Fréttablaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 12
Verð á 50 stunda
námskeiði í íslensku fyrir útlend-
inga hefur lækkað víðast hvar um
landið úr 35-40 þúsund krónum í
11-12 þúsund krónur þó að ekki sé
enn ljóst hvaða styrkur fáist frá
menntamálaráðuneytinu. Aðsókn-
in hefur að sama skapi aukist
víða.
Í Borgarbyggð hefur verðið
lækkað í 11 þúsund krónur og
verða útlendingarnir að hafa 80
prósenta mætingu til að fá þetta
verð. Miðað er við að verkalýðsfé-
lög greiða verðið niður um 75 pró-
sent og eru þá eftir um 2.500 krón-
ur. Aðsóknin hefur aukist mikið
frá því í haust.
Guðrún Vala Elísdóttir, náms-
ráðgjafi á Akranesi, kennir útlend-
ingunum íslensku og segir að lang-
best sé að kenna á laugardögum
en þá komi upp það vandamál að
menn vilji ekki tapa launum.
„Fólk vill vinna og lætur það
ganga fyrir. Ég finn ofboðslegan
mun á fólki eftir því hvort nám-
skeiðið er á laugardegi eða að
kvöldi til í miðri viku. Fólk er ekki
eins þreytt á laugardögum,“ segir
hún.
Verð hefur einnig lækkað hjá
Fræðsluneti Austurlands. „Við
hentum okkur út í djúpu laugina
því að við vitum ekki hvað við
fáum frá menntamálaráðuneytinu
en vonandi gengur þetta upp,“
segir Laufey Eiríksdóttir, verk-
efnisstjóri hjá Fræðsluneti Aust-
urlands.
Aðsókn á námskeið
hefur aukist mikið
Breska lögreglan
yfirheyrði í gær níu menn, sem
handteknir voru í Birmingham í
fyrradag, grunaðir um samsæri
um að ræna breskum hermanni
sem játar íslamstrú og ætla að
pynta hann og myrða og setja
upptöku af ódæðinu á netið.
Mannránsáformin, sem að
sögn breskra fjölmiðla var ætlað
að vera í stíl við aftökur á
erlendum gíslum í Írak, kváðu
hafa verið komin á lokastig
þegar upp um það komst.
Er það þakkað mánaðalöngu
eftirliti hryðjuverkavarnalög-
reglu með hinum grunuðu.
Níu grunaðir
yfirheyrðir
Bæjarstjórnin hefur
samþykkt að hefja svokallaðar
umönnunargreiðslur til foreldra
frá og með 1. febrúar.
Greiðslurnar eiga að gera
foreldrum auðveldara að vera
heima hjá börnum sínum eða
greiða dagforeldri. Upphæð
greiðslnanna er 31.500 fyrir
foreldra í sambúð, en 38.500 fyrir
einstæða.
„Ég fagna þessu,“ segir
Vilhjálmur Birgisson hjá
Verkalýðsfélagi Akraness:
„Þarna er nýr valmöguleiki sem
er að koma upp. Vissulega vildi
maður sjá þessar upphæðir
hærri.“
Nýjar greiðslur
til foreldra
Guðlaugur Þór Þórðar-
son Sjálfstæðisflokki mælti í gær
fyrir frumvarpi um að einkasala
ríkisins á sölu léttvíns og bjórs
verði afnumin.
Er þetta í fjórða sinn sem
mælt er fyrir málinu.
Guðlaugur sagði núverandi
fyrirkomulag úrelt enda uppruni
þess frá haftatímum.
Flutningsmenn frumvarpsins
eru úr þremur fjölmennustu
þingflokkunum og kom fram í
máli Guðlaugs að hann hefði orð
þingmanna frjálslyndra fyrir
stuðningi við það.
Þuríður Backman VG lýsti
flokk sinn andvígan málinu og
sagði mikilvægt að aðgengi að
áfengi væri takmarkað þar sem
vá stafaði af því.
Léttvín í verslanir
Opnaður hefur verið
nýr vefur Vildarbarna, sem er
ferðasjóður fyrir langveik börn.
Sjóðurinn var stofnaður af
Icelandair.
Í ár er stefnt að því að styrkja
sjötíu langveik börn til ferðalaga
erlendis og er það í tilefni af sjötíu
ára afmæli Icelandair.
Sigurður Helgason er formaður
sjóðsins og segir í tilkynningu að
markmiðið sé að sem allra flestir
geti nýtt sér sjóðinn. Eitt hundrað
fjölskyldur hafi verið styrktar
síðan árið 2003, en nú vilji félagið
gera enn betur. Verndari sjóðsins
er frú Vigdís Finnbogadóttir.
Sjötíu börn fái
að ferðast í ár
TM
6.530 kr.
8.758 kr.
26%
Sjóvá
6.839 kr.
10.329 kr.
49%
Sjóvá Strax
6.018 kr.
9.089 kr.
31%
VÍS
6.750 kr.
9.463 kr.
36%
Vörður
6.377 kr.
8.982 kr.
29%
Skyldu- og framrúðutrygging
% dýrari en
m.v. Kaskó- og skyldutrygging*
Kaskó- og skyldutrygging*
5.081 kr.
6.951 kr.
VERÐSAMANBURÐUR - VERÐ PER MÁNUÐ!
* miðað við 50.000 kr. sjálfsábyrgð 2002 árg. · 890.000 kr. · 1600 vél
Verðsamanburður gerður 11.01.07
Vátryggjandi er Tryggingamiðstöðin hf.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
B
I
36
00
2
01
/0
7