Fréttablaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 4
Andrés Magnússon,
framkvæmdastjóri Félags
íslenskra stórkaupmanna, mót-
mælir því harðlega að Samkeppn-
iseftirlitið hvetji starfsfólk fyrir-
tækja sem vinni við dreifingu,
framleiðslu og sölu á matvöru til
að tilkynna um hugsanleg brot á
samkeppnislögum.
Hann segir að með því sé verið
að innleiða rannsóknaraðferðir
svipaðar þeim sem tíðkast í lög-
regluríkjum. Í tilkynningu frá
félaginu kemur fram að við rann-
sóknir samkeppnisyfirvalda verði
að gæta eðlilegs meðalhófs og
slíkar rannsóknir megi ekki
íþyngja einstaklingum eða fyrir-
tækjum meira en nauðsynlegt er.
Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar
og þjónustu, tekur undir orð Andr-
ésar í fréttatilkynningu. Hann
segist telja að með þessum mál-
flutningi sé Páll Gunnar Pálsson,
forstjóri Samkeppniseftirlitsins,
að hvetja starfsmenn í matvöru-
verslunum til að bregðast trúnað-
arskyldu til atvinnuveitenda sinna.
Eftirlit hins opinbera sé með því
komið út fyrir þau mörk sem hægt
er að samþykkja.
Samkeppnisyfirlitið hvatti ein-
staklinga og fyrirtæki til að benda
á hugsanleg brot á samkeppnis-
lögum í fyrradag. Hægt er að
senda ábendingu í gegnum vef-
síðu samtakanna, og þarf ekki að
skrifa undir hana með nafni.
Aðferðir minna á lögregluríki
Lágmúli - Smáratorg - Laugavegur - Smáralind - Spöngin - Garðatorg - Setberg - Keflavík - Grindavík - Selfoss - Laugarás
Borgarnes - Stykkishólmur - Grundarfjörður - Búðardalur - Ísafjörður - Bolungarvík - Patreksfjörður - Sauðárkrókur
Blönduós - Hvammstangi - Skagaströnd - Húsavík - Kópasker Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstaðir - Seyðisfjörður
Fáskrúðsfjörður - Höfn - Neskaupstaður - Reyðarfjörður - Eskifjörður
www.lyfja.is - Lifið heil
VEISTU AÐ VATN
ER BESTI
SVALADRYKKURINN?
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
3
59
11
0
1/
07
Búið er að eyða flest-
um af sjónvarpsþáttum Ólafs
Ragnars Grímssonar frá áttunda
áratugnum og sömu sögu er að
segja af Kastljóssþáttunum sem
Vilmundur Gylfason starfaði við.
Þeir Vilmundur og Ólafur inn-
leiddu nýjan stíl á áttunda ára-
tugnum, sem markaði tímamót í
blaðamennsku. Þérun var afnum-
in og viðtöl áttu helst að vera í
beinni útsendingu. Áður voru við-
töl stundum tekin aftur þangað til
ráðamenn voru sáttir við útkom-
una. Nú var þeim engin vægð
sýnd. Þátturinn Bankavaldið frá
1970 vakti til að mynda mikla
athygli, en þar mætti Ólafur
bankastjórum og gagnrýndi. Alls
mun Ólafur Ragnar hafa gert á
bilinu tuttugu til þrjátíu þætti í
svipuðum dúr.
Þessu efni var eytt kerfisbund-
ið af starfsmönnum Ríkisútvarps-
ins, en þeir áttu engra kosta völ,
segja heimildarmenn Fréttablaðs-
ins. Þrýstingur mun hafa komið
frá fjársnauðri tæknideild RÚV
um að endurnýta hin dýru mynd-
bönd og hins vegar frá filmusafn-
inu, sem skorti rými á meðan RÚV
var enn til húsa á Laugavegi.
Heimildarmönnum ber saman
um að það hafi verið framkvæmda-
stjóri RÚV sem skar úr um að end-
urnýta ætti myndböndin, en end-
anleg ákvörðun um hvað skyldi
geymt og hvað grisjað hafi verið
tekin af yfirmönnum innlendrar
deildar og umsjónarmönnum þátt-
anna. Þannig er til í skjalasafni
RÚV fyrirskipun frá Eiði Guðna-
syni, þáverandi umsjónarmanni
Kastljóss, um að ekki skuli geymd
filma úr einum þættinum.
