Fréttablaðið - 02.02.2007, Page 16
Möguleikinn á því að
Íslendingar sæju Færeyingum
fyrir rafmagni var meðal þess
sem til umræðu var á fundi Jóann-
esar Eidesgaard, lögmanns Fær-
eyinga, og Geirs H. Haarde for-
sætisráðherra á miðvikudag, á
fyrsta degi þriggja daga opinberr-
ar heimsóknar lögmannsins til
Íslands.
Á blaðamannafundi að loknum
viðræðum þeirra í Ráðherrabú-
staðnum í Reykjavík sagði Eides-
gaard þá mjög áhugasama um
möguleikann á að lagður yrði raf-
strengur frá Íslandi til Færeyja;
það gæti dregið mjög úr þörf Fær-
eyinga fyrir innflutta olíu og þar
með hjálpað þeim að draga veru-
lega úr losun gróðurhúsaloftteg-
unda. Ráðherrarnir sögðust þó
aðeins hafa rætt þetta á almennum
nótum þar sem formleg athugun á
því hvernig standa mætti að slíkri
framkvæmd hefði ekki farið fram.
Öllu nær framkvæmd er hins
vegar lagning nýs fjarskipta-
strengs frá Færeyjum til megin-
lands Evrópu, sem bæði Færey-
ingar og Íslendingar eru að sögn
ráðherranna áhugasamir um að
verði einnig lagður til Íslands, til
viðbótar við FARICE-strenginn.
Ráðherrarnir sögðust hafa rætt
öryggismál á Norður-Atlantshafi í
ljósi þess að ekkert varnarlið er
nú lengur á Íslandi. Þeir hefðu
einnig rætt þörfina á að komið
yrði upp nýrri ratsjá í stað þeirrar
sem Atlantshafsbandalagið rak í
grennd við Þórshöfn þar til henni
var lokað nú um áramótin. Þar
sem Íslendingar annast einnig
loftferðaeftirlit í færeysku lög-
sögunni er það að sögn ráðherr-
anna gagnkvæmt hagsmunamál
beggja þjóða að ratsjá verði starf-
rækt í Færeyjum, í nafni öryggis á
íslenska flugumferðastjórnar-
svæðinu.
Ráðherrarnir lögðu báðir
áherslu á mikilvægi þess að fram-
kvæmd Hoyvíkursamkomulags-
ins svonefnda tækist vel, en svo er
nefndur víðtækur fríverslunar- og
viðskiptasamningur landanna sem
gekk í gildi í nóvember.
Báðir lýstu ráðherrarnir
ánægju með nýlegan fjölþjóða-
samning um síldveiðar, en þeir
hörmuðu jafnframt að ekki skyldi
enn hafa tekist að ná samkomulagi
um tvíhliða samninga grannþjóð-
anna um loðnuveiði.
Ráðherrar ræddu
raflögn til Færeyja
Jóannes Eidesgaard, lögmaður Færeyinga, hóf opinbera heimsókn til Íslands á mið-
vikudag með viðræðum við forsætisráðherra. Auk samninga um viðskipti, fiskveiðar,
flug og siglingar ræddu þeir möguleika á að Færeyingar keyptu rafmagn frá Íslandi.
Greiningardeild Félags
fasteignasala telur að líflegt ár sé
fram undan á fasteignamarkaðn-
um.
Fasteignasalar segja góðar
horfur í atvinnumálum og góðan
kaupmátt vísbendingu um að fast-
eignaverð hækki.
Að því er segir í athugunum
greiningardeildar Félags fast-
eignasala leiðir aukin velmegun
yfirleitt til þess að fleiri fermetr-
ar húsnæðis verði á hvern ein-
stakling. Einnig sé lánaframboð
nú meira en árið 2006. „Viðskipta-
bankarnir eru almennt farnir að
lána aftur til fasteignakaupa eftir
að hafa nánast dregið sig út af
markaðnum í
fyrra,“ segir
greiningardeild-
in.
