Fréttablaðið - 02.02.2007, Qupperneq 6
„Ungum drengj-
um stafar hætta af tölvuleikja-
fíkn, mikilvægt er að fleiri
úrræði séu í boði fyrir þennan
hóp því sjálfsvígshótanir og sjálf-
vígstilraunir eru mjög algengar
meðal þeirra sem þjást af þessari
fíkn,“ segir Eyjólfur Örn Jóns-
son, sálfræðingur sem mikið
hefur fjallað um netfíkn.
Unglingspiltur missti stjórn á
sér eftir að foreldrar hans höfðu
brugðið á það ráð að segja upp
netáskrift til að reyna losa hann
úr tölvunni. Svo harkalega brást
drengurinn við að kalla þurfti til
lögreglu.
Eyjólfur segist hafa heyrt af
fjölda svipaðra tilfella í starfi
sínu. Nú sé svo komið að stærsti
hópur þeirra sem leita sálfræði-
hjálpar hjá honum séu ungir
menn sem misst hafa stjórn á lífi
sínu vegna tölvuleikjanotkunar.
„Það er engin spurning að
hægt er að tala um netfíkn. Tölvu-
leikjafíknin er stærsti angi henn-
ar og orðið stórt og mikið vanda-
mál þótt engin úrræði séu til hér
á landi við henni,“ segir Eyjólfur.
Hann vísar því á bug að tal um
tölvuleikjafíkn sé í ætt við þá
umræðu sem til dæmis hefur
skapast um sjónvarpsefni og
jafnvel bókalestur. Margir af
þeim stóru leikjum sem eru vin-
sælir eru til þess gerðir að fólk
ánetjist þeim. Þeir sem eru í hvað
mestri áhættu eru ungir velgefn-
ir menn sem ekki hefur gengið
vel í félagslífi og leita spennu í
tölvuleikjum. „Þegar spilað er á
netinu skuldbindur maður sig við
aðra spilara og eignast því líf þar
sem maður getur stjórnað betur
en því raunverulega. Það getur
svo orðið til þess að áhuginn dofn-
ar á því sem raunverulegt er,“
segir hann og bætir við að þó
afleiðingar þessarar fíknar séu
ekki líkamlegar fylgi henni mikil
andleg stöðnun. Félagslegur
þroski sé oft langt undir því sem
eðlilegt er og tengsl við samfé-
lagið slæm.
Eyjólfur segir skort á úrræð-
um vegna þessarar fíknar mikinn
og bendir á að meðferðarstofur
hafi meðal annars verið opnaðar í
Bandaríkjunum og Hollandi sem
taki á þessari fíkn.
Ólafur Ó. Guðmundsson, yfir-
læknir Barna- og unglingageð-
deildar, segir að í flestum tilfell-
um sé tölvunotkun þeirra barna
sem eru skjólstæðingar BUGL,
ein og sér ekki sérstakt vanda-
mál heldur blandist hún öðrum
svo sem kvíða og þunglyndi. Erf-
itt sé að segja til um hvort tölvu-
leikirnir séu orsökin eða afleið-
ingin í ferlinu.
Vel gefnir strákar
tölvufíkn að bráð
Sálfræðingur segir að ungum piltum stafi sérstaklega hætta af nettölvuleikj-
um. Hann segist vita um fjölda tilfella þar sem þurft hafi aðstoð lögreglu til að
losa börn úr tölvum. Ungir tölvuleikjanotendur þarfnist hjálpar í miklum mæli.
„Mikilvægt er að fleiri
úrræði séu boði fyrir
þennan hóp því sjálfsvígshótanir
og sjálfvígstilraunir eru mjög
alengar meðal þeirra sem þjást af
þessari fíkn.“
Vilt þú að evran verði tekin upp
hér á landi?
Ert þú með yfirdrátt?
Bann við reyking-
um á opinberum stöðum tók gildi í
Frakklandi í gær, en það er talið
munu geta breytt ímynd landsins
sem þekkt er fyrir reykfyllt kaffi-
hús og fílterlausar keðjureyking-
ar.
Hinar 15 milljónir reykinga-
manna í Frakklandi eiga nú á
hættu að verða sektaðir kveiki
þeir í vindlingi á vinnustöðum, í
skólum, flugstöðvum, sjúkrahús-
um og öðrum opinberum stöðum
innandyra.
Yfir 175.000 útsendarar heil-
brigðisráðuneytisins hafa umboð
til að sekta þá sem eru staðnir að
því að hlíta ekki banninu um sem
svarar 6.000 krónum og yfirmenn
á vinnustöðum, sem láta slík brot
óátalin, um sem svarar 12.000
krónum.
Eftir ár mun bannið einnig ná
til veitinga- og vínveitingahúsa.
Frönsk yfirvöld hafa heitið
hverjum þeim, sem hættir að
reykja endurgreiðslu á útgjöldum
fyrir níkótíntyggjói og öðrum slík-
um hjálpartækjum upp á sem
svarar 4.500 krónum á ári.