„Þetta snýst um peninga,“ segir
Elín S. Kristinsdóttir, safnastjóri
RÚV: „Á þessum árum voru bönd-
in dýr og þegar þrengt er að fjár-
hagslega, þá er spurning hvað
lendir undir niðurskurðarhnífn-
um. Grisjun er vanþakklátt starf
og menn geta auðvitað verið mis-
vitrir. Til dæmis sá það enginn
fyrir að Ólafur Ragnar yrði for-
seti Íslands.“
Árið 2003 tóku lög um skyldu-
skil safna gildi. Í þeim er ákvæði
um að öll útsend dagskrá RÚV
skuli varðveitt. Áður voru reglur
um að geyma ætti efni í átján mán-
uði áður en þeim væri eytt. Elín
segir þó að upp úr 1990 hafi litlu
sem engu verið eytt. Hún bendir á
að enn séu til verðmæt gögn hjá
RÚV. Áherslu ætti að leggja á
varðveislu þeirra, en ekki einblína
á hluti úr fortíðinni sem ekki verða
bættir.
Meðal efnis frá þessum árum
sem finnst í spjaldskrá RÚV og
því líklega á filmu, er Kastljóss-
þáttur frá árinu 1976 í umsjá
Ómars Ragnarssonar. Þar ræddu
þeir Ólafur Ragnar og Þorsteinn
Pálsson, sem síðar varð forsætis-
ráðherra, um „hugsanlega litvæð-
ingu sjónvarps“.
Þáttum forsetans
hefur verið eytt
Búið er að eyða flestum sjónvarpsþáttum Ólafs Ragnars frá áttunda áratugn-
um. Einnig Kastljóssþáttum Vilmundar Gylfasonar sem mörkuðu tímamót í
blaðamennsku. Orökin er fyrst og fremst bágur fjárhagur Ríkisútvarpsins.
Stefnt er að því að
framboðslistar Frjálslynda
flokksins vegna þingkosninganna
í vor verði tilbúnir fyrir 1. mars.
Magnús Reynir Guðmundsson,
framkvæmdastjóri flokksins,
segir þann hátt hafðan á að
kjördæmafélög geri tillögu til
miðstjórnar sem svo tekur
lokaákvörðun um skipan listanna.
„Menn eru rétt að byrja að skoða
þessi mál,“ segir Magnús Reynir
sem vonast til að febrúarmánuður
dugi til verksins þó stuttur sé.
Af þeim flokkum sem eiga
menn á þingi eru Frjálslyndir
skemmst á veg komnir við
frágang lista.
Unnið að skipan
framboðslista
Tæplega fimmtugur
maður var dæmdur í eins og
hálfs árs fangelsi í Hæstarétti í
gær fyrir kynferðisbrot gagn-
vart fimm stúlkubörnum og
vörslu barnakláms.
Héraðsdómur hafði áður
dæmt manninn í tveggja ára
fangelsi en Hæstiréttur stytti
dóminn um hálft ár að teknu
tilliti til dómaframkvæmdar
réttarins í málum sem varða
hliðstæð brot.
Manninum var einnig gert að
greiða telpunum samtals 2,6
milljónir króna í miskabætur
ásamt vöxtum.
Dómur barna-
níðings styttur
Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra hvetur
þingmenn til að ræða ekki um
samgöngumál
fyrr en vegaá-
ætlun er komin
fram.
Björgvin G.
Sigurðsson
Samfylkingunni
vildi vita hvaða
áform væru
uppi um
lagningu
Suðurlandsveg-
ar í kjölfar frétta Sjónvarpsins
um að stefnt væri að því að
leggja 2+1 veg í fyrstu en
tvöfalda hann síðar.
Sturla sagði samgönguáætlun
verða lagða fram á næstunni og
bað þingmenn um að bíða
rólega. Tók hann þó fram að
hann væri fullfær um að ræða
um hönnun vega þar sem hann
væri sérstaklega menntaður í
þeim efnum.
Björgvin fékk ekki svör við
spurningum sínum.
Samgöngumál
ekki rædd nú
Talsmenn Samtaka
atvinnulífsins telja þungatak-
markanir á flestum vegum
landins hafa í för með sér að
afhending vöru tefst, vöruverð er
hærra en ella og alls kyns óvissa
og óþægindi skapist. Þetta segir í
fréttabréfi Samtaka atvinnulífs-
ins sem kom út í gær.
Reglulega megi heyra af
umkvörtunum flutningafyrir-
tækja vegna þessara mála.
Samtökin telja mikilvægt að á
þessu verði ráðin bót og taka
undir hvatningu Samtaka
verslunar og þjónustu um tíu ára
stórátak í vegamálum.
Gegn þunga-
takmörkunum