Þá er sagt að
hjöðnun verð-
bólgu ásamt fyr-
irhugaðri lækk-
un á
virðisaukaskatti
á matvæli muni
leiða til hag-
stæðari
umhverfis fyrir
kaupendur fast-
eigna. Mikil eft-
irspurn hafi verið í janúar og sala
aukist.
Fasteignasalar segja mikla
fólksfjölgun leiða til aukinnar eft-
irspurnar. Enn hafi ekki skilað sér
að fullu hækkun á verðmæti lóða
og tiltekinna staðsetninga. „Sú
hækkun virðist í sumum tilfellum
ekki vera komin að fullu inn varð-
andi notaðar eignir,“ segir grein-
ingardeildin.
Eina forsenduna fyrir aukinni
eftirspurn segja fasteignasalar
vera ört vaxandi áhuga útlendinga
á að kaupa húsnæði á Íslandi.
„Ekkert lát virðist á þeirri þróun,“
segir greiningardeildin sem kemst
að þeirri niðurstöðu að verð fast-
eigna muni á þessu ári hækka
„nokkuð umfram verðbólgu.“
Spá hækkandi fasteignaverði
Samþykkt
hefur verið í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar að ganga
til íbúakosninga um deili-
skipulagstillögu að stækk-
aðs álvers í Straumsvík
laugardaginn 31. mars.
Tillagan var samþykkt
með mótatkvæði vinstri
grænna.
Málsmeðferðarreglur
vegna íbúakosninga voru
samþykktar á bæjar-
stjórnarfundi á fimmtudag. Regl-
urnar gilda um íbúakosningar og
skoðanakannanir meðal bæjarbúa.
Einfaldur meirihluti þeirra sem
nýta sér atkvæðisrétt sinn ræður.
Guðrún Ágústa Guðmundsdótt-
ir, bæjarfulltrúi vinstri grænna,
segir að auglýsing á deiliskipu-
lagstillögu Alcan fari nú ofan í
skúffu þar til niðurstaða
atkvæðagreiðslunnar
liggur fyrir. „Við erum
andsnúin þessu. Við telj-
um eðlilegra að kjósa um
hvort það eigi að stækka
álverið eða ekki,“ segir
hún.
Kjörstjórn Hafnar-
fjarðar hefur verið falið
að hefja undirbúning að
kosningunni. Ákveðið
hefur verið að utankjör-
fundaratkvæðagreiðsla fari fram
frá og með 15. febrúar.
Aukabæjarráðsfundur verður í
dag. Meðal annars verður rætt um
orðalag á spurningunni sem borin
verður upp í kosningunni. Ákveðið
hefur verið að leyfa hagsmunaað-
ilum að taka þátt í að móta orða-
lagið.
Orðalag spurningar
um álver í skoðun HeilbrigðiseftirlitKjósarsvæðis ætlar að gangast
fyrir ítarlegri rannsókn á lífríki
og efnum í Hafravatni. Er
rannsóknin gerð vegna áhuga hjá
heilbrigðiseftirlitinu á að kanna
þau stöðuvötn sem næst liggja
þéttbýli.
Að rannsókninni lokinni á að
vera hægt að segja betur til álags-
þol Hafravatns vegna mengunar.
Stöðugt eru fleiri sem sækja úti-
vistarsvæði þar sem aðgangur er
að vatni og því mikilvægt að kanna
áhrifin á stöðuvötn.
„Hafravatn varð fyrir valinu
þar sem það er á mörkum þéttbýlis
og má búast við að aukinn ágangur
verði umhverfis vatnið á næstu
árum,“ segir í bréfi Þorsteins Nar-
fasonar, framkvæmdastjóra heil-
brigðiseftirlitsins, til bæjarráðs
Mosfellsbæjar, sem samþykkti að
taka þátt í kostnaði við verkefnið.
Kanna umfang
mengunar
Hafðu það
gott um
helgina
GRENSÁSVEGI 48 • SÍMI 553 1600
Í NAUTI ERUM VIÐ BESTIR