Fréttablaðið - 02.02.2007, Síða 13
Á árvissum blaða-
mannafundi sínum í gær sagði
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
efnahag lands síns í stöðugum
uppgangi, en landið væri óverð-
skuldað tortryggt erlendis og
sjálfur væri hann tortrygginn í garð
áforma Bandaríkjamanna, ekki síst
hvað varðar eldflaugavarnaáætlun
þeirra.
Á fundinn mætti metfjöldi
blaðamanna, alls 1.232, og hann stóð
yfir í þrjá og hálfa klukkustund.
Spurningarnar sem Pútín fékk
sneru mikið að vangaveltum um
hvað verður þegar síðara kjörtíma-
bili hans lýkur að ári.
Segir tortryggni
óverðskuldaða
Kvenfélagið
Hringurinn hefur fært slysa- og
bráðadeild Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss gjafir til að stytta
börnum stundir meðan dvalið er á
biðstofunni.
„Kvenfélagið Hringurinn
færði fyrir nokkru slysa- og
bráðadeild LSH að gjöf leikföng,
húsgögn, leikjatölvu, sjónvarp og
DVD-tæki á biðstofu fyrir börn.
Gjöf þessi á eftir að gleðja mörg
börn sem leita á deildina og stytta
þeim stundir,“ segir um gjöf
kvenfélagskvennanna í tilkynn-
ingu frá Jóni Baldvini Halldórs-
syni, upplýsingafulltra landspítal-
ans.
Gáfu slysadeild
leikjatölvu
Jacques Chirac,
forseti Frakklands, sagði í viðtali
við þrjú dagblöð að það væri
„ekki sérstaklega hættulegt“ þótt
Írönum tækist að koma sér upp
kjarnorkuvopnum – og skyldu
Íranar reyna að beita slíkum
vopnum gegn Ísrael yrði Teheran
umsvifalaust „eytt“. Hann dró
síðan ummælin til baka.
Ummælin lét forsetinn falla í
viðtali við blöðin New York
Times, International Herald
Tribune og Le Nouvel Observat-
eur á mánudag, en daginn eftir
kallaði hann blaðamennina á sinn
fund til að freista þess að
endurskoða orð sín.
Forsetaskrifstofan gaf síðar
frá sér yfirlýsingu, þar sem
áréttað var að hvorki frönsk
stjórnvöld né alþjóðsamfélagið
myndu „líða það“ að Íranar kæmu
sér upp kjarnorkuvopnum.
Dregur eigin
orð til baka
Handboltalandslið
Íslendinga fær eina milljón króna
í styrk úr borgarsjóði. Tillaga
þessa efnis frá Vilhjálmi Þ.
Vilhjálmssyni borgarstjóra var
samþykkt í borgarráði í gær.
„Landslið Íslands hefur á
heimsmeistaramótinu í hand-
knattleik sem fram fer í Þýska-
landi þessa dagana sýnt frábæra
frammistöðu og verið landi og
þjóð til mikils sóma. Af því tilefni
leggur borgarstjóri til við
borgarráð að Reykjavíkurborg
heiðri HSÍ og landslið okkar,“
sagði í tillögu borgarstjórans.
Landsliðið fær
eina milljón
Það er góður siður
að borða alltaf morgunmat
„Smá kríublund til viðbótar“
„Ég hef margoft gleymt lyklinum í skránni sem er ekki sérlega góður siður. Svo er
ég slæm með að láta klukkuna margvekja mig til að ná örlítilli „kríu“ til viðbótar.
En ég tel mér trú um að ég bæti allt upp með góðu siðunum mínum. Ég borða til
dæmis alltaf Kelloggs Special K í morgunmat.“
Katrín Dögg Hilmarsdóttir, MS í viðskiptum og afrekskona í golfi.
Þeir sem borða morgunmat eru grennri
Það er útbreiddur misskilningur að það sé auðveldara að
grennast ef morgunverði er sleppt. Þvert á móti þá sýna
rannsóknir að þeir sem borða morgunmat eru alla jafna
grennri en þeir sem sleppa því. Ástæðan er m.a. sú að þeir
sem sleppa morgunverði hættir til að næla sér oftar í aukabita
til að bæta sér upp slen og orkuleysi. Vendu þig á að borða
alltaf morgunmat. Það tekur bara fimm mínútur að fá sér skál
af Kelloggs Special K með léttmjólk eða undanrennu og þú
nýtur þess langt frameftir degi.
Morgunmatur kemur brennslunni í gang og gefur þér orku
til að byrja daginn. Kelloggs Special K er bragðgóður og
hressandi morgunmatur og með honum færðu mörg
lífsnauðsynleg vítamín og síðast en ekki síst járn.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
9
5
1
8