Fréttablaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 10
Hagsmunasamtök
krabbameinsgreindra, Vonin, hafa
verið stofnuð. Haukur Þorvalds-
son, formaður Vonarinnar, segir að
samtökin muni berjast fyrir bætt-
um hag krabbameinssjúklinga.
Hagsmunamál þeirra séu í ólestri
því engin hagsmunasamtök krabba-
meinsgreindra hafi verið til í land-
inu. Krabbameinsfélögin teljist
ekki hagsmunasamtök.
Haukur segir að víða sé pottur
brotinn. Krabbameinssjúklingar
líði fyrir að fá ekki sömu eða svip-
aða þjónustu innan heilbrigðiskerf-
isins og aðrir sjúklingahópar.
„Hópur krabbameinsgreindra
stækkar ár frá ári og nú eru í land-
inu um níu þúsund menn sem hafa
verið greindir með krabbamein í
meira en fimm ár. Við krabba-
meinsgreindir teljum mikið vanta
á að við fáum sömu þjónustu og
aðrir,“ segir Haukur.
Brýnast er, að hans mati, að taka
réttindamál krabbameinsgreindra
öryrkja í gegn. Haukur bendir á að
stöðugt fleiri verði öryrkjar eftir
því sem fleiri greinast með krabba-
mein í samfélaginu. „Margir láta
líka hjá líða að sækja rétt sinn til
Tryggingastofnunar því að fólk
hefur nóg að gera við að berjast við
sjúkdóminn og lyfjameðferðirn-
ar.“
Haukur telur að bæta þurfi
aðstöðu fólks með krabbamein
innan Landspítala-háskólasjúkra-
húss. Færustu læknar og hjúkrun-
arfræðingar séu þar við störf en
húsnæðismálin séu fyrir neðan
allar hellur. Lyfjameðferðin fari til
dæmis fram í gamla hluta LSH og
þar sé þröng á þingi.
„Fólk situr í öllum kimum til að
fá lyfjameðferðirnar sínar. Krabba-
meinsdeildin er með tólf rúm á
móti sjötíu rúmum hjartasjúklinga.
Við liggjum á hinum og þessum
deildum spítalans þegar við þurf-
um að leggjast inn,“ segir hann.
Endurhæfingarþjónustuna má
bæta, að mati Hauks, ekki síst sál-
rænu endurhæfinguna. Hann telur
nauðsynlegt að byggja krabba-
meinssjúklinga upp andlega eftir
meðferð þannig að fólk geti notið
morgundagsins.
Haukur Þorvaldsson greindist
sjálfur með ólæknandi krabba-
mein, hið sjaldgæfa silfurfrumu-
krabbamein, í mars 2005 og hefur
verið öryrki frá fyrsta degi. Um
fjörutíu manns mættu á stofnfund-
inn.
Sjö rúm fyrir
krabbameins-
sjúklinga
Krabbameinssjúklingar líða fyrir að fá ekki sömu
þjónustu og aðrir sjúklingahópar. Húsnæðismálin
eru í ólestri, að mati formanns Vonarinnar. Á LSH
eru aðeins sjö rúm fyrir sjúklinga með krabbamein.
Ríkisútvarpið verður
sent út um gervihnött í læstri
dagskrá, til þess að sjómenn og
fólk á strjálbýlli svæðum landsins
eigi greiðan aðgang að sjónvarps-
og útvarpsdagskrá RÚV.
Til að geta tekið við útsending-
um þarf gervihnattadisk og
viðtæki með rauf fyrir aðgangs-
kort að Conax-myndlyklakerfinu.
Kortin munu fást hjá RÚV.
Verkið var ekki útboðsskylt og
er áætlaður heildarkostnaður 150
milljónir króna, næstu þrjú árin.
Samningurinn var undirritaður í
gær af fulltrúum RÚV, Telenor,
fjarskiptasjóðs og samgönguráðu-
neytis.
Náist á sjónum
og í strjálbýlinu
Eiganda Wilson Muuga
ber skylda til að fjarlægja skipið
úr Hvalsnesfjöru og bera af því
allan kostnað.
Jónína Bjartmarz umhverfis-
ráðherra og Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra fullyrtu það
á Alþingi í gær.
Björgvin G. Sigurðsson Sam-
fylkingunni vildi svör við spurn-
ingu um hver beri ábyrgð á að
skipið verði fjarlægt auk þess
sem hann lagði áherslu á að
aðgerðum yrði hraðað því
umhverfisslys væri yfirvofandi.
Jónína Bjartmars kvað lög
segja til um að ábyrgðin væri
eigandans. Honum bæri að fjar-
lægja skipið og það ekki seinna
en sex mánuðum eftir strand.
Jafnframt hvíldi siðferðisleg og
samfélagsleg ábyrgð á eiganda
því miklir hagsmunir væru í
húfi. Þá væri þess beðið að eig-
andinn greiddi þann kostnað sem
þegar hefur fallið til vegna
strandsins.
Sturla Böðvarsson tók undir
með Jónínu og sagði engan afslátt
gefinn. Ábyrgðin væri eigend-
ans. Sturla sá um leið ástæðu til
að hvetja þingmenn til að leggj-
ast ekki á sveif með útgerðar-
mönnum og tryggingafélögum
sem vilja víkja sér undan
ábyrgð.
Báðir ráðherrarnir sögðu að
ef ekki vildi betur myndi ríkið
sækja rétt sinn fyrir dómstólum.
Eigandinn ber alla ábyrgð