Fréttablaðið - 02.02.2007, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
FÖSTUDAGUR
2. febrúar 2007 — 32. tölublað — 7. árgangur
DÝRIN OKKAR
Hamingjusamir
hundar í hundafimi
Sérblað um gæludýr
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
HEIMA ER BEST
Litríkt og fallegt heim-
ili í Hafnarfirði
Sérblað um heimili, fjölskyldu og mat
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
HEILLUÐ FRÁ FYRSTU STUNDBlíðir Rottweiler-hundar SJÁ BLS. 15
EFNISYFIRLIT
HEILLAÐIST STRAXÁrdís Pétursdóttir á þrjá Rottweiler-hunda. BLS. 2
HÚSBÓNDINN Á HEIMILINU
Snjólfur er myndarlegur köttur í Reykjavík sem við fyrstu sýn gæti átt ættir að rekja til ísbjarna. BLS. 4
VEL SNYRTIR HUNDARNóg er um að vera á snyrtistofu Dýrabæjar í Kópavogi.
BLS. 6
HAMINGJUSAMIRHUNDAR
Hundafimi í reiðhöll Gusts
BLS. 6
HLÝLEGAR
HUNDAPEYSURLopi fyrir litla hunda SJÁ BLS. 2
Dýrin okkar
[ SÉRBLAÐ UM GÆLUDÝR – FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 ] Heima er best
[ SÉRBLAÐ UM HÚS OG HEIMILI – FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2007 ]
HVAÐ BORÐABÖRNIN?Matur á leikskólum SJÁ BLS. 6
EFNISYFIRLIT
LÉTTUR Á DAGINN, FÍNNÁ KVÖLDIN
Veitingastaðurinn Strikið á Akureyri
BLS. 2
AUKAPLÖTUR OG LEYNIHÓLF
Kolbeinn Bjarnason á forláta skrifborð. BLS. 4
RAUÐVÍN Í GLAS
Rauðvínsglös eru af mörgum gerðum. BLS. 4
HVAÐ FÁ BÖRNIN OKKARAÐ BORÐA?
Úttekt á mat í leikskólumBLS. 6
MJÚKAR VOÐIR
Ungar stúlkur prjóna, vefna og sauma út. BLS. 8
PRÝÐILEGIR PÚÐARMjúkir og fallegir SJÁ BLS. 14
Árin 33
Ferill og list Rúríar
á Sjónþingi Gerðu-
bergs.
MENNING 36
Allt rekið ofan í þá
„Í umræðum síðustu mánaða
um öryggi Íslands í kalda stríðinu
hefur allt verið rekið ofan í þá,
sem deilt hafa á stefnu íslenskra
stjórnvalda á þeirri tíð,“ segir
Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
Í DAG 26
BESTI VINURINNEINN LÉTTUR, ÍSKALDUR
Á LÆKKUÐU VERÐI
Á ÞORRANUM
www.si.is
Upplýsingar, dagskrá og skráning:
fer fram föstudaginn
2. febrúar
SPROTA
ÞING
2007
FRÉTTABLAÐIÐ Kári Jónasson lætur
af störfum sem ritstjóri Frétta-
blaðsins í næstu viku en Jón Kaldal,
núverandi aðstoðarritstjóri, tekur
við ritstjórastarfi við hlið Þorsteins
Pálssonar. Ritstjóraskiptin voru
kynnt starfsmönnum í gær og sagði
Kári við tækifærið tímann á Frétta-
blaðinu hafa verið áhugaverðan og
skemmtilegan. „Það hefur mikið
gengið á í fjölmiðlaheiminum og
hjá 365 frá því að ég kom til starfa
hér en nú eru mál komin í fastari
farveg og gott að láta af störfum
við þær aðstæður,“ sagði Kári sem
verður 67 ára í næstu viku.
Kári hóf störf á Fréttablaðinu
haustið 2004. Hann hafði þá verið
fréttastjóri RÚV í átján ár en
starfað þar um þrjátíu ára skeið.
Þar á undan vann hann á Tímanum
í tíu ár með eins árs hléi 1967 til
1968 þegar hann var upplýsinga-
fulltrúi hægri umferðar. Blaða-
mennskuferill Kára hófst hjá
tímaritum Sambandsins í janúar
1962 og spannar því 45 ár. Kári er
heiðursfélagi Blaðamannafélags-
ins en hann var formaður þess um
þriggja ára skeið.
Jón Kaldal var ritstjóri tímarit-
anna Iceland Review, Atlantica og
Skýja frá 1996 en kom til starfa á
Fréttablaðinu í mars 2004.
Fréttablaðið þakkar Kára vel
unnin störf.
Kári Jónasson lætur af störfum sem ritstjóri Fréttablaðsins:
Jón Kaldal verður ritstjóri
SVINDL European Lottery Guild sendir þessa
dagana vandaða skafmiða til landsmanna.
Skafmiðarnir eru prentaðir á góðan litpappír
og útskýringarnar prentaðar á glæsilegt bréfs-
efni. Erfitt er að geta sér til um hvaðan bréfið
er sent, því það er ekki frímerki á umslaginu,
heldur stimpill á ensku. Svarumslag til póst-
hólfs í Amsterdam fylgir með.
Skafmiðarnir innihalda háa dollaravinn-
inga, en til að njóta þeirra þarf vinningshafi að
gefa upp greiðslukortsnúmer sitt, ásamt gild-
istíma og öryggisnúmeri.
