Fréttablaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 22
fréttir og fróðleikur
Hefur alhliða eftirlit með markaðinum
Þrjú ný framboð eru að
íhuga að bjóða fram til
Alþingis í kosningunum
í vor. Þessi framboð eru
tveir hópar öryrkja og
eldri borgara og samtökin
Framtíðarlandið. Fyrri tvo
hópana má staðsetja vinstra
megin við miðlínu stjórn-
málanna en Framtíðarland-
ið virðast vera Hægri-græn
umhverfisverndarsamtök.
Sérframboð á vegum Jóns
Baldvins Hannibalssonar
og Margrétar Sverrisdóttur
hafa einnig verið nefnd til
sögunnar.
Baldur Þórhallsson, prófessor í
stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, telur að ástæðan fyrir
framboðinu sé fyrst og fremst sú
að þeir sem standi að þeim séu
fullir af gremju í garð stjórnvalda
og hvernig þau hafa staðið að mál-
efnum aldraðra, öryrkja og að
umhverfismálum.
„En það getur einnig verið að
þessir hópar treysti ekki stjórnar-
andstöðunni til að bæta stöðuna
komist hún til valda eftir kosning-
ar,“ segir Baldur og bætir því við
að það sé athyglisvert að þessir
hópar vilji ekki leita á náðir stjórn-
arandstöðunnar með sín mál. „Það
er umhugsunarvert fyrir stjórnar-
andstöðuna, sem hefur fjallað
mikið um helstu kosningamál
þessara framboða, málefni aldr-
aðra, öryrkja og umhverfismál, að
hugsanlega verði sérstök framboð
til að vinna að þeim,“ segir Bald-
ur.
Auður Styrkársdóttir stjórn-
málafræðingur telur að vanga-
veltur þessara hagsmunahópa um
framboð kunni að þrýsta á stjórn-
málaflokkana til að skerpa stefnu
sína fyrir kosningar. „Hótunin um
framboð kann að duga til að flokk-
arnir taki við sér og sinni stefnu-
málum hagsmunahópanna betur.
Þetta er hugsanlega áskorun til
allra flokka,“ segir Auður.
Einar Mar Þórðarson, stjórn-
málafræðingur hjá félagsvísinda-
stofnun Háskóla Íslands, segir að
ástæðan fyrir framboði öryrkja
og aldraðra sé sú að þessir hópar
séu ósáttir við stöðu sína í samfé-
laginu og vilji breyta henni. „Þau
vilja koma manni á þing eða vekja
athygli á stefnumálum sínum með
því að fara í framboð.“
Einar segir að Framtíðarlandið
sé ósamstæður hópur en að sam-
tökin virðist vilja stofna Hægri-
grænan flokk á Íslandi. „Það er
hins vegar ekki ljóst hvaða stefnu
samtökin taka ef þau bjóða fram
því þau hafa ekki gefið það út.“
Einar segist halda að fólkið sem
stendur að Framtíðarlandinu vilji
ekki kjósa vinstri-græna vegna
þeirrar vinstrislagsíðu sem er á
flokknum. „Þetta er fólk sem skil-
greinir sig til hægri en vill setja
umhverfismálin á odinn.“
Baldur telur að ef Framtíðarland-
ið, sem hefur umhverfismál sem
sitt helsta stefnumál, bjóði fram
sé líklegt að framboðið taki fylgi
frá vinstri-grænum og Samfylk-
ingunni. „Það er áfall fyrir báða
flokkana ef Framtíðarlandið fer
fram. Umhverfisverndarsinnar
sem annars myndu kjósa þessa
flokka gætu kosið Framtíðarland-
ið.“ Baldur telur að framboð aldr-
aðra og öryrkja muni einnig taka
fylgi af Samfylkingunni og vinstri-
grænum en einnig af stjórnar-
flokkunum, sérstaklega Sjálfstæð-
isflokknum sem njóti mikils
stuðnings meðal aldraðra.
Auður telur að ef af framboð-
unum verður muni þau taka fylgi
af vinstriflokkunum, Samfylkingu
og vinstri grænum, því þau séu
sprotinn úr þeim farvegi. „Ég held
hins vegar að þessi framboð muni
ekki fá mikið fylgi ef þau bjóða
fram, þetta eru framboð sem berj-
ast fyrir einhverju einu máli,“
segir Auður.
Einar Mar segir að ef flokkarn-
ir bjóði fram muni þeir fyrst og
fremst taka fylgi frá vinstriflokk-
unum. „Fólkið sem mun kjósa
þessa flokka er óánægt með núver-
andi stöðu í stjórnmálunum og
myndi líklega frekar kjósa stjórn-
arandstöðuflokkana,“ segir Einar.
Hann telur að stjórnarandstöðu-
flokkarnir muni hagnast á fram-
boði flokkanna.
Í samtali við Fréttablaðið í gær
sagði Jón Baldvin Hannibalsson,
fyrrverandi ráðherra, að hann
hyggðist ekki stofna til framboðs í
kosningunum í vor. Hann útilokaði
hins vegar ekki að hann myndi
bjóða sig fram til Alþingis í ein-
hverjum stjórnmálaflokki.
Margrét Sverrisdóttir, sem
nýlega gekk út úr Frjálslynda
flokknum, segir að hún útiloki
ekki að stofna til framboðs á lands-
vísu í kosningunum í haust. „Ég
útiloka ekkert. Þetta fer allt eftir
því hvað fólkið mitt, þeir sem
fylgdu mér út úr flokknum og
fleiri, vill gera og það liggur ekki
fyrir enn,“ segir Margrét. Hún
segist ekki hafa átt í neinum form-
legum viðræðum við stjórnmála-
flokka um að ganga til liðs við þá.
Taka fylgi frá vinstriflokkunum
Opna fyrir
samskipti
Hreinar hendur
örugg samskipti
R
V
62
24
A
Á tilboði ífebrúar 2007
DAX Handspritt,
krem, sápur ofl.
Rekstrarvörur
1982–200725ára
Jóhanna Runólfsdóttir
sjúkraliði, ráðgjafi hjá RV
DAX Handáburður
250 ml
2
6
8
k
r
.