Fréttablaðið - 02.02.2007, Qupperneq 19
*miðað við tollgengi Evru í febrúar 2007
„Ég held að enginn
hafi gert sér grein fyrir því hvað
það er stutt í það að Örfirisey
taki ótrúlegum breytingum,“
segir Björn Ingi Hrafnsson, for-
maður starfshóps um framtíð
Örfiriseyjar.
Þyrping ehf. vill reisa íbúða-
byggð fyrir 4.500 manns á 25
hektara landfyllingu út af Ána-
naustum í Örfirisey. Oddur Víðis-
son, framkvæmdastjóri Þyrping-
ar, segir það mundu svara mikilli
eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði
miðsvæðis í Reykjavík, ekki síst
við sjávarsíðuna. Á svæðinu, sem
nefnt verði Hólmar, verði bæði
fjölbýlishús og sérbýli. Gert
verði ráð fyrir lóðum fyrir skóla,
íþróttaaðstöðu, sundlaug og ann-
arri þjónustu.
„Með skipulagi í Hólmum
verður leitast við að skapa sem
best veðurskilyrði og tryggja
gott útsýni. Áætlað er að mynda
sjávarlón með flóðgáttum sem
halda vatnsborði stöðugu svo
ekki gæti flóðs og fjöru. Aðgengi
að sjó verður óheft. Bílastæði
íbúa verða að mestu neðanjarðar
og net gangstíga mun tryggja
gönguleiðir sem ekki liggja yfir
umferðargötur,“ segir í greinar-
gerð Þyrpingar sem vonast til að
geta hafist handa innan tveggja
ára.
„Frumkvæði Þyrpingar sýnir
að það eru fjölmargir sem hafa
áhuga á að koma að þessari upp-
byggingu,“ segir Björn Ingi
Hrafnsson, sem undirstrikar þó
að framtíðarskipulag Örfiriseyj-
ar allrar sé í skoðun og ekkert
hafi verið ákveðið. Fleiri en Þyrp-
ing hafi óformlega lýst áhuga á
að koma að uppbyggingunni. Örf-
irisey sé einstök og ekki megi
klúðra verkefninu.
Björn Ingi segir að hluti und-
irbúningsins sé að kynna sér
hvernig best hafi verið staðið að
uppbyggingu á sambærilegum
svæðum annars staðar í heimin-
um. Tveir menn hafi í síðustu
viku farið í kynnisferð til Kaup-
mannahafnar og Árósa. Fleiri
skoðunarferðir til útlanda sé
áætlaðar.
„Við erum í sambandi við fjöl-
marga erlenda ráðgjafa og hug-
myndin er að efna hér til alþjóð-
legrar ráðstefnu um skipulag
eyjarinnar og framtíð hennar,“
segir Björn Ingi.
Miklir olíutankar eru í Örfiris-
ey. Björn Ingi segir öryggi þeirra
og framtíð til skoðunar hjá hópi
sérfræðinga. Þá þurfi að hyggja
vel að burðargetu núverandi
gatnakerfis og bregðast við ef
úrbóta sé þörf.
„Það greinilegt að það er allt á
fleygiferð í skipulagsmálum í
Örfirisey og það er fínt,“ segir
Björn Ingi.
Örfirisey taki fljótt breytingum
Þyrping ehf. vill fá að gera landfyllingar og reisa nýja byggð fyrir 4.500 manns á landfyllingum út fyrir Örf-
irisey. Björn Ingi Hrafnsson, formaður starfshóps um framtíð Örfiriseyjar, boðar alþjóðlega ráðstefnu.
Varmársamtökin
stöðvuðu fyrirhugaðar vegafram-
kvæmdir við tengibraut um
Álafosskvos í Mosfellsbæ í
fyrradag.
Að sögn Sigrúnar Pálsdóttur,
stjórnarmanns samtakanna,
mættu tæplega fimmtíu manns til
mótmælanna. Meðal þeirra var
Bryndís Schram. Hún tók sig til
og settist fyrir framan skurð-
gröfu, sem hætti að moka. Fleiri
úr hópi mótmælenda fylgdu á
eftir og var vinna þá lögð niður að
mestu. Seinna kom byggingarfull-
trúi og stöðvaði framkvæmdir
alveg. Hann gaf ekki skýringar á
því, segir Sigrún.
Helgafellsbyggingar ehf.
stefna nú að því að reisa 1.200
íbúðir á svæðinu, segir Sigrún.
Einnig sé gert ráð fyrir 10.000
bíla umferð á dag á þessu
„vinsælasta útivistar- og ferða-
mannsvæði Mosfellsbæjar“.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu
segir meðal annars að byggðin
hafi verið á skipulagi í 24 ár og
ætti ekki að koma á óvart.
Bryndís stöðvar
skurðgröfurnar