Af útliti og umbúðum má álykta að fyrir-
tækið sé traust og kann því að vera freistandi
fyrir grandalaust fólk að slá til. Sé European
Lottery Guild hins vegar slegið upp á leitar-
síðu, kemur í ljós að það er víða ásakað um
svindl og tengsl við El Gordo, fræga spænsk/
nígeríska svikamyllu.
Vefsíður neytenda víða um heim vara við
fyrirtækinu sem mun hafa farið á hausinn
1996, en þá voru höfuðstöðvar þess í Kanada.
Nú þykir líklegt að það starfi í Hollandi eða
Bretlandi, en í þeim löndum mun vera frjáls-
legt lagaumhverfi fyrir happdrættisstarfsemi
hvers konar.
Bergþóra K. Ketilsdóttir, forstöðumaður
upplýsingatækni hjá Kreditkortum hf., segir
að Kreditkort hafi nýverið fengið ábendingu
um skafmiðana frá korthafa. Enn sé ekki
vitað til að nokkur hafi fallið í gildruna. „En
reynslan sýnir að þegar einn eða tveir fá
svona sendingu, þá fá hana fleiri. Í fyrra kom
til dæmis tilboð þar sem fók var beðið að skrá
sig á ráðstefnu og gefa upp kortanúmerin sín
og þá voru bréfin í þúsundatali,“ segir Berg-
þóra.
„Nú til dags er fólk orðið meðvitaðara um
þessi mál vegna fjölda rusltölvupósts, en þetta
virðist vera sérstaklega glæsileg tilraun til
svindls og því má segja að aldrei sé góð vísa of
oft kveðin.“ - kóþ
Bíræfið alþjóðlegt skaf-
miðasvindl til landsins
European Lottery Guild sendir nú skafmiða í pósti til greiðslukortahafa. Þeir innihalda vinninga, en til að
innheimta þá á móttakandi að gefa upp kortanúmer. ELG er sagt nýtt nafn á alræmdu svikafyrirtæki.
VÆTA OG VINDUR - Í dag verður
vaxandi suðaustanátt 8-18 m/s,
hvassast með ströndum sunnan
og vestan til síðdegis. Rigning eftir
hádegi um sunnan- og vestanvert
landið en úrkomulítið austan til.
Hiti 0-8 stig, svalast austan til.
SUNGIÐ Á SJÖ TUNGUM Þessir krakkar úr Hlíðaskóla sungu á sjö tungumálum á opnunarráðstefnu nýrrar menntaáætlunar Evr-
ópusambandsins í Borgarleikhúsinu gær. Í ár mun Landskrifstofa Íslands úthluta styrkjum að upphæð um 220 milljónum króna
til verkefna hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MENNTAMÁL Nýrri Menntaáætlun
Evrópusambandsins 2007-2013
var formlega ýtt úr vör í Borgar-
leikhúsinu í gær.
Frá árinu 1995 hafa um 8.500
einstaklingar notið styrkja í
gegnum Menntaáætlun ESB.
Mesta hlutfallslega aukning á
þátttöku frá upphafi er í Erasm-
us-stúdentaskiptum til Íslands.
Árið 2000 voru erlendir Erasmus-
háskólastúdentar á Íslandi 142 en
árið 2006 voru þeir orðnir 270.
Framlög til Íslands úr Mennta-
áætlununum á tímabilinu 1995-
2006 voru um tveir milljarðar
króna. Mesta aukningin var á
framlögum í gegnum samkeppnis-
sjóði um tilraunaverkefni á sviði
starfsmenntunar. Ísland var með
eitt hæsta árangurshlutfall
þátttökulanda í þeirri áætlun.
Hæstu framlögin komu í
gegnum Leonardo-starfsmenntaá-
ætlunina eða tæplega 1,2 milljarð-
ar króna. Fjárveiting til Mennta-
áætlunar ESB fyrir tímabilið
2007-2013 er áætluð um 700
milljarðar íslenskra króna. - shá
Menntaáætlun ESB ýtt úr vör:
Veruleg fram-
lög til Íslands
sirkus
[VIÐTAL BLS. 8] SJÓNVARPSDROTTNINGIN RAGNHILDUR STEINUNN JÓNSDÓTTIRBRÚÐKAUPIÐ OG BÖRNINBÍÐA BETRI TÍ
SIRKUSMYND/PJETUR
Fegurðardrottningin Unnur Birna
Kom frá Indlandi með tilboð um hlutverk í bíómynd í Hollywood upp á vasann. BLS. 22
. f
eb
rú
ar
2
00
7
Kynið á að koma á óvart Fréttakonan Sólveig Bergmann á von á sínu fyrsta barni um næstu verslunar-mannahelgi.
BLS. 2
Löðrandi í
kynþokka Íslenskarkonur eru yfir sig hrifnar af handboltamönnunumGuðjóni Val Sigurðs-syni og Alexander
Peterssyni.
BLS. 14
Guðbjörg í
X-Factor Hin 16 ára gamla Seltjarnarnes-mær er í Sirkus-
nærmynd þar sem fram kemur að hún sé öguð, klár og mjög þroskuð miðað við aldur.
BLS 10
Ragnheiður Steinunn
í Sirkusviðtalinu
SIRKUS
Í MIÐJU
FRÉTTA-
BLAÐSINS
VEÐRIÐ Í DAG
Grátlegt tap
Strákarnir okkar
köstuðu frá sér
sigrinum
gegn Rúss-
um í gær.
ÍÞRÓTTIR
46 & 48
JÓN KALDAL KÁRI JÓNASSON