Fréttablaðið - 02.02.2007, Side 30
Kartöflu-
súpa
Ýmsar súpur eru í boði í Café
Hafnarborg, kaffistofu Hafnar-
borgar í Hafnarfirði.
„Hér er boðið upp á allt mögulegt,
með áherslu á létta rétti og kaffi-
veitingar,“ segir Sigrún Fanný
Jónsdóttir, rekstrarstjóri Café
Hafnarborgar.
„Hér fást til að mynda kökur
og samlokur að ógleymdu hádeg-
ishlaðborðinu,“ heldur Sigrún
áfram. „Hádegishlaðborðið
samanstendur alltaf af salati,
heitum réttum og súpum, sem er
allt breytilegt frá degi til dags.
Menn geta þannig gætt sér á ljúf-
fengri melónu- og engifersúpu,
kívísúpu eða tómatsúpu fram-
reiddum með nýbökuðu brauði.
Það fer allt eftir því hvað lista-
kokkurinn okkar, hún Ruby, sem
er frá Singapúr, kýs að galdra
fram þann daginn.“
Sigrún lýsir matnum, þar á
meðal súpunum, sem skemmti-
legri samblöndu íslenskrar og
singapúrskrar eldamennsku, sem
hafi farið vel ofan í Íslendinga.
„Fólk er alls ekki hrætt við að
prófa nýjungar og er mjög ánægt
með að fá eitthvað annað en blóm-
kálssúpu,“ segir hún og hlær.
Hér að neðan eru uppskriftir
að fimm súpum sem kokkur Café
Hafnarborgar var svo vænn að
eftirláta lesendum og ætti að gefa
þeim ágæta innsýn í það sem þar
er í boði.
Ný súpa sérhvern dag
Melónu- og
engifersúpa