Fréttablaðið - 02.02.2007, Blaðsíða 24
[Hlutabréf]
Hollenska fyrirtækjasamstæðan
Stork hagnaðist á síðasta ári um 150
milljónir evra, eða sem nemur 13,3
milljörðum króna. Stork hefur síð-
ustu misseri deilt við stærstu hlut-
hafa um stefnu, en Marel vill kaupa
matvælavinnsluvélahluta Stork.
„Endanleg niðurstaða Stork á
afar stormasömu ári er með ólík-
indum góð. Við náðum góðum
árangri með bæði innri og ytri
vexti,“ segir Sjord Vollebrecht, for-
stjóri Stork. Greiningardeild Lands-
bankans bendir á að velta Stork
Food Systems, matvælavinnslu-
vélahlutans, hafi numið 326 milljón-
um evra í fyrra. „Vöxtur Food Syst-
ems var 36 prósent á milli ára,“
segir Landsbankinn og bendir á að
þótt vöxtur Marels hafi verið mikill
sé Food Systems talsvert stærra
félag. „En alls óvíst er hvort eða
hvenær Marel fær tækifæri til að
kaupa hollenska félagið.“
Deilur stjórnar Stork við hlut-
hafa hafa snúist um hvort selja bæri
hluta samstæðunnar og einbeita sér
að kjarnastarfsemi. Í tilkynningu
félagsins kemur fram að afráðið
hafi verið að selja prenthluta Stork
á þessu ári, en hluti var seldur fyrir
áramót. Þessi hluti vegur hins vegar
ekki þungt í heildarrekstrinum og
ríkir enn óvissa um sölu annarra
hluta. Hollenskur viðskiptadómstóll
skipaði félaginu nýverið tilsjónar-
stjórnarmenn til að vinna að lausn
deilunnar við hluthafa.
Stork græðir í stormi
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
B
I
36
04
4
01
/0
7
Þ
Landsbankinn hefur á að skipa um 150 sérhæfðum
starfsmönnum í fyrirtækjaþjónustu sem kappkosta
að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu
og trausta fjármálaráðgjöf.
Þannig er minni og meðalstórum fyrirtækjum gert
kleift að dafna og ná settu marki og á sama tíma
stuðlum við saman að fjölbreyttu og kraftmiklu
viðskiptalífi á Íslandi.
Landsbankinn er með víðtækasta útibúanet á landinu.
Það tryggir viðskiptavinum okkar frábæra þjónustu og
persónulega ráðgjöf sem tekur mið af þörfum hvers
og eins.
Hafðu samband í síma 410 4000 eða með tölvupósti
á fyrirtaeki@landsbanki.is og sjáðu hvað við getum
gert fyrir þig.
Minni og meðalstór fyrirtæki gegna þýðingarmiklu
hlutverki í íslensku viðskiptalífi
Skattfrjálsar mútugreiðslur
Capacent tilkynnti í gær um kaup
á danska markaðsrannsóknafyr-
irtækinu Epinion. Tekjur félags-
ins á síðasta ári námu fimm
hundruð milljónum íslenskra
króna.
Skúli Gunnsteinsson, forstjóri
Capacent, segir kaupin mikilvægt
skref í því markmiði félagsins að
byggja upp norður-evrópskt félag
á sviði ráðgjafar, rannsókna og
ráðninga. Epinion er þriðja félag-
ið sem Capacent kaupir í Dan-
mörku. Ráðgjafaeining KPMG
var keypt í desember árið 2005 og
Logistic Group í júní 2006.
Capacent leitar jafnframt
frekari tækifæra í Skandinavíu
og í Norður-Evrópu. „Við eigum
von á að félagið muni stækka
hratt á næstu tveimur árum,“
segir Skúli. „Miðað við þau mark-
mið sem við höfum sett okkur er
ljóst að það verður ekki eingöngu
með innri vexti heldur jafnframt
með yfirtökum eða sameiningu
við annað félag. Við eigum þegar
í viðræðum við nokkra aðila. Það
á eftir að koma í ljós hvað kemur
út úr þeim.“
Velta Capacent jókst úr 1.300
milljónum árið 2005 í 4,5 millj-
arða á síðasta ári. Það markmið
hefur verið sett að hún verði
komin yfir tíu milljarða króna
árið 2009. Stefnt er að því að skrá
félagið á hlutabréfamarkað í maí
það ár.
Eftir kaupin á Epinion starfa
260 manns hjá Capacent í Dan-
mörku og á Íslandi.
Capacent bætir við sig í Danmörku