Fréttablaðið - 02.02.2007, Síða 18
Verð frá 2.680.000 kr.*
ASKJA · Laugavegi 170 · 105 Reykjavík · Sími 590 2100 · www.askja.is · ASKJA er eini viðurkenndi sölu- og þjónustuaðili Mercedes-Benz á Íslandi.
Fjölhæfur eins og þú
Það þarf töluverða fjölhæfni til að vera framkvæmdastjórinn á
heimilinu, útsjónarsami uppalandinn og meistarinn í hvers
kyns útréttingum. Mercedes-Benz B-Class er hinn fullkomni
fjölskyldubíll og býr yfir sveigjanleika sem fáir aðrir bílar geta
státað af. Hann er ótrúlega rúmgóður miðað við hversu nettur
og lipur hann er auk þess að vera kraftmikill, þægilegur og
sportlegur, allt í senn.
Þessi glæsilegi meðlimur Mercedes-Benz fjölskyldunnar hefur
náð frábærum árangri í öryggisprófum og hlaut m.a. 5 stjörnur
í EURO-NCAP. Há staða sætanna eykur öryggi farþega
verulega og gerir allt aðgengi að bílnum þægilegra. Þá er
B-Class frægur fyrir að vera eyðslugrannur og hefur dísilknúni
CDI bíllinn unnið til verðlauna í sparaksturskeppnum bæði hér
heima og erlendis. Komdu í sýningarsal okkar að Laugavegi
170 og mátaðu bíl sem er fjölhæfur eins og þú.
Bæjarstjórn
Seltjarnarness segir tillögu
stjórnar Strætó bs. um nýja
kostnaðarskiptingu stangast á við
ákvæði samkomu-
lags eigenda Strætó,
sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæð-
inu. Ekki megi
breyta kostnaðar-
hlutföllum milli
eigenda nema
samsvarandi
breyting verði á
þjónustunni eða um það samið.
Seltirningar segja að frá því
samkomulagið um Strætó bs. var
gert hafi þjónusta Strætó við
Seltirninga aðeins breyst óveru-
lega. Þá hafi íbúafjöldi bæjarins
staðið í stað, öfugt við Reykjavík
og Kópavog. Því sé ekki hægt að
fallast á að framlag Seltjarnarness
hækki um 90 prósent.
Neita að borga
meira til Strætó
Um 90 svæði, sem
ná yfir rúmlega 24 þúsund hekt-
ara lands, voru notuð til skot- og
sprengjuæfinga Bandaríkjahers á
þeim tíma sem herinn dvaldi hér á
landi. Flest svæðin eru á Reykja-
nesi og á höfuðborgarsvæðinu en
einnig í öðrum landshlutum. Þetta
kom fram í svari Valgerðar Sverr-
isdóttur utanríkisráðherra á
Alþingi við fyrirspurn Jóns Gunn-
arssonar, þingmanns Samfylking-
arinnar.
Í svari ráðherra kemur einnig
fram að þótt mörg svæði séu þekkt
þurfi að rannsaka þau mun betur
til að áætla magn skota og
sprengna á hverju svæði fyrir sig.
Af þeim 73 svæðum sem skráð
eru, en beðið er upplýsinga frá
Bretlandi um önnur 27 svæði, eru
greinargóðar upplýsingar til um
29 þeirra. 36 svæði frá því í seinni
heimsstyrjöldinni eru ókönnuð.
Ekki er heldur útilokað að fleiri
svæði bætist við eftir því sem
gagnaöflun vindur fram. Land-
helgisgæslan fékk árið 2002 tækja-
búnað sem leitar að sprengjum
undir yfirborði, en það hefur bætt
forsendur til gagnaöflunar til
muna.
Ekki hefur verið áætlað hversu
langan tíma gagnaöflun og hreins-
un æfingasvæðanna tekur. Til
samanburðar á hreinsun á 500 til
1500 hektara svæði á Vogaheiði að
ljúka árið 2012. Bandaríski herinn
notaði svæðið frá 1952-1960 til að
æfa skotárásir með sprengjuvörp-
um, fallbyssum, skriðdrekum og
öðrum vopnum sem landherir
nota. Kostnaður við hreinsunina
er ókunnur.
Hreinsun mun taka áratugi
Íslensk börn eru
að meðaltali með tvöfalt fleiri
skemmdar tennur en börn í Sví-
þjóð og er tannheilsa þeirra sú
versta á Norðurlöndum. Þetta er
niðurstaða Munnís-rannsóknar-
innar sem gerð var um allt land.
Niðurstöður rannsóknanna voru
birtar í gær. Þar kom meðal ann-
ars fram að hjá tólf ára barni á
Íslandi eru að meðaltali rúmlega
tvær fullorðinstennur skemmdar
og þarfnast viðgerða eða hafa
þegar verið fylltar. Meðal fimmt-
án ára unglinga eru að meðaltali
fjórar tennur skemmdar. Skemmd-
ir eru algengari hjá strákum en
stelpum.
Tannheilsu fer því hrakandi og
segir í skýrslunni að áhyggjuefni
sé hve mikið það færist í vöxt að
ekki sé gert við skemmdir. Um 17
prósent barna fara ekki í reglulegt
eftirlit hjá tannlækni, verst er
ástandið á Vestfjörðum en best í
Skagafirði.
„Mjög mikilvægt er að fólk geri
sér grein fyrir því að aðgengi að
tannheilsuþjónustu hér á landi er
ekki nægilega gott,“ segir Hólm-
fríður Guðmundsdóttir, tannlækn-
ir hjá Lýðheilsustöð og heilsugæsl-
unni. Hún segir Íslendinga búa við
annað kerfi en það sem tíðkast hjá
öðrum Norðurlandaþjóðum.
Kostnaðarhlutdeild foreldra sé
mun meiri hér á landi en áður var
og það hafi orðið til þess að dregið
hafi úr komu barna til tannlækna.
Kerfið þurfi að taka það athugun-
ar.
Tannskemmdir algengari hjá strákum
Áætlun Sameinuðu
þjóðanna um framtíðarstöðu
Kosovo gengur þvert á óskir
Serbíustjórnar um að héraðið
verði eftir sem áður formlega
innan landamæra Serbíu. Þetta
sögðu fulltrúar Serba í viðræðun-
um um Kosovomálið í gær, daginn
áður en erindreki SÞ, Martti
Ahtisaari, kynnir áætlunina fyrir
fulltrúum Serbíustjórnar og
hinnar kjörnu héraðsstjórnar
Kosovo.
Slobodan Samardzic, meðlimur
serbnesku samninganefndarinn-
ar, tjáði serbneska sjónvarpinu að
hugmyndir Ahtisaaris „gengju
þvert á skilyrði Serbíu“.
Segja tillögur
þvert á skilyrði