Það var Serena Williams
sem sigraði í kvennaflokki á Opna
ástralska meistaramótinu í
tennis. Hún lagði Mariu Shara-
povu örugglega í úrslitaviður-
eigninni í fyrrinótt. Fyrir mótið
var Williams í 81. sæti heimslist-
ans en búast má við því að hún
taki nú stórt stökk upp listann
eftir að hafa unnið Sharapovu, 6-1
og 6-2.
Þetta er í áttunda sinn sem
Williams vinnur sigur í stórmóti
og í þriðja sinn sem hún sigrar á
Opna ástralska. „Fólk hefur talað
um að ég væri búin að vera sem
tennisspilari en ég vona að ég
hafi þaggað niður í því fólki í
dag,“ sagði Williams.
Serena Willi-
ams fékk gullið
Didier Drogba segir að
Andriy Shevchenko, félagi sinn
hjá Chelsea, þurfi að spila meira
fyrir liðið.
„Hann var keyptur hingað
fyrir háa fjárhæð og virðist ætla
að reyna að réttlæta þau kaup
með mörkum, en þar af leiðandi
gefur hann boltann mjög lítið,“
sagði Drogba en Shevchenko var
keyptur á 30 milljónir punda.
„Það er gaman að geta gefið en
þegar ég geri það þá vil ég fá
eitthvað til baka. Það er pláss
fyrir tvo í sókninni og við erum
ekki keppinautar heldur samherj-
ar,“ sagði Drogba.
Þarf að gefa
boltann meira
Wayne Rooney skaut
Manchester United áfram í ensku
bikarkeppninni í gær eftir að hafa
komið inn á sem varamaður. Liðið
tók á móti Portsmouth og var stað-
an markalaus þar til Rooney braut
ísinn á 77. mínútu og skoraði síðan
stórglæsilegt mark stuttu síðar.
Portsmouth náði að minnka mun-
inn í 2-1 en það kom of seint og er
United komið áfram í fimmtu
umferð bikarsins.
West Ham féll úr leik í gær
þegar liðið tapaði 0-1 fyrir Wat-
ford en bæði lið eru í botnbaráttu
úrvalsdeildarinnar. Bobby Zam-
ora átti sláarskot þegar aðeins
mínúta var eftir af leiknum en
eftir það gekk erfiðlega hjá West
Ham að skapa sér marktækifæri.
Anthony McNamee skoraði eina
mark leiksins skömmu fyrir hálf-
leik þegar hann nýtti sér mistök
markvarðarsins Roy Carroll.
„Okkur gekk erfiðlega að skapa
okkur færi en svekktastur er ég
með þetta ódýra mark sem við
fengum á okkur,“ sagði Alan
Curbishley, knattspyrnustjóri
West Ham, að leik loknum.
Adrian Boothroyd, stjóri Wat-
ford, sagðist vera stoltur af sínu
liði. „Við höfum nú unnið tvo leiki
í röð og vonandi verða þeir fleiri.
Ég tel ólíklegt að við tökum tvenn-
una en vonandi erum við komnir í
gang.“
Leroy Lita skoraði tvö mörk
fyrir Reading sem vann Birming-
ham 3-2 og er því komið áfram.
Birmingham er í toppbaráttu 1.
deildar en liðið vann 5-1 sigur á
Newcastle í síðustu umferð. Dave
Kitson kom Reading yfir með sínu
fyrsta marki í langan tíma eftir
aðeins þrjár mínútur en sigur liðs-
ins var nánast aldrei í hættu.
Birmingham minnkaði muninn í 3-
2 á lokamínútunni. Brynjar Björn
Gunnarsson lék ekki með Reading
vegna meiðsla en Ívar Ingimars-
son spilaði allan leikinn að vanda.
Úrvalsdeildarlið Middles-
brough gerði aðeins jafntefli gegn
2. deildarliði Bristol City 2-2 eftir
að hafa náð tveggja marka for-
ystu.
„Við vorum góðir í fyrri hálf-
leik og áttum að skora fleiri mörk.
Leikur liðsins í seinni hálfleik
hrundi og City nýtti sér það,“ sagði
Gareth Southgate, knattspyrnu-
stjóri Middlesbrough, að leik lokn-
um en liðin þurfa nú að mætast að
nýju.
Wayne Rooney skoraði bæði mörk Manchester United þegar liðið vann 2-1 sigur
á Portsmouth í ensku bikarkeppninni í gær. Watford sló West Ham út 1-0.