„Við erum að byrja
upppsteypu á húsinu fyrir alvöru
og þetta er fyrsti áfanginn í því,“
segir Sigurður Ragnarsson,
framkvæmdastjóri Austurhafnar-
verkefnis hjá ÍAV. Í gær voru
steyptir eitt þúsund rúmmetrar af
botnplötu tónlistar- og ráðstefnu-
hússins. Frá því klukkan sex um
morguninn var 130 steypubílum
ekið í húsgrunninn. Um einn sjötti
hluti botnplötunnar var steyptur í
gær. „Við verðum að steypa upp
húsið næstu fjórtán til fimmtán
mánuði. Allan þann tíma þurfum
við að jafnaði að hella úr einum
steypubíl á hverjum klukkutíma,“
segir Sigurður.
Steyptu þúsund
rúmmetra í gær
Viðskiptaráðherra
greindi í gær frá samkomulagi
sem viðskiptaráðuneytið hefur
gert við Alþýðusamband Íslands,
Neytendasamtökin og Neytenda-
stofu um eftirfylgni með aðgerð-
um ríkisstjórnarinnar til lækkun-
ar á matvælaverð.
Tollalækkanir og lækkun á
virðisaukaskatti á matvöru, tekur
gildi 1. mars, og eiga þær
aðgerðir leiða til 14 til 16
prósenta lækkunar á matavælalið
vísitölu neysluverðs. Með því er
ætlunin að matvælaverð hér á
landi sambærilegt við meðalverð
á Norðurlöndum. „Það er
mikilvægt að almenningur sé
vakandi með okkur í þessu máli
og fylgist með verðinu,“ segir
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna.
Samkomulag
um eftirfylgni
Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, segir frumvarp
um breytingar á samkeppnislög-
um vera gegn málfrelsi og
skoðanafrelsi.
Hann segir þann þátt frum-
varpsins sem snýr að starfsemi
fyrirtækja sé um margt mjög
sérstakur og ef það verði að lögum
yrði það mjög heftandi fyrir
starfsemi samtaka í atvinnulífinu.
Þetta kemur fram í fréttabréfi
Samtaka atvinnulífsins.
Í frumvarpinu, sem liggur
fyrir á Alþingi, er gert ráð fyrir
nýjum og að einhverju leyti
hertum refsiheimildum.
Samkeppnislög
gegn málfrelsi
Seðlabanki Evrópu
ætti að gera meira til að hindra
ólöglega áframsendingu persónu-
upplýsinga úr bankamillifærslu-
kerfinu SWIFT til bandarískra
yfirvalda í nafni hryðjuverka-
varna. Þennan úrskurð kvað
Persónuvernd Evrópusambands-
ins (EDPS) upp í gær.
Peter Hustinx, yfirmaður
EDPS, sagði Seðlabanka Evrópu
verða að axla ábyrgð sem aðili að
eftirlitsnefnd sem hefur það
hlutverk að fylgjast með því að
SWIFT-fyrirtækið fari að gildandi
evrópskum lögum um persónu-
vernd. Hann sagði ekki hægt að
una við þann „leynilega, reglu-
lega og víðtæka aðgang“ sem
bandarísk yfirvöld fengju að
bankaupplýsingum Evrópubúa í
gegn um SWIFT.
Of miklu miðlað
vestur um haf
Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins var kallað að
veitingastaðnum Caruso í
fyrradag eftir að vegfarandi
hafði tilkynnt um að mikinn reyk
legði frá matsölustaðnum. Tveir
dælubílar voru sendir á staðinn
ásamt sjúkrabíl og lögreglu.
Þegar þeir komu á staðinn kom
hins vegar í ljós að starfsmenn
Caruso höfðu einungis verið að
kveikja á pitsuofni staðarins og
reykurinn því eðlilegur.
Jose Garcia, eiganda Caruso,
fannst málið fremur skondið. „Ég
sá slökkviliðsbílinn fyrir utan og
fór bara að hlæja og hugsaði með
mér hvað þessir vitleysingar
væru að gera þarna. Það var bara
verið að kveikja á pitsuofninum
og þá kemur svolítill reykur upp
um strompinn.“
Var að kveikja
á pitsuofni
Tillögur starfshóps
sem umhverfisráðherra skipaði til
að fara yfir stöðu svifryksmeng-
unar og möguleika til úrbóta voru
gerðar opinberar á fréttamanna-
fundi á Akureyri í gær.
Á fundinum upplýsti Jónína
Bjartmarz umhverfisráðherra að
unnið verði gegn svifryksmeng-
uninni með fræðslu og efnahags-
legum og skipulagslegum leiðum í
stað boða, banna eða strangra við-
urlaga. Starfshópurinn telji til
dæmis ekki raunhæft að banna
nagladekk miðað við þær marg-
breytilegu aðstæður sem við er að
glíma í vetrarakstri á Íslandi.
Tillögur starfshópsins eru m.a.
þær að takmarka beri notkun
nagladekkja með efnahagslegri
hvatningu og kynning á ónegldum
vetrardekkjum verði aukin.
Fræðsla í stað
boða og banna