Fréttablaðið - 02.02.2007, Page 20
nær og fjær
„ORÐRÉTT“ Með tvær bækur í smíðum
Árstími spurningakeppn-
anna er runninn upp. Sjón-
varpsþátturinn Meistarinn
hóf göngu sína á ný í gær
og síðar í mánuðinum hefst
fyrsta sjónvarpsumferðin í
Gettu betur.
Spurningakeppnir eru sívinsælt
sjónvarpsefni. Allt frá árdögum
sjónvarps hafa spurningakeppnir
í einhverri mynd verið á dagskrá
og vinsældirnar láta sjaldnast á
sér standa. Viltu vinna milljón,
Kjördæmin keppa, Popppunktur
og SPK eru allt
dæmi um vin-
sæla sjónvarps-
þætti þar sem
barist var um
að svara rétt.
En hvers vegna
eru spurninga-
keppnir svona
vinsælar?
„Í fyrsta lagi
getum við sam-
samað okkur
þáttakendum því þetta er venju-
legt fólk eins og við,“ segir Þor-
björn Broddason prófessor í fjöl-
miðlafræði. „Í öðru lagi veita
spurningakeppnir okkur tækifæri
til þátttöku í miðli sem býður ekki
upp á þátttöku annars. Við getum
setið heima og svarað spurningun-
um jafnvel þótt enginn heyri í
okkur og þannig berum við okkur
saman við þátttakendurna og upp-
götvum að við erum alls ekki svo
vitlaus,“ segir Þorbjörn og bætir
því við að spennan hafi einnig sitt
að segja. „Spurningakeppnir eru
vinsælar á sama hátt og handbolti
eða aðrar keppnir eru vinsælt
sjónvarpsefni. Áhorfendur sækja
í spennu og í spurningakeppnun-
um er aðeins einn sigurvegari. Að
auki getur áhorfandinn skipað sér
í lið, líkt og í boltanum, þú heldur
til dæmis með gamla skólanum
þínum og þar með magnast stemn-
ingin.“
Það eru ekki aðeins keppend-
urnir sem verða að hetjum á skján-
um heldur eiga spyrlarnir það til
að verða hálfgerðar stjörnur. „Vin-
sældir sumra spurningaþátta
byggjast á spyrlinum. Magnús
Magnússon heitinn var til dæmis
geysivinsæll spyrill,“ segir Þor-
björn.
Spurningakeppnir ná greini-
lega að sameina ýmsa þætti sem
áhorfendum líkar. Og ekki nóg
með það heldur telur Þorbjörn
einnig að keppnir af þessu tagi séu
vinsælar meðal framleiðenda.
„Spurningaþættir hljóta að vera
tiltölulega ódýrir í framleiðsu
miðað við vinsældir. Leikið efni
kostar til að mynda mun meira, en
þarna ertu með fólk af götunni,
sem þiggur ekki laun, í aðalhlut-
verkum,“ segir Þorbjörn sem
sjálfur skemmtir sér konunglega
yfir spurningaþáttum í sjónvarpi.
Sjónvarpsefni sem klikkar ekki
Er það kannski vin-
sælast?
Sá iðnvæðinguna
fyrir.
Spurning um
hagnaðinn
Ævintýralegar fiskbúðir
– úrval af gómsætum fiskréttum
Verði þér
að góðu
Grillaður skötuselur
F ISK ISAGA Hamraborg 14a / Sk ipho l t i 70 / Höfðabakka 1 / Nesveg i 100 (Vegamótum) / Sund laugaveg i 12 / Háa le i t i sbrau t 58–60 / f i sk i saga . i s