Fréttablaðið - 02.02.2007, Qupperneq 25
Sensa, IP samskiptalausnir, stofnuð: 2002
Fjöldi starfsmanna: 17
Músafjöldi: 53
Tölvupóstar á viku: 3467
Þín starfsemi skiptir okkur öll miklu máli
FL Group er spáð methagnaði á fjórða ársfjórðungi 2006 en þó munar
miklu á afkomuspám bankanna sem eru frá 27,5 til 35,5 milljörðum
króna. Félagið birtir uppgjör sitt í dag. Mikill hagnaður skýrist aðal-
lega af söluhagnaði á Icelandair Group og gengishagnaði af innlend-
um og erlendum hlutabréfum. Eins og oft áður ríkir nokkur óvissa
um stöðu gjaldeyrisjöfnuðar FL sem kann að skýra mikinn mun á
spám.
Meðaltalsspá bankanna hljóð-
ar upp á 31,9 milljarða króna
hagnað en aðeins einu sinni hefur
það gerst að félag hafi skilað yfir
þrjátíu milljörðum krónum í hús
á einum ársfjórðungi. Það var
þegar Kaupþing hagnaðist um
35,4 milljarða á þriðja ársfjórð-
ungi 2006.
Norræna kauphallarsamstæðan
OMX skilaði 911 milljónum
sænskra króna í hagnað á síðasta
ári. Þetta jafngildir rúmum 8,9
milljörðum íslenskra króna. Til-
samanburðar nam hagnaðurinn
ári fyrr 543 milljónum sænskra
króna, eða rúmum 5,3 milljörðum
íslenskra.
OMX-samstæðan rekur kaup-
hallir á Norðurlöndum, að Noregi
undanskildum, og í Eystrarsalts-
löndunum. Samstæðan tók meðal
annars yfir rekstur Kauphallar
Íslands í desember í fyrra.
Rekstrarhagnaður í fyrra nam
1,2 milljörðum króna, 11,8 millj-
örðum íslenskra króna, samanbor-
ið við 910 milljónir sænskra króna,
eða rúmra 8,9 milljarða íslenskra
króna.
Haft er eftir Magnusi Böcker,
forstjóra OMX, í tilkynningu að
síðasta ár hafi á margan hátt verið
metár hjá OMX enda hafi rekstr-
arafkoman aldrei verið betri.
Hagnaður á hlut jókst um 64 pró-
sent miðað við árið á undan og arð-
semi eigin fjár nam 20 prósentum.
„Eftir nokkurra ára tímabil upp-
byggingar hefur OMX nú náð
sterkri stöðu meðal kauphalla á
alþjóðavettvangi en kauphalla-
markaðurinn einkennist af örum
vexti.“
Böcker sagði ennfremur á upp-
gjörsfundi að þótt stjórn OMX
hefði heimild til þess að kaupa allt
að tíu prósent eigin bréfa þá væru
litlar líkur á að það yrði raunin og
líklegra að ekkert yrði af kaupun-
um.
Hagnaður OMX eykst
FL Group spáð methagnaði
Engir eftirmálar verða gagnvart
fyrri eigendum Tæknivals vegna
gjaldþrots fyrirtækisins, að sögn
Stefáns Jóhannessonar, stjórnar-
formanns eignarhaldsfélagsins
Byrs. Félagið keypti Tæknival af
Fons, sem er í eigu Pálma Haralds-
sonar og Jóhannesar Kristinsson-
ar, í byrjun mars í fyrra.
Stefán segir að ljóst hafi verið í
nokkurn tíma í hvað stefndi, en
ötullega hafi verið unnið að því að
reyna að bjarga fyrirtækinu. „Til
þess voru kannski ekki margar
leiðir, helst að taka félagið í gegn
um nauðasamning og fá nýtt fjár-
magn inn í félagið með nýjum hlut-
höfum. Við lögðum mikla vinnu í að
reyna að landa þessu en það hafðist
ekki.“ Á honum er engu að síður að
skilja að róðurinn hafi verið heldur
þyngri en búist var við þegar Byr
keypti Tæknival fyrir tæpu ári
síðan. „Við hins vegar vissum frá
upphafi að þetta væri áhætta, en
rákumst mjög flótt á ákveðna veggi
sem kom okkur dálítið á óvart.“
Stefán vill þó ekki fara nákvæm-
lega í saumana á því hvaða hlutir
þetta voru en áréttar að fyrirtækið
hafi dregið á eftir sér hala vanda-
mála árum saman. „Okkur tókst
því miður ekki að leysa þau öll og
ljóst að skorti á vilja hjá sumum
þeim sem við höfum sest niður með
til að koma til móts við félagið þótt
það væri mjög aðþrengt.“
Ekki er enn ljóst hversu
umfangsmikið gjaldþrot Tækni-
vals er en í gang er að fara hefð-
bundið ferli með skiptastjóra þar
sem auglýst er eftir kröfuhöfum.
Skiptastjóri hefur verið skipaður
Sigurmar K. Albertsson hæstarétt-
arlögmaður.
Áhrifin af gjaldþroti Tæknivals
segir Stefán ekki verða mikil á
starfsemi Byrs. „Fjárfestingin í
þessu var mjög lítil þótt auðvitað
hafi verið sett í þetta ómæld vinna
og tími. Eignarhaldsfélagið heldur
bara áfram að sinna öðrum verk-
efnum.“
Vissu að baráttan yrði erfið
Nýjum eigendum tókst ekki að bjarga Tæknivali. Rákust fljótt á veggi.
Ef öll fyrirtæki Kauphallarinnar
tækju þá ákvörðun að skrá hluta-
fé sitt í evrum myndi það ekki
hafa teljandi áhrif á peninga-
málastjórn Seðlabankans, jafn-
vel þótt öll velta yrði í annarri
mynt en krónu. Þetta er mat
Þórðar Friðjónssonar, forstjóra
Kauphallar Íslands. „Ég lít
þannig á að það sé fyrst og fremst
verið að skipta um reiknieiningu.
Þótt fyrirtæki taki ákvörðun um
að fara yfir í evruna eða aðra
mynt held ég að það hafi lítil sem
engin áhrif á peningamálastjórn-
ina. Það er best að fyrirtæki taki
þessa ákvörðun út frá eigin hags-
munum. Það leiðir til bestu nið-
urstöðu fyrir hagkerfið í heild.“
Þórður telur þó þá þróun að
hagkerfið hafi á undanförnum
árum verið að færa sig í ríkari
mæli yfir í evrur hafi að sjálf-
sögðu einhver áhrif á peninga-
málastjórnina þótt þessi aðgerð
út af fyrir sig hefði það ekki. „Ég
held reyndar að áhrifin af því að
bankarnir færi eigið fé sitt í
evrur séu stórlega ofmetin. Það
myndi í mesta lagi hafa áhrif á
gengi krónunnar rétt á meðan
breytingin væri að eiga sér stað.“
Lítil áhrif af evrubreytingu